Popparasögur

39 Episodes
Subscribe

By: Vignir Egill Vigfússon

Hlaðvarp á léttu nótunum þar sem fjallað er um íslenska tónlist og rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi. 

✂️ Clip this podcast
#39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma
#39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma episode artwork
#39
Today at 5:00 AM

Einar Örn Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi. Hann gaf ungur út sólóplötu með eigin efni, hann spilaði dinner-tónlist fyrir matargesti á Lækjarbrekku, hann hefur síðustu ár spilað með vinsælasta tónlistarfólki landsins, gefið út efni undir nafninu Löður og stendur fyrir jólatónleikum, Einar um jólin, í desember.

En þekkastur er hann sennilega fyrir störf sín með hljómsveitinni Í svörtum fötum þar sem hann spilaði á hljómborð og samdi lög og texta auk þess að stýra skipinu, prógramminu og stuðinu. Hljómsveit...


#38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól
#38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól episode artwork
#38
10/27/2026

Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í menningarsjokki, voru með fulla ruslapoka af rúblum og lifðu eins og rokkstjörnurnar sem þeir sögðust vera.

Í þessum hluta segja þeir frá einu vinsælasta íslenska jólalagi allra tíma, Jólahjól, og hvað það gerði fyrir hljómsveitina. Þeir tala um þegar Skúli reyndi að fá leyfi frá Rolling Stones, einstakt samband...


#37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum
#37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum episode artwork
#37
10/27/2026

Þriðji hlutinn og mögulega einum þeim merkilegasta í sögu hljómsveitarinnar Sniglabandsins. Í fyrstu tveimur hlutunum var farið yfir upphaf sveitarinnar, ótrúlegar uppákomur frá fyrstu árunum, mannabreytingar, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, vinsælustu útvarpsþætti landsins og svo margt fleira.

Í þessum þriðja hluta er fjallað um merkilega ferð Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir fóru á fimm mótorhjólum og einni rútu í tónleikaferðalag. 

 Þeir segja frá því hvernig þeir gistu í heimahúsum og kynntust fólkinu, fullum ruslapokum af rúblum og vandræðunum við að eyða þeim, mútum til lögreglunnar, mafíunni...


#36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi
#36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi episode artwork
#36
10/20/2026

Annar hluti viðtalsins við hljómsveitina Sniglabandið. Í fyrsta hlutanum var farið víða og sagt frá upphafi sveitarinnar, ótrúlegum uppákomum frá fyrstu árunum þar sem kom við sögu dvergur að þvo bíl, hestur í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, Jónas Friðrik, Hells Angels, putti í auga og margt fleira.

Í þessum öðrum hluta fara þeir Diddi og Skúli yfir það hvernig hljómsveitin fór að þróa þá list að taka við óskalögum fólks í salnum, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, útvarpsþættina sem voru þeir vinsælustu á landinu og karakterana og grínið sem var til þar, lögin sem urðu til í þáttunum, samst...


#35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað
#35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað episode artwork
#35
10/20/2026

Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985.

Í þessum fyrsta hluta fara þeir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, eða Diddi, og Skúli Gautason yfir sögu sveitarinnar en auk þeirra eru í hljómsveitinni Björgvin Ploder, Einar Rún...


#34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn
#34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn episode artwork
#34
10/13/2026

Friðrik Dór hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður á Íslandi undanfarin eða allt frá því hann kom fram á sjónarsviðið með lög eins og Hlið við hlið, Leiðarlok og fleiri. Síðan þá hafa topplögin verið fjölmörg og vinsældir hans vaxið þrátt fyrir að hafa þurft að hafa fyrir hlutunum og takast á við áskoranir á leiðinni.

Nýverið kom hann fram á tvennum tónleikum með SinfoniaNord í Hofi á Akureyri þar sem lögin hans voru spiluð í nýjum útsetningum og verða tónleikarnir endurteknir í Hörpu í lok október.

Í viðtalinu talar hann um samstarf við me...


#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)
#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti) episode artwork
#33
10/06/2026

Þá er komið að seinni hlutanum í spjallinu við Franz Gunnarsson, gítarleikara, tónleikahaldara og margt fleira, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi, t.d. með hljómsveitum eins og Ensími, Dr. Spock og fleirum.

Í fyrri hlutanum fór Franz yfir byrjunina með In Memoriam, Quicksand Jesus og Dr. Spock. Í þessum seinni hluta segir Franz frá hljómsveitinni Ensími, hvernig hún byrjaði eftir að hljómsveitin Jet Black Joe hætti á sínum tíma, Kafbátamúsík, vinnunni með Steve Albini, tilraunum þeirra til að slá í gegn erlendis, 30 ára afmælinu og fleiru.

...


#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)
#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti) episode artwork
#32
10/06/2026

Franz Gunnarsson hefur komið víða við á sínum tónlistarferli, hvort sem það er sem gítarleikari, höfundur, sólólistamaður eða tónleikahaldari. Hann hefur verið í hljómsveitum eins og In Memoriam og Quicksand Jesus sem voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar en þekktastur er hann sennilega sem meðlimur bæði Ensími og Dr. Spock.

Í þessum fyrri hluta af tveimur talar Franz um Músíktilraunir, rokksenuna og hvernig hún var þegar hann var að stíga sín fyrstu skref, upphaf Dr. Spock og Ensími, þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins og síða...


#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár
#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár episode artwork
#31
09/29/2026

Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar af því tilefni að halda stórtónleika í Háskólabíói í október. Hljómsveitin var stofnuð eins og margar aðrar á sínum tíma til þess að spila á sveitaböllum, búa til smá pening fyrir meðlimi og hafa gaman.

Fyrst um sinn var ruglast á hljómsveitinni og öðrum sólarböndum, þá sérstaklega SSSól. En í dag er hljómsveitin Á móti sól löngu orðin ein af þeim þekktari á landinu með fjöldann allan af vinsælum lögum og stóran aðdáendahóp um land allt.<...


#30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum
#30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum episode artwork
#30
09/22/2026

Egill Örn Rafnsson hefur átt langan og viðburðaríkan feril eftir að hafa byrjað mjög ungur að vinna sem tónlistarmaður. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var farinn að spila á börum í miðborg Reykjavíkur og 18 ára þegar tónlistin varð að aðalstarfi. Fyrst með Buttercup, svo Ber, á sveitaböllum og í stúdíói.

Hér á eftir fer hann yfir ferilinn, allt frá fyrstu árunum í skólahljómsveitinni og hljómsveitinni Sign, yfir í Buttercup og fjölmiðlafárið þegar hann var rekinn úr hljómsveitinni. Hann segir frá stofnun hljómsveitarinnar Ber og spilamennskunni u...


#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa
#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa episode artwork
#29
09/15/2026

Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari.

Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril sinn í tónlistinni, allt frá Ritvélum framtíðarinnar til samstarfs við HAM, Pál Óskar, Bubba, Egil Ólafs og fleiri...


#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)
#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti) episode artwork
#28
09/08/2026

Þá er komið að seinni hluta viðtalsins við Valdimar Guðmundsson, einn allra vinsælasta söngvara þjóðarinnar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Valdimar árið 2010.

Í fyrri hlutanum var farið yfir hljómsveitina Valdimar, vinsælustu lögin, tónleikaferðalögin, lætin og allt það sem fylgdi fyrstu árum sveitarinnar. Í þessum hluta skyggnumst við hins vegar meira inn í önnur verkefni Valdimars og fólkið sem hefur haft áhrif á feril hans.

Hér ræðir hann meðal annars um vinsælustu lögin sem hann hefur sungið, Hljómskálann, samstarfið við Magga Eiríks...


#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti)
#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti) episode artwork
#27
09/08/2026

Valdimar Guðmundsson hefur verið einn vinsælasti söngvari íslenskrar tónlistar undanfarin ár. Hvort sem það er með hljómsveitinni Valdimar, LÓN, Memfismafíunni eða öðrum verkefnum hefur rödd hans verið áberandi í íslensku tónlistarlífi.

En ferðalagið að þessum tímapunkti hófst löngu áður en Valdimar varð þekktur sem söngvari. Sem ungur strákur lærði hann á básúnu og síðar tónsmíðar, en það var ekki fyrr en um tvítugt sem hann fór að taka sönginn alvarlega.

Síðan gerðist ýmislegt. Lagið „Yfirgefinn“ varð óvæn...


#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk
#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk episode artwork
#26
09/01/2026

Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu.

Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavinafélagsins. Eftir það fór allt á fullt með sveitaböllum um allt land, metsöluplötum og lögum sem urðu stórir smellir.

Hér á ef...


#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti)
#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti) episode artwork
#25
08/25/2026

Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure.

En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði, hann flutti aftur til Íslands, tók þátt í stofnun tímaritsins Monitor og lenti í fjölmiðlastríði við Bu...


#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti)
#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti) episode artwork
#24
08/18/2026

Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur.

Í þessum fyrri hluta viðtalsins ræðir Biggi um feril hljómsveitarinnar Maus, pönkið sem hefur fylgt honum alla tíð, upphafið, allar plöturnar, vinsælustu lögin, pressuna...


#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn
#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn episode artwork
#23
08/11/2026

Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum.

Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Land og syni og öll ævintýrin með þeim bæði hérlendis og erlendis og sunnudagskvöldin með Sælgætisgerðinni.

Hann segir frá þjóðhátíðarlögunum...


#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026
#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026 episode artwork
#22
07/28/2026

Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi.

Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæmið um það.

Í þennan þátt mætir maður sem þekkir íslenskan tónlistarbransa mjög vel. Hann fer hér aðeins yfir þessa hel...


#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum
#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum episode artwork
#21
07/21/2026

Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu.

Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður getur stigið á, heldur afrakstur margra ára markvissrar vinnu. Frá fyrstu trúbadoragiggunum á Norðurlandi, Söngvakeppninni og tímanum með Færibandinu og Stuðlabandinu hefur hvert skref verið undirbúningur fyrir þessa...


#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir
#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir episode artwork
#20
07/14/2026

Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið.

Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins.

Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, SSSól og Sálin hans Jóns míns, hefur leiðin legið á stærstu svið landsins. Í dag er Stuðlabandið ein þekktasta hljómsveit þjóðarinna...


#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita
#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita episode artwork
#19
07/07/2026

Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð.

Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir, Land og synir og Sólstrandargæjarnir. Auk þess verða margs konar viðburðir í bænum í vikunni fyrir Bræðsluna.

Í þessum þætti verður rætt við M...


#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar
#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar episode artwork
#18
06/30/2026

Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin.

Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum Íslands, séð um tæknimál á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í rúman aldarfjórðung, átt hljóðkerfaleigu, skemmtistað, útvarpsstöð og nú síðast...


#17 | Botnleðja og engar málamiðlanir
#17 | Botnleðja og engar málamiðlanir episode artwork
#17
06/23/2026

Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið inn á íslenskan tónlistarmarkað með jafn miklum látum og Botnleðja gerði árið 1995. Það ár sigruðu þeir Músíktilraunir og gáfu út plötuna Drullumall og hvort tveggja vakti verðskuldaða athygli.

Rúmum 30 árum og fjölmörgum plötum síðar eru strákarnir úr Hafnarfirði enn að, og nú stíga þeir aftur á svið á heimavelli sínum í Bæjarbíói, í Hjarta Hafnarfjarðar.

Í þættinum á eftir ræða Halli og Heiðar um upphaf Botnleðju og sigurinn í Músíktilraunum, fyrstu árin og viðhorfið til tónlistarbransans...


#16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið
#16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið episode artwork
#16
06/16/2026

Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið.

Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbransinn hefur breyst á síðustu 40 árum, sigurinn í Músíktilraunum 1986 og hvernig hann breytti lífi þeirra á skömmum tíma, fyrstu árin, mikla spilamennsku, kostnaðinn við frægðina, áhrif hennar á fjölskyldu- og einkalíf, vinsælus...


#15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta
#15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta episode artwork
#15
06/09/2026

Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er svo sannarlega maður margra hatta. Hann er söngvari, píanóleikari, gítarleikari, bassaleikari, upptökumaður, laga- og textahöfundur og eflaust margt fleira.

Hér á eftir talar hann um hljómsveitirnar sínar, Hjálma, Góss, Mefismafíuna, Senuþjófana og fleiri. Hann segir frá samstarfinu með Megasi, Sigríði Thorlacious, Braga Valdimar og fleirum. Hann segir líka frá því hvernig hann fór til Ítalíu til að læra ljósmyndun en endaði sem tónlistarmaður á Íslandi, hvernig það er að vera tónlistarmaður á Íslandi og...


#14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu
#14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu episode artwork
#14
06/02/2026

Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust.

Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina og fleira.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila
#13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila episode artwork
#13
05/27/2026

Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar.

Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakkastígnum yfir í það að vera KK. Frá buskinu í Skandinavíu, frá Vegbúanum, KK-bandinu, vináttunni og samstarfinu við Magga Eiríks, blúsinum, áhrifum í tónli...


#12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting
#12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting episode artwork
#12
05/12/2026

Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland,

Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurnar með Steve Albini, samstarfið við Bubba, spillerí með Egó, túrana erlendis með Barða í Bang Gang, dúettinn Warmland, sólóplöturnar, Heima með Helga og m


#11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi
#11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi episode artwork
#11
05/05/2026

Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár.

Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt.

Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist á við andlega og líkamlega erfiðleika.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#10 | Skálmöld og Börn Loka
#10 | Skálmöld og Börn Loka episode artwork
#10
04/28/2026

Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar.

Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben.

Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira.

Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.


#9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun
#9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun episode artwork
#9
04/28/2026

Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar.

Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben.

Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira.

Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.


#8 | Jónas Sig og Hafið er svart
#8 | Jónas Sig og Hafið er svart episode artwork
#8
04/21/2026

Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig.

 

Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári.

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn
#7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn episode artwork
#7
04/21/2026

Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig.

 

Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru.

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna
#6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna episode artwork
#6
04/14/2026

Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi.

 

En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar.

Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#5 | Guðrún Árný Karlsdóttir
#5 | Guðrún Árný Karlsdóttir episode artwork
#5
04/07/2026

Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi.

Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

 


#4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona
#4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona episode artwork
#4
04/02/2026

Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum.

Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar.

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.


#3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum
#3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum episode artwork
#3
04/02/2026

Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli.

Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig þeim gekk að takast á við breyttan veruleika.

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.


#2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti
#2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti episode artwork
#2
03/29/2026

Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.

 

Í þættinum er rætt við Skítamóral (Adda Fannar), Amabadama (Sölku Sól), Úlfur Úlfur (Arnar Freyr) og Spacestation (Björgvin).

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon


#1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti
#1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti episode artwork
#1
03/29/2026

Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.

 

Í þættinum er rætt við Friðrik Dór, Pál Óskar, Kristján Frey, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, og Kusk og Óvita, Kolbrúnu og Hrannar.

 

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon