Hlaðvarp Myntkaupa

40 Episodes
Subscribe

By: Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

✂️ Clip this podcast
Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k
Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k episode artwork
#130
Yesterday at 7:00 PM

Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að talsverður stuðningur er við 80k verðmiðann. Hvort hann haldi verður að fá að koma í ljós, en mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í lok vikunnar setti strik í reikninginn. Þá er farið yfir helstu fréttir, þar með talið bálkakeðjuverkefni JP Morgan og HSBC.


Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum
Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum episode artwork
#129
10/17/2026

Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr kauphallarsjóðunum, einkum ETH. Nýjar raddir heyrast í umræðunni um gervigreind og benda á að ekki sé tilefni til óðagots. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto?
Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto? episode artwork
#127
10/11/2026

Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr þeim í október. Aðalfrétt vikunnar er þó án efa sú að OpenAi birti upplýsingar um að óútgefin gervigreind á vegum þeirra hefur náð áður óhugsandi árangri við að leysa stærðfræðivandamál sem mönnum hefur ekki tekist að leysa. Í kjölfarið hafa vaknað áhyggjur um hvort gervigreind gæti leyst þá dulritun sem verndar cryptoveski. Rætt er talsvert um þetta og margt fleira í þessum þætti.


Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða
Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða episode artwork
#125
10/03/2026

Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á rafmyntamörkuðum. Táknvæðing verðbréfa heldur áfram af fullum þunga. Einnig var farið yfir nokkrar makró efnahagstölur og margt fleira.


Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi
Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi episode artwork
#126
09/26/2026

Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í umræðunni og nýjar fréttir um samstarf stórra aðila vekja athygli. Þá valdi Björn einnig skemmtilega bók í hinu mánaðarlega bókahorni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?" episode artwork
#124
09/19/2026

Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá...


Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?
Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd? episode artwork
09/12/2026

Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í


Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k
Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k episode artwork
#124
09/05/2026

Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.


Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst
Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst episode artwork
#123
08/29/2026

Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.


Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k
Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k episode artwork
#122
08/22/2026

Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.


Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni
Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni episode artwork
#122
08/15/2026

Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár
Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár episode artwork
#121
08/08/2026

Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard
Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard episode artwork
#121
08/01/2026

Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuld


Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans
Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans episode artwork
#120
07/25/2026

Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.


Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin
Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin episode artwork
#118
07/18/2026

Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta crypto


Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k
Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k episode artwork
#118
07/11/2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?
Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það? episode artwork
#117
07/04/2026

Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er bókahorn og margt


Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing
Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing episode artwork
#117
06/27/2026

Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en svo að hægt sé að leysa öll heimsins vandamál með því að beita einfaldri hugmyndafræði. Þetta og margt fleira í þessu skemmtilega spjalli.


Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy
Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy episode artwork
#114
06/21/2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar markaðir hafa lækkað verulega, að hleypa lífi í markaðinn með lækkun vaxta og öðrum tilslökunum. Warsh sagði að fjárfestar skyldu ekki treysta á slík inngrip. Þá...


Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?
Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn? episode artwork
#116
06/13/2026

Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tveggja bjarnarmarkaða og varpar fram spurningunni hvort eitthvað megi læra af sögunni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k
Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k episode artwork
#114
06/06/2026

Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir reyna á jafnvel reyndustu fjárfesta og spurningin sem allir þátttakendur ættu að spyrja sig er einfaldlega: Hef ég trú á þessu fyrirbæri til framtíð


Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k
Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k episode artwork
#115
05/30/2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsvert um Ethereum og ýmsar vendingar þar á bæ í bókahorninu.


Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný
Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný episode artwork
#114
05/23/2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu
Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu episode artwork
#113
05/16/2026

Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity frumvarpið var afgreitt úr bankanefnd öldungardeildarinnar með 15 atkvæðum gegn 9. Í kjölfarið þykja líkurnar hafa aukist allverulega á að lagasetning sé innan seilingar og virðist markaðurinn...


Ætlar Michael Saylor að selja BTC??
Ætlar Michael Saylor að selja BTC?? episode artwork
#113
05/09/2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa að Michael Saylor, dyggasti kaupandi og talsmaður Bitcoin, sem hefur jafnframt ávallt haldið því fram að hann muni aldrei selja Bitcoin, virðist hafa skipt um skoðun. Hverni


Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl
Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl episode artwork
#112
05/02/2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.


Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi
Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi episode artwork
#112
04/25/2026

Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverulega sé hægt að treysta dreifstýrðum fjármálalausnum eða hvort bæta þurfi öryggi enn frekar áður en slíkt traust er verðskuldað.


S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k
S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k episode artwork
#111
04/18/2026

Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.


Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði
Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði episode artwork
#102
04/11/2026

Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver Satoshi Nakamoto er.


Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins
Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins episode artwork
#111
04/04/2026

Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa takmarkað við markaðnum eins og sakir standa, en það verður að teljast stórfrétt að Morgan Stanley, einn stærsti bankinn í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að veðja á Bitcoin. Hefur bankinn nú opnað fyrir sinn eigin BTC kauphallarsjóð á betri kjörum en allir samkeppnisaðilar. Segja má að fréttnæma...


Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu?
Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu? episode artwork
#111
03/28/2026

Síðastliðinn föstudag bárust jákvæðar fréttir af framgangi Clarity frumvarpsins þess efnis að það yrði brátt samþykkt án þess að takmarka rétt crypto fyrirtækja til að greiða viðskiptavinum vexti á stöðugleikamyntir. Markaðurinn brást við með talsverðum hækkunum þvert yfir helstu rafmyntir. Nokkrum dögum síðar kom í ljós að þessar fréttir stóðust ekki nánari skoðun og gengu hækkanirnar til baka og rúmlega það. Þá virðist markaðurinn ekki leggja mikið traust í friðarviðræður Bandaríkjanna við Íran og má merkja það bersýnilega á hækkun...


Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur
Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur episode artwork
#109
03/21/2026

Í þessum þætti halda þeir félagar áfram að fjalla um bjarnarmarkaðinn. Í vikunni átti sér stað klassískt "bear market pump" þegar BTC fór í 76k, sem var síðan selt rakleiðis niður aftur. Fjallað er um afstöðu Seðlabankans í Bandaríkjunum um framtíðarhorfur í efnahagsmálum, Michael Saylor og Strategy, önnur BTC "Treasury" fyrirtæki, og margt fleira.


Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum?
Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum? episode artwork
#107
03/14/2026

Fear and Greed mælikvarðinn hefur verið fastur vikum saman í "Extreme Fear" en mælist nú í um 30, eða "Fear". Sannleikurinn er þó áfram sá að Bitcoin og rafmyntamarkaðurinn í heild sinni er ekki sannfærandi og virðist sem margir reikni með því að botninn sé ekki að baki enn. Björn og Kjartan eiga samtal um hvernig þetta blasir allt við þeim, ásamt því að fara yfir helstu fréttir markaðarins.


Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k
Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k episode artwork
#106
03/07/2026

Í þessum þætti fjalla þeir félagar einkum um Clarity Act og ummæli Trump, en hann birti þráð í vikunni þar sem hann sagði að þingið verði að samþykkja Clarity Act og hundsa kröfur banka þar í landi um að rafmyntafyrirtækjum verði meinað að greiða vexti af stöðugleikamyntum. Sömuleiðis var frétt um að Trump hefði fundað með Brian Armstrong, forstjóra Coinbase. Þessi þáttur er fyrsti sinnar tegundar í Hlaðvarpi Myntkaupa, en Björn var staddur í Alicante meðan á upptökum stóð.


Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið?
Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið? episode artwork
#105
02/28/2026

Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð Bitcoin niður með daglegri sölu gífurlegs magns af Bitcoin, sem hefði hætt frá og með málsókninni. Bitcoin og aðrar rafmyntir hækkuðu gríðarlega í verði við þetta, en nú glímir markaðurinn við spurninguna: Er eitthva...


Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný?
Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný? episode artwork
#104
02/21/2026

Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í samræður um þær gríðarlegu tækniframfarir sem hafa átt sér stað undanfarið á sviði gervigreindar og er sú tilgáta viðruð, og ekki í fyrsta sinn, að hér sé um að ræða eina helstu skýringu þess að rafmyntamarkaðurinn fær ekki mikla athygli hjá fjárfestum um þessar mundir; þeir eru e...


Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu?
Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu? episode artwork
#103
02/14/2026

Bjarnarmarkaðurinn heldur áfram að sannreyna tilvist sína en rafmyntir, margar hverjar, glíma við spurningar um hvernig þær réttlæta tilvist sína sem tækni og eignaflokkur. Ef Bitcoin er áhættuvörn eða eign sem er til þess fallin að verja verðmæti yfir lengri tíma af hverju er myntin þá um 50% niður á meðan gull hefur átt methækkanir að baki undanfarið? Hvernig nákvæmlega er bálkakeðjutæknin að fara að nýtast í heimi framtíðarinnar þar sem gervigreindin mun mögulega gerbreyta núverandi heimsmynd? Og hvar eiginlega er botninn í öllum þessum læk...


Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði
Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði episode artwork
#102
02/07/2026

Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um skamma hríð undir 70$ og sömu sögu mátti segja um flestar aðrar rafmyntir. Hræðsla mældist í 5 í Fear & Greed vísitölunni og hefur þetta reynt á andlegu hliðina hjá jafnvel reyndustu fjárfestum. Í þessum þætti reyna þeir félagar, Björn og Kjartan, eftir fremsta megni að ná utan um hvað...


Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world"
Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world" episode artwork
#101
01/24/2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um áframhaldandi lægð á rafmyntamörkuðum. Enn ríkir óvissa um lögmæti tolla Trumps, en reiknað var með niðurstöðu Hæstaréttar í þeim efnum um miðjan janúar. Þeirri niðurstöðu hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma, en almennt er búist við að hún muni liggja fyrir í febrúar. Þá hafa áhyggjur um efnahagsmál og stýrivexti í Japan enn á ný vaknað með tilheyrandi áhrifum á gengi rafmynta. Loks er talsvert rætt um viðburð World Economic Forum í Davos, en þar talaði Trump í rúma klukkustund.


Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act?
Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act? episode artwork
#100
01/17/2026

Í þessum þætti var sjónum einkum beint að tveimur viðfangsefnum. Annars vegar er rætt um nýhafna sakamálarannsókn gagnvart Jerome Powell vegna óhemju mikils kostnaðar á endurbótum við byggingu seðlabankans. Hins vegar er rætt um áhyggjur sem hafa verið opinberaðar, meðal annars af hálfu Brian Armstrong, forstjóra Coinbase, vegna CLARITY frumvarpsins sem markaðurinn hefur bundið miklar vonir við að skerpi á lagalegri stöðu rafmyntamarkaðarins og auki traust fjármálakerfisins á rafmyntum. Einnig er rætt um nýlegar verðbólgutölur í Bandaríkjunum og margt fleira.