Tveir á toppnum

40 Episodes
Subscribe

By: Tveir á toppnum

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“  - Morgunblaðið 1987 - tveiratoppnumpodcast@gmail.com. 

✂️ Turn this podcast into clips
#165-Meiriháttar kombakk!
#165-Meiriháttar kombakk! episode artwork
Today at 6:00 PM

Tveir á toppnum bæta fyrir messufall síðustu viku með því að troða bókstaflega ÖLLU í þennan 70 mínútna endurkomuþátt eftir langt veikindaleyfi Tóta. Hvað gerði Oddur á meðan og er eitthvað til í því að Tóti hafi verið meðferð og logið sig veikan á meðan? Þetta er þátturinn með öll svörin!


#164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi
#164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi episode artwork
09/17/2026

Emmy-verðlaunin eru í brennidepli þáttarins og þá sérstaklega sigurvegari hátíðarinnar, Apple TV, sem er nú loks aðgengilegt á Íslandi með eðlilegum og fullkomlega löglegum hætti. Fagnaðarlæti Odds yfir þessum tímamótum eru dálítið ýkt en fastasti fastagestur þáttarins og maðurinn sem uppgötvaði Ekkjuvogsþættina á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, nálgast tíðindi vikunnar af sinni alkunnu yfirvegun.


#163-Frjálst og óháð bull
#163-Frjálst og óháð bull episode artwork
09/02/2026

Frjáls tími hjá Tveimur á toppnum þar sem Oddur og Tóti leyfa sér stjórnlausan og ómarkvissan kjaftavaðal. Reyna að selja notuð nagladekk og barnaföt á milli þess sem hrært er í gláppottum líðandi stundar, fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar er minnst og Tóti klárar Mickey Rourke fyrirlestur síðasta þáttar.


#162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag
#162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag episode artwork
08/28/2026

Tveir á toppnum breyta um stefnu í síðasta þætti sínum fyrir Dómsdaginn 29. ágúst þegar alþjóðastjórnmálafræðingurinn Oddur Ævar er fenginn til að ræða kosti og galla ESB-aðildar. Þó finnst einnig pláss til að minnast Dollyjar Parton og Tims Curry en Tóti er síðan stöðvaður í miðjum fyrirlestri um Mickey Rourke.


#161 - House of the Dragon 3
#161 - House of the Dragon 3 episode artwork
08/19/2026

Útvarpsstjarnan Nanna Guðrún Sigurðardóttir á Rás 2 stígur niður á hlaðvarpsplanið og ræðir 3. vertíð House of the Dragon í Tveimur á toppnum, sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpi upplýsta og djúppælda fólksins!

Einnig: Hayden Panettiere, Stallone á Menningarnótt og listi yfir þolgóðar hlaupamyndir fyrir þau sem nenna ekki að púlla Dustin Hoffman og hlaupa Reykjavíkurmaraþonið.


#160 - Spider-Man: Brand New Day
#160 - Spider-Man: Brand New Day episode artwork
08/05/2026

Áttfættu hlustendur! Velkomin að Marvel-troginu þar sem Spider-Man: Brand New Day er veislukosturinn að þessu sinni. Oddur sleikir út um á meðan Arnar Tómas talar enga tæpitungu þegar hann kennir honum borðsiði. 

Einnig: Tóti tengir ESB-tryllinginn við Invasion of the Body Snatchers.

Sérstakur heiðurgestur: Stefán Atli Sigtryggsson, okkar Marvel-maður í Svíþjóð.


#159 - Talking Bollocks!
#159 - Talking Bollocks! episode artwork
07/29/2026

Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????


#158 - The Odyssey
#158 - The Odyssey episode artwork
07/23/2026

Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.


#157 - Frjáls tími og glápskýrslur
#157 - Frjáls tími og glápskýrslur episode artwork
07/16/2026

Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.


#156 - Stallone 80 ára
#156 - Stallone 80 ára episode artwork
07/06/2026

Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti.

Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta  Tveir á toppnum þætti allra tíma.


#155 - Citizen Vigilante
#155 - Citizen Vigilante episode artwork
07/01/2026

Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir.

Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.


#154 - Disclosure Day
#154 - Disclosure Day episode artwork
06/18/2026

Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt: 

Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.


#153 - Obsession
#153 - Obsession episode artwork
06/11/2026

Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH. 


#152 - Backrooms
#152 - Backrooms episode artwork
06/05/2026

Öll eru að tala um Backrooms þannig að Oddur og Tóti verða að gera það líka. Verst bara að þeir skilja ekki neitt.


#151 - 2EXTRA - Euphoria 3
#151 - 2EXTRA - Euphoria 3 episode artwork
06/03/2026

Dóra Júlía er dregin inn í neyðarpodd, sérstakan aukaþátt, þann fyrsta í langan tíma, um Euphoria 3 í fjarveru Tóta. 


#150 - The Mandalorian and Grogu
#150 - The Mandalorian and Grogu episode artwork
05/28/2026

Þegar ný Star Wars-mynd kemur í bíó dugir ekkert annað en að draga fram stóru geislabyssurnar og það er gert í þessum þætti sem fjallar bara um Stjörnustríð og ekkert nema Stjörnustríð með okkar helsta Star Wars-manni, sjálfum Geir Finssyni.


#149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör
#149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör episode artwork
05/21/2026

Lokahnykkur The Boys er í brennidepli og maðurinn sem uppgötvaði þættina á Íslandi, sjálfur Arnar Tómas Valgeirsson, er ekki langt undan og kveður upp sinn endanlega dóm símleiðis.


#148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill
#148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill episode artwork
05/14/2026

Arnar Tómas Valgeirsson kemur aftur eftir ársfjarveru en er enn með heitu take-in. Marvel trogið krufið í þaula.


#147 - The Devil Wears Prada 2
#147 - The Devil Wears Prada 2 episode artwork
05/08/2026

Hátískuþáttur með súperstjörnunni DJ Dóru Júlíu sem leiðir leppalúðana Odd og Tóta meðfram sýningarpöllunum inn í allan sannleikann um menningarfyrirbærið sem kennt er við Andskotann dressaðan upp í Prada.


#146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára
#146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára episode artwork
04/30/2026

Síðasti þáttur aprílmánaðar byrjar á spjalli við Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við HÍ, um býsna áhugaverðan lista yfir 25 bestu kvikmyndir síðasta aldarfjórðungs. Apex hans Balta er síðan rædd út og suður en aðalega norður áður en hefðbundnu stöðutjékki er troðið sem rúsínu í þennan mánaðarenda.


#145 - Invincible og The Drama
#145 - Invincible og The Drama episode artwork
04/23/2026

Heilsufarsskoðun Tóta hjá hjartalækninum á sumardeginum fyrsta. Fjórða sería af The Invincible öll komin út, endurnýjun Law and Order og The Drama. Michael Jackson myndin sem er víst að falla í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Skoðanir Tóta á MJ koma ekki á óvart, eða hvað?


#144 Malcolm & Melania í miðjunni
#144 Malcolm & Melania í miðjunni episode artwork
04/16/2026

Þreyttir, slæptir og tættir en óbugaðir barma Oddur og Tóti sér yfir ómannúðlegu glápálagi. Oddur finnur þó huggun í því að hann er að byrja aftur að éta vængi í sjónvarpi og hefur hrifist af Malcolm in the Middle: Life's Still Unfair. Tóti hins vegar deilir hlutskipti með Malcolm og hefur tekið út talsverða þjáningu til þess að efna loks loforið um Melaniu umfjöllun. 


#143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið
#143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið episode artwork
04/08/2026

We are so back! Ferðasaga Odds, ótrúlegar hrakfarir Tóta í gestagangi, Project Hail Mary, The Boys, Invincible, Daredevil: Born Again, Euphoria, Harry Hole og vorbylgjan ógurlega. 


#142 - Óskarinn 2026
#142 - Óskarinn 2026 episode artwork
03/19/2026

Óskarinn gerður upp. Tóti er Nostradamus! Eða svona því sem næst. Hvenær kemur að Timothée Chalamet? Hvar var Sean Penn? Leonardo DiCaprio bölvunin. Manosphere, Spiderman trailer og að sjálfsögðu Law and Order. Og margt fleira.




#141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið
#141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið episode artwork
03/10/2026

Þáttur í flýtimeðferð þar sem Oddur er á leið í óbyggðaferð í vetrarfríinu.  Farið er ofan í skuggalega kvikmyndatengingu sem boðar ekkert gott fyrir ESB-þjóðaratkvæðaflippið. Rachel Weiz rokkar Netflix með Vladimir á meðan Jack Reacher púllar Arnold og slæst við hönnungargallaðan Transformer frekar en alvöru Predator. Að ógleymdri fullkomlega ómarktækri og ábyrgðarlausri Óskarsspá.

-----

Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af bifreiðaskoðun. Það eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.


#140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk
#140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk episode artwork
03/05/2026

Vistaskipti Tóta, myrk saga America's Next Top Model, ótrúlegar breytingar á Jim Carrey, síðvetrardepurð og fleira og fleira og fleira.
-----
Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#139 - A Knight of the Seven Kingdoms
#139 - A Knight of the Seven Kingdoms episode artwork
02/25/2026

Industry, America's Next Top Model, fannfergið úti og svo alvöru nördayfirferð (á mínútu 25) yfir A Knight of the Seven Kingdoms með Stefáni Pettersson. Óvænt bestu þættir ársins?

-----
Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#138 - Heated Rivalry
#138 - Heated Rivalry episode artwork
02/19/2026

Dóra Júlía Agnarsdóttir fjölmiðlakona og plötusnúður mætir og greinir Heated Rivalry í þaula. Innskot frá gesti þáttarins. Að 25 mínútum liðnum kveður Dóra og tveir á toppnum fara yfir vettling dagsins. RIP Robert Duvall og fleira.
-----
Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#137 - Fallout 2
#137 - Fallout 2 episode artwork
02/05/2026

Aðeins um Melaniu Trump heimildarmyndina. Hvað er verið að glápa á? Allar helstu kenningar upp úr vertíð 2 af Fallout. Stefán Pettersson er maðurinn sem allt  veit um Fallout. 

-----
Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#136 - Óskarsverðlaunatilnefningar 2026 og Marty Supreme
#136 - Óskarsverðlaunatilnefningar 2026 og Marty Supreme episode artwork
01/29/2026

Hvernig fer Ísland-Danmörk? Tóti spáir í spilin, með sínum hætti. Sjónvarpsglápið, Bíóhöllin, Óskarinn og Marty Supreme. 


#135 - 28 Years Later: The Bone Temple
#135 - 28 Years Later: The Bone Temple episode artwork
01/22/2026

Uppvakningadramað 28 Years Later: The Bone Temple og í raun allur 28 bálkurinn eru krufin inn að beini og brotin til mergjar með mæðgunum Kareni Kjartansdóttur og Unu Kristjönu.

Alveg hreint sprellfjörgur panell og þáttur með tæknilegum mistökum og grímulausum Duran Duran áróðri.




#134 - Sjónvarpsárið er hafið og Sydney Sweeney fækkar fötum
#134 - Sjónvarpsárið er hafið og Sydney Sweeney fækkar fötum episode artwork
01/15/2026

Fyrsti þátturinn gestalausir í háa herrans tíð. Förum yfir það helsta sem er á döfinni í sjónvarps-og bíóheimum. Golden Globe og svo kvikmyndin The Housemaid. Og miklu meira!


#133 - Stranger Things 5
#133 - Stranger Things 5 episode artwork
01/08/2026

Stranger Things er nú á enda. Birgir Olgeirsson mætir og greinir nýjustu seríuna og hinar í þaula.


#132 - Áramótaskaupið 2025 og árið gert upp
#132 - Áramótaskaupið 2025 og árið gert upp episode artwork
01/03/2026

Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Arnar Eggert Thoroddssen doktor í tónlistarfræðum og aðjúnkt í fjölmiðlafræði ræða Áramótaskaupið 2025 og gera upp árið 2025 í sjónvarps -og kvikmyndaheimum og líta til þess hvað er framundan 2026. 


#131 - Jólaþátturinn 2025
#131 - Jólaþátturinn 2025 episode artwork
12/18/2025

Tveir á toppnum hraðspóla í gegnum alls konar jólajóla í sínum þriðja Jólaþætti. Mæla með góðu og sígildu jólaglápi, rifja upp jólamyndir kvikmyndahúsanna 1985, fyrir 40 árum og bíta enn og aftur í gamla þrætueplið hvort Die Hard sé jólamynd eða ekki. 

Avatar-fyrirbærið er greint og hjónanna Rob og Michele Singer Reiner er minnst með hlýhug, þakklæti og sorg í hjarta. 

Sérstakur gestur er JólaSveinn Waage.


#130 - Sprettkeppni Odds og Tóta 2025 ft. Bíóblaður
#130 - Sprettkeppni Odds og Tóta 2025 ft. Bíóblaður episode artwork
12/11/2025

Hafsteinn Sæmundsson hlaðvarpsstjórnandi og höfundur bíóspurningaspilsins Bíóblaðurs mætir og spyr Tvo á toppnum spjörunum úr. Fyrst aðeins um gláp núlíðandi stundar, að lokum um einu tvær myndir ársins sem Hafsteini fannst eitthvað varið í. Mynd tengist efni þáttar beint.

-----

Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#129 - Puff Daddy, Stranger Things og meira stöðutékk
#129 - Puff Daddy, Stranger Things og meira stöðutékk episode artwork
12/04/2025

Bland í poka þáttur þar sem allskonar er rætt með Jónasi Má Torfasyni. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#128 - The Running Man
#128 - The Running Man episode artwork
11/19/2025

Símon Birgisson og Valur Grettisson mæta og greina The Running Man í döðlur. Fyrst aðeins um gagnrýni og svo mikið um Stephen King. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum


#127 - Bannað að hlæja 2
#127 - Bannað að hlæja 2 episode artwork
11/13/2025

Auðunn Blöndal okkar allra mætir og fer yfir vertíð tvö af Bannað að hlæja. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.


#126 - Frankenstein
#126 - Frankenstein episode artwork
11/12/2025

Nýjasta afurð Guillermo Del Toro rædd í þaula. Fyrst aðeins yfir vettling dagsins. Sérstakur gestur: Stefán Atli Sigtryggsson kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð OG kvikmyndafræðingur. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.