Krakkaheimskviður

40 Episodes
Subscribe

By: RÚV Hlaðvörp

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.Umsjón: Karitas M. BjarkadóttirRitstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

✂️ Clip this podcast
Hrekkjavökuupphitun Krakkaheimskviða
Hrekkjavökuupphitun Krakkaheimskviða episode artwork
#8
Today at 6:00 AM

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við um allan heim og skoðum hrekkjavökutengdar fréttir. Hvers vegna eru graskerin minni í ár og hvernig býr maður til búninga? Það er hryllilegt stuð í þætti dagsins!

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Nýr íslenskur Nóbelsverðlaunahafi
Nýr íslenskur Nóbelsverðlaunahafi episode artwork
#7
10/17/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnumst við nýjasta Nóbelsverðlaunahafa Íslendinga, ljóðskáldinu Anne Carson. Hver er hún og hvers vegna býr hún á Íslandi? Við skoðum líka suður-afríska lögfræðinginn sem fékk friðarverðlaun Nóbels og hvað það er sem hún heldur að hafi landað henni þeim.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Heimsókn Marco Rubio og 40 ár frá leiðtogafundi
Heimsókn Marco Rubio og 40 ár frá leiðtogafundi episode artwork
#6
10/10/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða heyrum við af merkilegri heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands og tengslum hann við 40 ára gamla atburði.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Ný kattategund í fyrsta sinn í heila öld
Ný kattategund í fyrsta sinn í heila öld episode artwork
#5
10/03/2026

Í þessum þætti Krakkaheimkviða kynnumst við nýrri kattartegund, þeirri fyrstu sem finnst í meira en hundrað ár! Við skoðum heimkynnum hans og heyrum af því hvernig hann fannst og vísindamanninum sem rannsakaði hann.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen
Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen episode artwork
#4
09/26/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Ólympíumótið í skák sem lýkur nú um helgina. Vignir Vatnar, stórmeistari í skák og liðsmaður íslenska hópsins í Úsbekistan, er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Hvernig breytti 9/11 heiminum?
Hvernig breytti 9/11 heiminum? episode artwork
#3
09/19/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu þessir atburðir heiminum? Fréttamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson er viðmælandi þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Nýr kóngur í Noregi
Nýr kóngur í Noregi episode artwork
#2
09/12/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Sumarfréttir, ráðuneytiskötturinn Larry og hvað er framundan í haust?
Sumarfréttir, ráðuneytiskötturinn Larry og hvað er framundan í haust? episode artwork
#1
09/05/2026

Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti sumarsins fara Karitas og Birta yfir helstu fréttir sumarsins, kynnast forsætisráðuneytiskettinum Larry og skoða hvaða fréttamál eru framundan í haust.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Ránið á Louvre
SUMAR: Ránið á Louvre episode artwork
08/29/2026

Í næstu viku hefst ný þáttaröð af Krakkaheimskviðum. Í dag ætla ég þess vegna að rifja upp uppáhaldsfréttina mína frá síðasta vetri, um ránið á Louvre. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.



Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Evrópusambandið
SUMAR: Evrópusambandið episode artwork
08/22/2026

Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Saga símans
SUMAR: Saga símans episode artwork
08/15/2026

Vissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur  til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Sólmyrkvi
SUMAR: Sólmyrkvi episode artwork
08/08/2026

Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Aðför gegn transfólki
SUMAR: Aðför gegn transfólki episode artwork
08/01/2026

Næstu helgi er Reykjavík Pride, Gleðigangan sjálf. Af því tilefni er gott að kynna sér aftur bakslagið sem hefur orðið í réttindum hinsegin fólks, umfjöllun frá því í maí 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Eftirnöfn í Færeyjum
SUMAR: Eftirnöfn í Færeyjum episode artwork
07/25/2026

Í næstu viku - nánar tiltekið 28. og 29. júlí,  er þjóðhátíð Færeyinga og því er tilvalið að heyra aftur umfjöllun um eftirnafnahefð Færeyinga frá því í mars 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Umhverfisáhrif gervigreindar
SUMAR: Umhverfisáhrif gervigreindar episode artwork
07/18/2026

Í lok mánaðar, 28. júlí, er alþjóðadagur náttúruverndar. Af því tilefni rifjum við upp hver umhverfisáhrif gervigreindar eru í þætti frá því í febrúar 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Pöndur
SUMAR: Pöndur episode artwork
07/11/2026

Hvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: AirBNB-bann
SUMAR: AirBNB-bann episode artwork
07/04/2026

Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu
SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu episode artwork
06/27/2026

Breska þingið tilkynnti það fyrr í mánuðinum að það íhugaði samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára aldri. Lög af sama tagi tóku gildi í Ástralíu í desember, við rifjum upp þáttinn um þau í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop
SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop episode artwork
06/20/2026

20. júní, var liðið heilt ár frá því að Netflix-myndin K-Pop Demon Hunters kom út. Af því tilefni ætlum við að rifja upp sögu Kóreu og K-Pop frá því í haust.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar
Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar episode artwork
#38
06/13/2026

Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins!

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Stærsta HM í fótbolta sögunnar
Stærsta HM í fótbolta sögunnar episode artwork
#37
06/06/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Breytingar í Hollywood
Breytingar í Hollywood episode artwork
#36
05/30/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Feneyjatvíæringurinn
Feneyjatvíæringurinn episode artwork
#35
05/23/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld
17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld episode artwork
#34
05/16/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Eurovision og Attenborough
Eurovision og Attenborough episode artwork
#33
05/09/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Hvað er Evrópusambandið?
Hvað er Evrópusambandið? episode artwork
#32
05/02/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við Evrópusambandið, ESB. Það hefur verið mikið til umræðu, bæði í fyrri þáttum Krakkaheimskviða og meðal Íslendinga. Hvers vegna? Og hvað gerir þetta samband eiginlega? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Sögulegar kosningar í Ungverjalandi
Sögulegar kosningar í Ungverjalandi episode artwork
#31
04/25/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Artemis II og menn á tunglinu
Artemis II og menn á tunglinu episode artwork
#30
04/18/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Kosningar í Danmörku og Færeyjum
Kosningar í Danmörku og Færeyjum episode artwork
#29
04/11/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni?
Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni? episode artwork
#28
03/28/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Hvað er að gerast í Íran?
Hvað er að gerast í Íran? episode artwork
#27
03/21/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Apinn Punch og metár hjá LEGO
Apinn Punch og metár hjá LEGO episode artwork
#26
03/14/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


150 ár frá fyrsta símtalinu
150 ár frá fyrsta símtalinu episode artwork
#25
03/07/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Allt um ramadan
Allt um ramadan episode artwork
#24
02/28/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Pöndupólitík
Pöndupólitík episode artwork
#23
02/21/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas pöndupólitík, eða pöndudiplómasíu og sögu risapöndunnar. Útvarpskonan Vera Illugadóttir og doktorsneminn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir eru gestir þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Bad Bunny og Ofurskálin
Bad Bunny og Ofurskálin episode artwork
#22
02/14/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas Ofurskálina sem fór fram síðustu helgi, tónlistaratriði Púertó Ríkó-mannsins Bad Bunny og hvernig það tengist stjórnmálum í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn Ingunn Lára Kristjánsdóttir er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Vetrarólympíuleikarnar
Vetrarólympíuleikarnar episode artwork
#21
02/07/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Vetrarólympíuleikana sem hófust á föstudaginn. Karitas rekur sögu leikanna og ræðir um keppnisgreinarnar við íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


EM og saga handboltans
EM og saga handboltans episode artwork
#20
01/31/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Saga Grænlands og vilji Grænlendinga
Saga Grænlands og vilji Grænlendinga episode artwork
#19
01/24/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða einbeitir Karitas sér að Grænlandi. Hver er saga landsins, hvers vegna eru allir að tala um það og hvað vill Trump eiginlega? Fréttamaðurinn Hallgrímur Indriðason veit ýmislegt um málið.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.


Hvað er að gerast í Venesúela?
Hvað er að gerast í Venesúela? episode artwork
#18
01/17/2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Venesúela, hvað gerðist þar í byrjun árs og hvers vegna. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.