Ljósmæðrarýmið

32 Episodes
Subscribe

By: Hafdís og Oddný

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

✂️ Turn this podcast into clips
#32 Hanna Davíðsdóttir og hennar 3 fæðingar
#32 Hanna Davíðsdóttir og hennar 3 fæðingar episode artwork
#32
Yesterday at 9:38 PM

VARÚÐ - Vorum við að það er líklegt að þið krúttið yfir ykkur við hlustun á þætti dagsins! Krúttmundur mætti og bræddi alla í setti meðan mamma hans sagði okkur frá fæðingu sinni og systra sinna.


Hanna vissi alltaf að hún ætlaði að verða mamma og byrjaði ung að reyna. Lukkan var með þeim parinu og hafa þau eignast 2 stelpur og lítinn krúttkall sem mætti auðvitað með í Ljósmæðrarýmið.


Við elskum fæðingasögur og fyrir ykkur sem eruð sammála eru hér 3 flunku...


#31 Hvenær á ég að fara á fæðingarstað?
#31 Hvenær á ég að fara á fæðingarstað? episode artwork
10/29/2026

Það er stóra spurningin og í þessum þætti ætlum við að svara henni eftir bestu getu.

Af því að hver nennir að fara fram og til baka fram og til baka í upphafi fæðingar.... já og ekki viljum við óvæntar heima eða bílafæðingar... það er ekki beint ideal.

Það getur nefnilega verið fín lína á milli þess að fara of snemma og of seint, þannig að hvernig gerum við þetta?

Hlustaðu og njóttu


#30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró
#30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró episode artwork
#30
10/22/2026

Alexandra, oft kölluð Alexandra kíró (eða kannski erum það bara við?) kemur í Ljósmæðrarýmið og deilir með okkur sínum 2 fæðingasögum, tvær skemmtilegar og góðar sögur af því þegar 19 marka stúlkurnar hennar komu í heiminn.


Alexandra fer jafnframt yfir það sem hún gerir fyrir börn og konur á meðgöngu í sínu starfi og við mælum með hlustun fyrir ykkur sem eruð forvitin að heyra meira um kírópraktík fyrir ungabörn og konur á meðgöngu.


Við lofum skemmtun, gæsahúð og aukinni...


#29 5 ráð til að massa fæðinguna þína!
#29 5 ráð til að massa fæðinguna þína! episode artwork
10/15/2026

Hvernig geturðu undirbúið þig sem best fyrir stóra daginn?

Í þessum þætti deilum við okkar bestu ráðum, sem geta hjálpað þér að takast á við fæðinguna þína.

Við laumum mögulega á einu bónusráði með sem við viljum að allar verðandi mæður hafi í farteskinu.

Njóðið vel! 🤎


Þátturinn er í boði:
Kappahl
Natracare
Love to dream
Lovemade


#28 Fæðingarsögur Emblu
#28 Fæðingarsögur Emblu episode artwork
#27
10/08/2026

Varúð, fæðingarsögur dagsins gætu valdið alvarlegri gæsahúð!

Embla segir frá báðum fæðingunum sínum á einlægan, jákvæðan og fáránlega fyndinn hátt. Við þáttastjórnendastöllur hlógum allavega, táruðumst OG gæsahúðuðum allan tímann.


Þátturinn er í boði Kapphal, Natracare, Love to dream og lovemade, farið og nælið ykkur í lífræn gæðaföt, lífræn gæðabindi, gæða svefnpoka og lífrænan gæða barnamat


27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu
27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu episode artwork
10/01/2026

Þarftu að kaupa allan heiminn fyrir komu barnsins þíns?

Við segjum nei.

Hvað þarftu í alvöru að kaupa fyrir barnið þitt?

Í þessum þætti förum við yfir það sem er must have fyrir komu barnsins og hvað er nice to have, því það er stór munur þar á.

Við deilum okkar reynslu sem mæður og ljósmæður oooog erum mögulega með ákveðnar skoðanir á sumu!


Þátturinn er í boði Kappahl og Lovemade 🤎

Öndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu.


Vertu með okkur á Instagram:

⁠...


#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar
#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar episode artwork
09/03/2026

Í þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!

Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.

Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist.

Njótið vel 🤎


Vertu með okkur á Instagram:

⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠...


#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni?
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni? episode artwork
08/27/2026

Jákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨


Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄


Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í fæðingu.


Og svo… herðanuddið! 🙌 Sigríður deilir trixi sem virkaði ó...


#24 Fæðingarplan, er það sniðugt?
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt? episode artwork
08/21/2026

Þetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…?

Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt.


Linkur á myndband um öndun í fæðingu:

https://www.sofabordaelska.is/ondun


Vertu með okkur á Instagram:

⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠

⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠

⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠




#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar episode artwork
08/13/2026

Elsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar.

Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu?

Hvernig gengu þær fyrir sig?

Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni.

Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi...


#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita episode artwork
08/07/2026

Mænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu!


Vertu með okkur á Instagram:


#21 Hildur Grímsdóttir
#21 Hildur Grímsdóttir episode artwork
#21
07/30/2026

TW

Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.

Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba. 

Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keiml...


#20 Arna Ýr
#20 Arna Ýr episode artwork
#20
07/16/2026

Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. 

Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.

Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.

Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss me...


#19 Foreldrajátningar
#19 Foreldrajátningar episode artwork
#19
07/09/2026

Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu?

Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.



#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið episode artwork
07/02/2026

Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.

Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.

Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblást...


#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar episode artwork
06/25/2026

Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.

Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum.

Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst b...


#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara episode artwork
06/18/2026

Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni.


Vertu með okkur á Instagram:

<...


#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? episode artwork
06/11/2026

Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.

Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?

Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?

Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?

🎧 Njóttu vel!


Vertu með okkur á Instagram:

⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠

⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠

⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠


#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja?
#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? episode artwork
04/03/2026

Er þetta að byrja… eða ekki alveg strax?

Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.

Þegar líkaminn er að undi

rbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.

Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað.

Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum...


#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga
#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga episode artwork
03/26/2026

Í þessum þætti tókum við gott spjall.

Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu.

Þetta er meðal annars það sem við ræðum:

Fetal ejection reflexFylgjulosAf hverju við fórum í ljósmóðurfræðiHvað er skemmtilegast við vinnuna okkarSpangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hana

Við endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsögu

Léttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum.

Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið ge


#12 Örþáttur - Að missa vatnið
#12 Örþáttur - Að missa vatnið episode artwork
03/23/2026

Legvatnið fer… Hvað gerum við næst?

Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast?

Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst?

Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins.


Vertu með okkur á Instagram:

⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠

⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠

⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠


#11 Fæðingarsaga Sólbjartar
#11 Fæðingarsaga Sólbjartar episode artwork
03/19/2026

Sólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu.

Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð.

Hlustið og njótið!


Fylgist með okkur á Instagram:

⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠

⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠

⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

Sólbjört Sigurðardóttir


#10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu
#10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu episode artwork
03/16/2026

Vissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu?Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir?Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma?


Fylgist með okkur á Instagram:

⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠

⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠

⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠


#9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu
#9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu episode artwork
03/09/2026

Í þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart.


Við förum yfir:

- Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu

- Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sér


vernig hugurinn hefur áhrif á ferlið

- Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið

- Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðingu


Allt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að m


#8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal
#8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal episode artwork
03/02/2026

Hulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd.

Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng.

Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira.


Fylgist með okkur á Instagram:

⁠Ljósmæðrarýmið⁠

⁠Sofa borða elska⁠

⁠Oddný ljósmóðir

Hulda og heilsa


#7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar
#7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar episode artwork
02/23/2026

Katla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum.

Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi.

Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér.

Njótði vel!


Fylgist með okkur á Instagram:

⁠Ljósmæðrarýmið⁠

⁠Sofa borða elska⁠

⁠Oddný ljósmóðir

Systur og makar


#6 Fæðingarsögur Helgu Möggu
#6 Fæðingarsögur Helgu Möggu episode artwork
02/16/2026

Helga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur.

Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti.

Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar.


Fylgist með okkur á Instagram:

Ljósmæðrarýmið

Sofa borða elska

Oddný ljósmóðir

Helga Magga


#5 Örþáttur - Slímtappinn
#5 Örþáttur - Slímtappinn episode artwork
02/13/2026

Hvað er þessi slímtappi? Hvaðan kom hann og hvert er hann að fara? Hlustið til að vita meira.


Fylgist með okkur á Instagram:

Ljósmæðrarýmið

Sofa borða elska

Oddný ljósmóðir


#4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar
#4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar episode artwork
02/09/2026

Fyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp!

Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið.

Hér var ekkert skilið eftir. Hlustið og njótið.

Fylgið okkur á Instagram:

Ljósmæðrarýmið

Sofa borða elska

Oddný ljósmóðir


#3 Fæðingarsögur Hafdísar
#3 Fæðingarsögur Hafdísar episode artwork
02/01/2026

Í þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum.
Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu.

Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.


#2 Fæðingarsögur Oddnýjar
#2 Fæðingarsögur Oddnýjar episode artwork
02/01/2026

Í þessum þætti heyrum við fæðingarsögur Oddnýjar, annars þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins.
Hún deilir sínum upplifunum af sínum ólíku fæðingum, fyrsta með löngum aðdraganda og mænurótardeyfingu, annarri sem gerðist hraðar og svo þriðju í Björkinni.

Hún ræðir sína upplifun sem fæðandi kona en lítur líka til baka með ljósmæðragleraugun á sér.


#1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið?
#1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið? episode artwork
02/01/2026

Í þessum fyrsta þætti kynnum við okkur og deilum segjum ykkur frá því hvernig Ljósmæðrarýmið varð til.
Við ræðum hvernig orð og sögur geta haft lúmsk áhrif á viðhorf kvenna til fæðinga og hvers vegna okkur finnst mikilvægt að hækka rödd þeirra sem upplifa fæðingu sem jákvæða og styrkjandi.