Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.
Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
Miðasala er hafin hér.
Húsið opnar kl.18:15
Fordrykkur og matur innifalinn.
Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.
Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins- Húmor og heilsaElísabet Reynis- Næring og heilsaHalldóra Skúla- Hormónar og heilsaKvöldið endar svo á sjúklega skemmti...Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?
Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega
sterkur líkami 💪🏻
sterkur hugur 🧠
sterk næring 🌱
sterk tengsl 🫶
= Sterk heild!
Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt.
Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.Prentaðu út blaðiðSkrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)Merktu við daglega.Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gama...
126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár.
Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.
✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨
Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekke...
125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm.
Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma.
Takk til ykkar sem hlustið og sé...
124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira.
Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar.
Einnig má finna verkefnið...
Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47)
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta!
Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju?
Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir.
Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum...
123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall.
Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuE...
Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn.
Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur...
122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira.
Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt.
Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita sér aðstoðar.
<...
121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu.
Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma.
Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra un...
Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni.
Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf?
Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spen...
120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2...
Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur.
„Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf.
Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og ska...
119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self.
Pia Marangoni’s InstagramThe Fiercely Fueled PodcastA huge shoutout to the podcasts sponsors:
💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle.
🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland s...
118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.
Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og ster...
117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko
In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health.
Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance.
She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life.
Follw Katie on Instagram
A huge shoutout to the podcasts sponsors:
💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and sel...
116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.
Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um...
Næringarpælingar og heilsulæsi í boði Erlu (Heilsumoli 43)
Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu.
Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum.
Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja góðar...
115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir
Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi.
Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á.
Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttar...
Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42)
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum.
Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum?
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið.
Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama.
Sérstakar þakkir fá samstarfs...
113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years.
Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving.
She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane from Iowa to Orlando several times a year...
112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira.
Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta heilsu sína og heilbrigði með fræðslu og ráðgjöf.
Hún hefur...
111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða.
Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna.
Lilja þurfti að taka þá erfiðu ákvörðun að flytja frá so...
110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir
Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu.
Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning se...
109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas
In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets.
Andrew emphasizes the need for education in making informed health choices and the benefits of innovative supplementation methods, particularly for children. He concludes with a call to embrace healthy choices and supplementation positively.
A...
108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar). Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda.
Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma.
Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar jafningjafræðari.
Hún tók fyrsta...
107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins). Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur
Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook.
Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu, ónæmiskerfinu, tilfinningum okkar, hugsunum, fyrr...
Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41)
Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum.
Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39)
Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40)
Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38)
Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað?
Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið.
Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða eftir að hvatningin hellist yfir þig því mögulega gerist það aldrei.
Í febrúar ætla ég að bj...
106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson
Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk.
Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði.
Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám í Læknisfræði og P-DTR meðferðinni sem bjargaði honum og hjálpaði honum...
Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 37)
Smá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 36)
Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun.
Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið.
En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn...
Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35)
Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er.
Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4.
Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 sek.
Fylgdu Heils
2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34)
Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag.
Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025.
Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar.
Öll eru velkomin og við ætlum að reyna að ná samtals 2026 ferðum í Himnastiganum þennan dag! Munið að margt smátt gerir eitt stórt.
Hægt verður að mæta hvenær sem er yfir daginn...
104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson
Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira.
Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook.
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
💙 -HEILSUHILLUNA. Gæti diges...
103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira.
Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár.
Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu.
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
💙 - HEILSUHILLUNA. Gæti dige...