Út að hlaupa

40 Episodes
Subscribe

By: Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

✂️ Turn this podcast into clips
#145 Líkaminn lýgur aldrei!
#145 Líkaminn lýgur aldrei! episode artwork
Today at 2:39 PM

Fórum yfir Valencia blokkina, gerðum upp powerade hlaupið og jöppuðum um hlaup á íslensku!


#144 Brjálaðir hundar og klikkaðir ökumenn!
#144 Brjálaðir hundar og klikkaðir ökumenn! episode artwork
Last Wednesday at 7:00 AM

Það var maraþonþema í Bose stúdíóinu í dag, töluðum um Valencia blokkina, NY maraþonið og veltum því fyrir okkur hvort við værum farin að hafa það of gott. Umræðunni varðandi dvínandi skráningu í hlaup verður svarað í þættinum ásamt ótrúlega mörgu öðru!


#143 Þáttur á góðri Ýslensku!
#143 Þáttur á góðri Ýslensku! episode artwork
10/30/2026

Það er endalaust hægt að tala um hlaup. Ný æfingavika býður upp á nýjar áskoranir, nýjar hugleiðingar, nýjar vörður til þess að láta sig hlakka til aftur og aftur og aftur!


#142 Korean BBQ!
#142 Korean BBQ! episode artwork
10/27/2026

Bose stúdíóið var stútfullt af meðlimum Út að hlaupa að þessu sinni. Kóresk skýrsla, bakgarðurinn gerður upp, hvað þarftu að hlaupa mikið til þess að kalla þig hlaupara? 


#141 Bakgarðslandsliðið!
#141 Bakgarðslandsliðið! episode artwork
10/15/2026

Þórdís Jóns og Tommi Jac mættu í Bose stúdíóið og ræddu komandi landsliðskeppni í bakgarðshlaupum! 


#140 Sumarið gert upp!
#140 Sumarið gert upp! episode artwork
10/10/2026

Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!


#139 Gamli góði þátturinn!
#139 Gamli góði þátturinn! episode artwork
09/22/2026

Köben half gert upp frá okkar manni, Tobbi með Slóvenska skýrslu og bakgarðurinn búinn að eignast nýjan bad boy!


#138 Nýtt Supermantrend!
#138 Nýtt Supermantrend! episode artwork
09/18/2026

Uppgjörið á íslandi, Kaupmannahafnarmaraþonið, bakgarðsupphitun og spurt og svarað frá hlustendum!


#137 Einvígið á Vatnsendanum!
#137 Einvígið á Vatnsendanum! episode artwork
09/08/2026

Dorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag!


#136 Hefur þú farið á Esjuna?
#136 Hefur þú farið á Esjuna? episode artwork
08/31/2026

Eldheitar Esju umræður, UTMB gert upp ásamt glóðvolgum hugleiðingum varðandi zone tvö. 


#135 Hlaupasumarið búið?
#135 Hlaupasumarið búið? episode artwork
08/26/2026

Fórum yfir Reykjavíkurmaraþonið, ræddum við ísmanninn um nýtt íslandsmet og hvernig bicarb hefur áhrif á hann ásamt góðri skýrslu frá hlaupadagskrá.is.


#134 Reykjavíkurmaraþon pepp!
#134 Reykjavíkurmaraþon pepp! episode artwork
08/17/2026

Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum árangur íslendinga á EM og hituðum ykkur vel upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið! 

 

 


#133 Endurkoman
#133 Endurkoman episode artwork
08/11/2026

Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir stutt og gott sumarfrí. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum endurkomu Kingebrigtsen á brautina og framhaldið í hlaupum um allan heim! 


#132 Súldin styrkir!
#132 Súldin styrkir! episode artwork
07/24/2026

Við fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar skemmtilegum segmentum! 


#131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn!
#131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn! episode artwork
07/23/2026

Við fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig hann tekst á við stærstu keppnir í heimi! 


#130 Laugavegs uppgjör!
#130 Laugavegs uppgjör! episode artwork
07/13/2026

Í þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn. 


#129 Laugavegs upphitun!
#129 Laugavegs upphitun! episode artwork
07/07/2026

Allt sem þú þarft að vita um Laugaveginn!


#128 Elísa elskar Ítalíu!
#128 Elísa elskar Ítalíu! episode artwork
07/02/2026

Elísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu! 


#127 Ísmaðurinn - alltaf í formi!
#127 Ísmaðurinn - alltaf í formi! episode artwork
06/18/2026

Fengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi! 


#126 EM uppgjör!
#126 EM uppgjör! episode artwork
06/10/2026

Við vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands! 


#125 Þú fokkar ekki í landsliðinu!
#125 Þú fokkar ekki í landsliðinu! episode artwork
05/27/2026

Andrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal! 


#124 Tove Tvennan!
#124 Tove Tvennan! episode artwork
05/18/2026

Tove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu. 


#123 Búinn að krakka hlaupin!
#123 Búinn að krakka hlaupin! episode artwork
05/13/2026

Allt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.


#122 Bolirnir mættir!
#122 Bolirnir mættir! episode artwork
05/08/2026

Við strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann! 


#121 Puffin run upphitun!
#121 Puffin run upphitun! episode artwork
04/29/2026

Uppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið! 


#120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli!
#120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli! episode artwork
04/28/2026

Magnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!


#119 Gott hugarform!
#119 Gott hugarform! episode artwork
04/22/2026

Nú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins! 


#118 Apríl þrennan!
#118 Apríl þrennan! episode artwork
04/09/2026

Í þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi! 


#117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða!
#117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða! episode artwork
03/31/2026

Hin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík...


#116 DNF aftur elskan mín?
#116 DNF aftur elskan mín? episode artwork
03/27/2026

Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur!

ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun! 

15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta
Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt.
Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin.
Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar m...


#115 Tilbúinn að slá Íslandsmet!
#115 Tilbúinn að slá Íslandsmet! episode artwork
03/20/2026

Við fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover! 


#114 Orðlaus á Azores!
#114 Orðlaus á Azores! episode artwork
03/19/2026

Hugleiðingar, hlaupauppgjör síðustu hlaupa, íslandsmet og endurkomur. Glóðvolg skýrsla frá Azores eyjum. Hvað viljið þið meira?


#113 Winter is where it starts!
#113 Winter is where it starts! episode artwork
02/26/2026

Við Út að hlaupa bræður fórum yfir síðustu æfingar og það sem framundan er. Heyrðum í Arnari Péturs sem er að undirbúa sig fyrir 100 km hlaup í Slóveníu eftir mánuð og fórum yfir góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri!


#112 Spikfeitur Latsi - Return of the king!
#112 Spikfeitur Latsi - Return of the king! episode artwork
02/18/2026

King Latsi mætti í Bose stúdíóið og lokaði næringarþríleiknum stóra með spikfeitum þætti um fitu! 


#111 Kóngamove að vera með rennt frá!
#111 Kóngamove að vera með rennt frá! episode artwork
02/14/2026

Við ræddum landsliðsvalið fyrir EM í Kamnik, fórum yfir síðasta powerade, vorum með spikfeitann Strava lið og fórum yfir góð ráð hvað varðar næringu fyrir stóru keppnina þína! 


#110 Strava, snilld eða kvíðavaldandi montsíða?
#110 Strava, snilld eða kvíðavaldandi montsíða? episode artwork
02/03/2026

Fengum sjóðandi hot takes úr hlaupaheiminum frá Árdísi Ilmi, fórum yfir síðustu hlaup og ræddum spennandi keppnir framtíðarinnar! 


#109 Hjólahjónin mætt í hlaupaskóna!
#109 Hjólahjónin mætt í hlaupaskóna! episode artwork
01/27/2026

Ágústa Edda Björnsdóttir og Eyjólfur Guðgeirsson mættu til okkar í Bose stúdíóið og ræddu það hvernig umbreyting úr hjólara yfir í hlaupara á sér stað, gáfu hlaupurum frábær ráð varðandi það að æfa á hjóli og rifjuðu upp stórskemmtilegar keppnissögur frá ferlinum! 


#108 Hlaup, mikilvægasti hlutur í heimi sem skiptir engu máli!
#108 Hlaup, mikilvægasti hlutur í heimi sem skiptir engu máli! episode artwork
01/21/2026

Við fengum skýrslu frá Gurru Magg, ræddum Youtube rás Út að hlaupa og framhaldið þar, ræddum kórónusjúka Elísu á Tene og fórum yfir heilræði frá Zach Miller! 


#107 Smart íslandsmet
#107 Smart íslandsmet episode artwork
01/12/2026

Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir dvöl erlendis. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima og erlendis. Ræddum ótrúlegt íslandsmet Baldvins í Valencia, fórum yfir góð ráð hvernig best er að æfa yfir vetrartímann og slóum á hina margfrægu léttu strengi! 


#106 Hlaupaannállinn mikli 2025!
#106 Hlaupaannállinn mikli 2025! episode artwork
12/30/2025

Marteinn fékk Guðfinnu og Bibbu til að gera upp hlaupaárið með sér. Þau fóru um víðan völl, ræddu meðal annars samfélagsmiðla, hlaupasumarið, spáðu fyrir tímabilinu 2026 og slógu á rosalega marga létta strengi, enda enga þunga strengi að finna í Bose stúdíóinu!