Biblían á mannamáli

40 Episodes
Subscribe

By: Halldór Lár

Saga - Menning - Samhengi - Trú  Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.

✂️ Clip this podcast
Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir
#101
Today at 12:12 AM

Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin.

Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarer...


Dagur 70 - Af hverju lét ekki blessað fólkið segjast?
#100
Last Tuesday at 12:18 AM

Velkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins.

Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og hópa sem villa fyrir söfnuðinum; auk gagnrýni á þá sem vilja ekki vinna. Páll hvetur til þrautseigju og ábyrgðar í söfnuðinum. Hvernig í ósköpunum stóðts fólkið allar þessar þrengingar?

 


Dagur 69 - Páll safnar hári
#99
10/30/2026

Í þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son Guðs.

Við skoðum einnig þemu eins og persónulegt samband við Guð, ákvörðun Páls um nasíreaheit, og misskilning um endurkomu Drottins, sem leiðir til bréfsins sem við lesum næst.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church


Dagur 68 - Óravíddir lífsins
#98
10/27/2026

Þessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi sem börn ljóss og kærleika.

Hlaðvarpið tengir Ritninguna við nútímann; fjallar örstutt um nær-dauða reynslu; daglegt líf trúarinnar og boðar kraft kærleika og ljóss til að yfirstíga ótta og dauða.


Dagur 67 - Lifandi Orð sem ber ávöxt
#97
10/23/2026

Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu máli.

Rætt er um boðskap Páls — að hann predikaði ekki til að þóknast mönnum heldur Guði — og hvernig hið lifandi orð Guðs (sjá Jóhannes 15) vinnur í hjörtum fólks; hvernig Guð sniðlar til, svo við berum meiri ávöxt kærleikans.

Þátturinn tekur aðeins á fölskum kenningum og andstöðu, og endar með gleði Páls yfir vexti og kærleika...


Dagur 66 - Persónulegur Guð
#96
10/20/2026

Þessi þáttur fjallar um fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna (um 51 e.Kr.). Páll hvetur söfnuðinn til að halda fast við trúnna þrátt fyrir ofsóknir, sýnir eigin heiðarleika og útskýrir kraft heilags anda sem snertir hjörtu fólks.

Þátturinn greinir myndina af Guði sem föður ("abba") og kirkjuna sem fjölskyldu — bræður og systur — og leggur áherslu á kærleika í verki og vonina um endurkomu Krists.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

 


Dagur 65 - Erfiðar spurningar en góðar
#95
10/16/2026

Í þessum þætti ræðum við um aðdraganda fyrra bréfs Páls til Þessaloníkumanna, fréttirnar sem hann fékk frá Sílasi og Tímóteusi og hvernig þær lýsa stöðu safnaðanna: vaxandi trú, ofsóknir og innri erfiðleikar.

Þátturinn snýr einnig að ásökunum gegn Páli um græðgi og illt hugarfar; og spurningum um þjáningu, dauða og von í ljósi eilífrar áætlunar Guðs.


Dagur 64 - Ótti og angist Páls
#94
10/13/2026

Þessi þáttur fjallar um komu Páls til Korintu; andlega þreytu hans eftir baráttu og fangelsi og hvernig hann hóf að boða í borg sem var rík af verslun, þrælahaldi, trúarbrögðum og lauslæti.

Umfjöllunin kynnir borgarandann, íþróttahöldin, félagslegu átökin og hlutverk Akvílasar og Priskillu, sem samstarfsmanna Páls — og boðskapinn um að Guð sýnir styrk sinn í okkar veikleika.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church


Dagur 63 - Ókunni Guðinn
#93
10/02/2026

Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur fræga ræðu um altari hins ókunna guðs - við skoðum söguna á bak við það altari.

Þátturinn tengir saman ferðalög, trúboð og heimspekilegar umræður - og sýnir hvernig Páll aðlagar boðskap sinn að menningu og leit að sannleika meðal ólíkra áheyrenda, án...


Dagur 62 - Ásakanir og óeirðir
#92
09/29/2026

Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna keisaradýrkunar og borgaræsings.

Sagan lýsir heimsóknum í samkunduhús, hittingi hjá Jason, uppreisn almennings, ákærum fyrir að raska friði. Við sjáum hvernig Páll, Sílas og Tímóteus brugðust við áskorunum og byggðu upp lifandi samfélag trúaðra.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Heimildir: Fra...


Dagur 61 - Blóð, sviti og söngur
#91
09/25/2026

Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí  og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn og fjölskylda hans taka boðskapinn og snúa til trúar á Krist.

Þátturinn skoðar einnig hvernig fyrstu söfnuðirnir mynduðust, hlutverk kvenna eins og Lýdíu, menningu stórborga eins og Þessaloníku og hvernig trúin breytir lífi fólks þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika.


Dagur 60 - Var Lýdía sú fyrsta?
#90
09/22/2026

Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig hittast trúaðar konur niður við ána, en ekki í samkunduhúsi. 

Við ána prédikar Páll fyrir hópnum og Lýdía, efnuð kaupkona frá Þýatíruborg, tekur við boðskapnum, skírast og opnar heimilið sitt fyrir postulunum.

Ambátt með spásagnaranda fylgir hópnum og Páll rekur andann út í nafni Jesú...


Dagur 59 - Maðurinn frá Makedóníu
#89
09/18/2026

Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar Tímóteus með sér í nýja trúboðsferð.

Við skoðum hvernig frásagan tengir allt saman og leiðir til bréfaskrifa postulanna. Innra líf safnaðanna hélt þeim sterkum þrátt fyrir átök og ofsóknir. Maður frá Makedóníu kemur og talar við Pál. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugss...


Dagur 58 - Saltvatnsbrunnur
#88
09/15/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt.

Við ræðum hvernig orð okkar og dagleg hegðun afhjúpa hjartað, notum myndlíkingar um beisli og stýri varðandi stjórn tungunnar og skoðum áherslur um kærleika og réttlæti. 


Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins
#87
09/11/2026

Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál.

Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksríkum verkum. Við byrjum og endum með bæn um að sjá Guðs nærveru í daglegu lífi.


Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar
#86
09/08/2026

Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum.

Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.


Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú
#85
09/04/2026

Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls.

Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola


Dagur 54 - Innan frá og út
#84
09/01/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn. 

Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.


Dagur 53 - Guð er bara góður
#83
08/28/2026

Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi.

Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan frá og út.

Í lokin ræðum við aðeins um þá þætti sem við þurfum að "aflæra", að mati þáttastjórnanda. - Rjúfum manngerða mynd hefndar-guðsins. 


Dagur 52 - Tvær konur
#82
08/25/2026

Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll eitt.

Þátturinn notar myndlíf Abrahams, Söru og Hagars til að skýra muninn á lögmáli og náð. Páll sýnir að réttlæting kemur vegna Krists, en ekki vegna ánauðar lögmálsins.

Loks hvetur þátturinn til að treysta Guði og láta Krist smám saman myndast í lífi okkar. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson


Dagur 51 - Námsefnið í skóla lífsins
#81
08/21/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse.

Rædd eru megintök trúarinnar sem réttlætingu, að trú Abrahams kom á undan lögmálinu, og hvernig sönn, lifandi trú birtist í kærleika og góðum verkum – ávöxtum frelsisins. Lífið er skóli og námsefnið er kærleikur.


Dagur 50 - Biblíuleg trú, Abraham, Páll og kærleikurinn
#80
08/18/2026

Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists.

Við útskýrum hvernig Kristur uppfyllir lögmálið, hvernig Heilagur Andi breytir hjörtum og hvernig sönn trú birtist í kærleika og verkum sem sameinar fólk í Kristi.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson


Dagur 49 - Kærleikurinn gnæfir
#79
08/14/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum. 

Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu fyrir trú og lögmálsverkum; minnist Abrahams sem fyrirmynd trúar og undirstrikar að heilagur andi skapar innri breytingu sem ber sannan ávöxt.


Dagur 48 - Miklu meira en orðaskak
#78
08/11/2026

Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál.

Hann leggur áherslu á að fagnaðarerindið sé frá Kristi, réttlæting sé fyrir trú en ekki af verkum lögmálsins, og að frelsi í Kristi leiði til kærleiks og breyttrar lífsstefnu. 

Átökin voru miklu meira en orðaskak; þetta snerist ekki bara um orðanotkun.

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson


Dagur 47 - Denni og aðlaðandi velvild
#77
08/08/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið.

Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin. 

Lífið í Kristi er innan frá og út, ekki utan frá og inn. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson


Dagur 47 - Denni og aðlaðandi velvild
#76
08/08/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið.

Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin. 

Lífið í Kristi er innan frá og út, ekki utan frá og inn. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson


Dagur 47 - Aðlaðandi velvild
#76
08/07/2026

Velkomin í þáttinn "Biblían á mannamáli" þar sem við förum í Galatabréfið: ágreininginn um lögmálið, umskurnina, náðina og trúna. Páli er mikið niðri fyrir og færir sín rök á móti umskurnarsinnum. 

Rætt er um meginstefnu bréfsins — réttlæting fyrir trú, frelsi í Kristi í stað lögmáls, og það hvernig náð og heilagur andi umbreyta lífi trúaðra.


Dagur 46 - Það styttist í fyrsta bréfið
#75
08/04/2026

Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress. 

Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og lögmál Móse meðal ný-trúaðra og það styttist í það að Páll skrifi fyrsta bréfið sem finnst eftir hann í Nýja testamentinu. Páll skrifar bréfið til að verja fagnaðarerindið sem byggt er á Jesú Kristi einum - fagnaðarerindið sem hann boðaði.


Dagur 45 - Að sigra vígin
#74
07/31/2026

Þessi þáttur byggir á Sálmi 121 og hvetur okkur til að líta upp til Guðs þegar vandamál og háir múrar lífsins virðast óyfirstíganlegir. Sjónarhorn sögunnar er Jeríkó, þar sem Jósúa og þjóðin gekk og söng til að sjá kraft Guðs virka - en eitt er það sem margir missa af!

Síðan er það lokahnykkurinn um fleininn í holdi Páls — mótstöðu innan kirkjunnar og ásakanir gegn boðun hans — og minnir á að náð Guðs nægir.

Þátturinn sameinar sögulegar frásagnir og persónulega uppörvun: l...


Dagur 44 - Fleinn í holdið, en Náðin nægir
#73
07/28/2026

Velkomin í þáttinn „Biblían og mannamáli“ þar sem við ræðum um náðina, muninn á lögmáli og náð, og afleiðingar þess að meðtaka náð Krists í hjörtun. 

Við skoðum nokkur bréf Páls, til að finna þar ákveðið samhengi frásögunnar. Ekki síst skoðum við ágreininginn um umskurnina og „fleininn“ sem Páll barðist við og þá hvernig máttur Krists birtist í veikleika, þjáningum og umbótum.

Kjarni þáttarins: náðin er ekki réttlæting til að lifa syndugu lífi, heldur kraftur sem frelsar, læknar og breytir lífi fólks.


Dagur 43 - Fundur sem skipti sköpum
#72
07/24/2026

Þessi þáttur fjallar um 15. kafla Postulasögunnar: menn frá Júdeu krefjast umskurðar fyrir heiðna trúaða í Antíokkíu og spratt upp hörð deila milli umskurnarsinna og Páls og Barnabasar. Málið leiddi til fundar í Jerúsalem þar sem Pétur, Jakob og postularnir ræddu og ákváðu að ekki skyldi krafist umskurðar af heiðnum kristnum. 

Atburðirnir varpa ljósi á þau átök sem áttu sér stað um lögmálið og náðina, og mótun frumkirkjunnar.


Dagur 42 - Von í þjáningunni
#71
07/21/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli: við höldum áfram í Postulasögunni og skoðum áhrif kirkjunnar árin eftir dauða, upprisu og uppstigningu Krists.

Þátturinn tengir sálm 107 og þemu um lífið sem skóla kærleika; þjáningu sem tímabundna; og innri endurnýjun sem leiðir til eilífrar vonar.

Sögulínan fylgir Páli og Barnabasi í för þeirra og heimkomu til Antíokkíu. Þar segir einnig frá tilskipun Kládíusar, um brottrekstur Gyðinga frá Róm. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

 

 


Dagur 41 - Nær-dauða reynsla Páls postula
#70
07/18/2026

Þessi þáttur fjallar um ferðalag Páls og Barnabasar til Lýstru, þar sem þeir lækna lamaðan mann; eru ranglega dýrkaðir sem Seifur og Hermes; og Páll er síðan grýttur til dauða. 

Sagan kynnir einnig Tímóteus til sögunnar; lýsir því hvernig fyrstu kirkjurnar rísa, og tengir atburðina við bréf Páls síðar meir. 

Þátturinn skoðar líka þemu um nær-dauða reynslu, trú, þol, kærleika og það hvernig líf í Kristi breytir samfélagi og einstaklingum.


Dagur 40 - Davíð og týndi sonurinn
#69
07/13/2026

Þessi þáttur fjallar um það hvernig allir hrasa í lífinu og um mikilvægi þess að bregðast rétt við: viðurkenna mistök, rísa á fætur og treysta á náð Guðs til umbreytinga.

Út frá dæmisögunni um týnda soninn og frá broti úr lífi Davíðs konungs, getum við lært um eðli Guðs og hversu mikilvægt það er að vakna til lífsins innra fyrir - það leiðir til lífs í kærleika.


Dagur 39 - Barnabas og Sál leggja í hann
#68
06/26/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti höldum við áfram ferð okkar um Postulasöguna. Nú fylgjumst við með fyrstu trúboðsferðinni, til Antíokkíu í Pisidíu, Kýpur og Perge.

Við skoðum boðskapinn, mótspyrnu og kraftaverk — meðal annars snertingu á lífi fólks, eins og rómverska landsstjórans, Sergíusar Páls. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

[email protected]

 


Dagur 38 - Umskurnarmenn með þrýsting
#67
06/23/2026

Þessi þáttur segir frá vexti kirkjunnar í Antíokkíu (um 45–47 e.Kr.), hvernig Barnabas sækir Sál (Pál) til að þjálfa hann og byggja upp söfnuðinn. Í Antíokkíu er Jesúfólkið fyrst kallað kristið. Við fylgjumst með því hvernig hópur umskurnarmanna leggur hart að heiðin-kristnum, að halda lögmál Móse - og deilum sem af því hlutust, en líka jákvæðri niðurstöðu.

Við lesum einnig um gríðarlega mikilvæga bænastund, þar sem Heilagi Andi velur og sendir þá tvo, Barnabas og Sál, í trúboð út um allt rómverska ríkið. 


Dagur 37 - Allt að gerast og egóið að þvælast fyrir
#66
06/19/2026

Í þættinum er farið yfir kafla 11–12 í Postulasögunni: vöxt safnaðarins í Antíokkíu, Barnabas uppörvara og hvernig heiðingjar taka kristni við kraft anda Guðs. Agabus spámaður varar við hungursneyð og söfnun fer fram til aðstoðar Jesúfólkinu í Júdeu.

Þá er fjallað um ofsóknir Heródesar Agrippa, aftöku Jakobs, fangelsun Péturs og undraverða lausn hans — auk ígrundunar um egóið og kærleikann; boðskap Jesú til okkar allra. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

[email protected]

 


Dagur 36 - Antíokkía
#65
06/16/2026

Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Í Molanum er fjallað um sekt og sektarkennd, fyrirgefningu Guðs í Kristi og líf án fordæmingar. 

Við förum einnig yfir upphaf kristniboðs á grísk-rómversku svæðunum og sérstakt mikilvægi borgarinnar Antíokkíu, sem vöggu kristninnar utan Ísraels. Jesúfólkið umbylti öllu með nýrri sýn á samfélag fólks. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is

[email protected]

 


Dagur 35 - Pétur og Kornelíus
#64
06/12/2026

Í þessum þætti er sagt frá atburðum um árið 40 e.Kr.: Calígúla reyndi að valda uppnámi í Jerúsalem, sem ekki gekk eftir. Athyglin beinist að Pétri og heimsókn hans til Kornelíusar í Sesareu, þar sem hann prédikar um Jesú Krist.

Pétur fær mjög sterk og sérstök skilaboð, sem boða byltingarkennd viðhorf. - margir taka trú á Jesú Krist. Menningarmúrar falla og brýr byggjast milli fólks. Kærleikur Guðs er sameinandi kraftur. Ekki voru þó allir ánægðir. 

Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

www.halldorlar.is


Dagur 34 - Sál sér ljós af himni
#63
06/09/2026

Velkomin í Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Við förum um Nýja testamentið og erum nú í Postulasögunni: Sál hittir Jesús á veginum til Damaskus og umbreytist frá ofsækjanda í hetju trúarinnar. 

Þátturinn fjallar um ljósið af himni, sýnina, blinduna, Ananías og umbreytingu Sáls. Lykilatriði er tengingin milli Gamla og Nýja testamentisins. Nú er allt skoðað í ljósi Krists. 

Söguþráðurinn varpar ljósi á frumkirkjunna, kraft, djörfung og ofsóknir - sem á reyndar allt við enn þann dag í dag.