Samstöðin

40 Episodes
Subscribe

By: Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

✂️ Turn this podcast into clips
Bridgeþátturinn - Parameistarar
Bridgeþátturinn - Parameistarar episode artwork
#1448
Today at 5:00 PM

Sunnudagurinn 4. október Bridgeþátturinn - Parameistarar Hjördís Sigurjónsdóttir-Kristján Blöndal eru ekki bara par í daglegu lífi, þau eru líka briddspar og hafa margoft náð frábærum árangri sem slík í bridds-íþróttinni, nú síðast um síðustu helgi þegar þau bættu við Íslandsmeistaratitli. Þau ræða við Björn Þorláks um spilið sem þau elska og besti Bridgeþáttar Samstöðvarinnar í dag eru að auki Magnús E. Magnússon og Matthías Imsland.


Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson
Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson episode artwork
#1447
Yesterday at 9:00 AM

Laugardagur 3. október Helgi-spjall: Stefán Pálsson Stefán Pálsson sagnfræðingur sem hefur verið áberandi í borgarmálunum er gestur Björns Þorlákssonar í helgi-spjalli. Stefán ræðir æsku sína og uppvöxt og sem mótar einstakling, svo sem Gettur betur!


Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40
Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40 episode artwork
#1449
Last Friday at 5:53 PM

Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40 Þær koma að Rauða borðinu, þær Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarkona, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Stefanía Silfá Sigurðardóttir nemi í blaðamennsku og Brynhildur Bolladóttir formaður samtaka um bíllausan lífsstíl og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af róandi lyfjum, upplausn, efnahagslegum sársauka, mislukkuðum aftökum, deilum og tilraunum til samtals.


Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi episode artwork
#1446
Last Thursday at 8:00 PM

Fimmtudagur 1. október Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kærði leyndina. Á sunnudag verða sýndar saman í Bíó Paradís heimildarmyndirnar Lalli Johns...


Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar episode artwork
#1445
Last Thursday at 10:38 AM

Miðvikudagur 30. september Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Rebecca Lív Biraghi barnastjarna og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona segja Gunnari Sm...


Græna borðið - 22. þáttur: Menntun til sjálfbærni
Græna borðið - 22. þáttur: Menntun til sjálfbærni episode artwork
#1444
Last Wednesday at 6:00 PM

Græna borðið 30. sept. - Menntun til sjálfbærni Afhverju er menntun til sjálfbærni mikilvæg? Er það fag? Græna borðið lítur til þess hvernig skólakerfið býr nemendur undir betri og sjálfbærari þróun í flóknum heimi. Snæ Humadóttir, nemandi, Svandís Egilsdóttir, kennari, Guðrún Schmidt, sérfræðingur í menntun til sjálfbærni og Guðni Olgeirsson frá menntamálaráðuneytinu, eru gestirnir. Björg Eva Erlendsdóttir sér um þáttinn.


Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar episode artwork
#1443
Last Tuesday at 8:00 PM

Þriðjudagur 29. september Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir...


Bókaborðið 29. september Gunnar Helgason - Barnabækur
Bókaborðið 29. september Gunnar Helgason - Barnabækur episode artwork
#1442
Last Tuesday at 6:00 PM

Bókaborðið 29. september Gunnar Helgason - Barnabækur


Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar
Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar episode artwork
#1441
Last Monday at 8:00 PM

Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir...


Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir episode artwork
#1440
09/27/2026

Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borg...


Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví
Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví episode artwork
#1438
09/26/2026

Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.


Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39 episode artwork
#1439
09/25/2026

Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.


Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók
Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók episode artwork
#1437
09/24/2026

Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára...


Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur: Fiskeldi í landi og sjó
Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur: Fiskeldi í landi og sjó episode artwork
#1436
09/24/2026

Fimmtudagur 24. september Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur Viðmælandi Grétars að þessu er Jón Kaldal, sem er félagi í  Íslenska náttúruverndarsjóðnum - The Icelandic Wildlife Fund.


Rauða borðið 23. sept - Kynjastríð, okur, Kína, Evrópa og áföll
Rauða borðið 23. sept - Kynjastríð, okur, Kína, Evrópa og áföll episode artwork
#1435
09/23/2026


Græna borðið - 21. þáttur - Þingheimur og grænu málin
Græna borðið - 21. þáttur - Þingheimur og grænu málin episode artwork
#1433
09/23/2026

Þriðjudagur 22. september Græna borðið - 21. þáttur Hvalveiðar verða stóra umhverfisdeilan á þingi í vetur. Gervigreind og gagnaver koma lítið til tals meðal Alþingismanna. Sefur þingheimur á sitt græna eyra? Hver ber ábyrgð á Seyðisfirði? Var gangsetning Vaðölduvers gleðistund? Þetta er meðal þess sem rætt var við Græna borðið þegar þær Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Ingveldur Anna Sigurðardóttir frá umhverfis- og samgöngunefnd settust niður með Andrési Inga og Krístínu Helgu til að ræða grænu málin á Alþingi á komandi vetri.


Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring
Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring episode artwork
#1434
09/22/2026

Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlist...


Bókaborðið - 2. þáttur: Hamraskáldin Þórunn og Yrsa
Bókaborðið - 2. þáttur: Hamraskáldin Þórunn og Yrsa episode artwork
#1432
09/22/2026

Þriðjudagur 22. september Bókaborðið - 2. þáttur Í þessum þætti tekur Brynhildur Björnsdóttir tali tengdamæðgurnar og MH- ingana Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Yrsu Þöll Gylfadóttur. Þær ræða starf rithöfundarins, stuttar og langar bækur, nýju bókina hennar Yrsu og námsárin sín í MH.


Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns
Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns episode artwork
#1431
09/21/2026

Mánudagur 21. september Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns Guðmundur Ari Sigurjónsson er með metnað til að verða varaformaður Samfylkingarinnar þrátt fyrir ungan aldur og stutta þingreynslu. Hann hefur áður hent sér út í djúpa laug og ræðir baráttuna, sigra og töp í samtali við Björn Þorláks. „Karlar hræðast mest að konan líti verr út en á myndinni, en konur hræðast að vera drepnar,“ segir Olga Björt Þórðardóttir, sem hefur opinberlega kallað eftir “góðum mönnum”. Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnunarráðgjafi hjá Gallup, miðlar ath...


Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík episode artwork
#1430
09/20/2026

Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigj...


Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind episode artwork
#1428
09/19/2026

Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á Alþingi og hvað henni þykir um Kristrúnu Frostadóttur.


Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38 episode artwork
#1429
09/18/2026

Föstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.


Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa
Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa episode artwork
#1427
09/17/2026

Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn vo...


Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna
Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna episode artwork
#1425
09/17/2026

Fimmtudagur 17. september Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur Viðmælendur Grétars eru að þessu sinni þeir Þórólfur Júlían Dagsson, strandveiðimaður, og Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis.


Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla
Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla episode artwork
#1426
09/17/2026

Miðvikudagur 16. september Græna borðið - 20. þáttur Þær Katrín Oddsdóttir og Benedikta Svavarsdóttir frá samtökunum Vá-félag um verndun fjarðar settust við Græna borðið ásamt Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Umræðuefnið var nýlegt leyfi sem fyrirtækinu Kaldvík fékk til laxeldis í Seyðisfirði. Þær lýsa meingallaðri stjórnsýslu sem dregur blygðunarlaust taum hagsmunaðila og hunsar almannahagsmuni. Þær boða kærur vegna þessara leyfisveitinga og vilja áfram vernda Seyðisfjörð og fólkið sem þar býr þrátt fyrir þetta áfall.


Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal episode artwork
#1424
09/16/2026

Miðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðag...


Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing episode artwork
#1422
09/15/2026

Þriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ás...


Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar?
Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar? episode artwork
#1423
09/15/2026

Þriðjudagur 15. september Bókaborðið - 1. þáttur Í þessum fyrsta þætti Bókaborðsins spjalla María Hjálmtýsdóttir og Eiríkur Ágúst Guðjónsson um fornbókabúðir fyrr og nú, bókasöfnun, verðmæti gamalla bóka, bókband og ýmislegt fleira tengt bókum sem gripum.


Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga episode artwork
#1421
09/14/2026

Mánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögm...


Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin
Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin episode artwork
#1417
09/13/2026

Sunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira.


Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál episode artwork
#1420
09/13/2026

Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdótt...


Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna
Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna episode artwork
#1418
09/12/2026

Laugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.


Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37
Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37 episode artwork
#1419
09/11/2026

Föstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.


Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni
Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni episode artwork
#1416
09/10/2026

Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bóka...


Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir episode artwork
#1415
09/09/2026

Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppis...


Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi?
Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? episode artwork
#1414
09/09/2026

Miðvikudagur 9. september Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? Ísland er frekur krakki í alþjóðastarfi sem vill undanþágur frekar en ábyrgð í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin gæti hafa misst atkvæði í eigin þjóðaratkvæðagreiðslu, með því að vera í PR-kór hagsmunaafla sem sleppa sem léttast frá loftslagsaðgerðum. Loftslagið bar hæst í fyrsta Græna borði haustsins. Gestir: Andrés Ingi Jónsson, Árni Finnsson, Kristín Vala Ragnarsdóttir. Stjórnandi. Björg Eva Erlendsdóttir.


Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar
Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar episode artwork
#1413
09/08/2026

Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er a...


Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi episode artwork
#1412
09/07/2026

Mánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda...


Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
Synir Egils 6. sept -  Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi episode artwork
#1411
09/06/2026

Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pól


Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa
Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa episode artwork
#1409
09/05/2026

Laugardagur 5. september Helgi-spjall: Guðrún Ágústa Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða við Grensásveg en flutningur þangað stöðvaður á síðustu stundu. Þetta og svo margt annað ber á góma.