Svörtu tungurnar

40 Episodes
Subscribe

By: Hljóðkirkjan

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

✂️ Clip this podcast
#0120 - Kósýgalli!
#142
Today at 2:54 PM

Þátturinn er í boði Malbygg

Sennilega átti þátturinn upphaflega að hafa skýrari stefnu en raunin varð. Útkoman er engu að síður lífrænt spjall sem fæddist í beinni. Outgunned, Gurps, Cyberpunk, Dune, allskonar fleira og hellingur af tilfinningum og hlátri frá fjórum Svörtum tungum með svartar sálir.

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

Insta: www...


#0119 - Byrjendaráð og samkoma galdra.
#141
10/23/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

Hvernig myndu svörtu tungurnar mæla með að feta sín fyrstu spor í hlutverkaspilum? Er 5e mest straumlínulagaða byrjendakerfið eða eitthvað annað? hvað finnst ykkur? Það getur reynst erfitt að spila fyrsta spilið nema kannski undir leiðsögn þeirra sem hafa fetað sama veg. Veg ljóssins. Amen.

Samkoma galdranna, er það eitthvað á brauð? Sumir vilja meina það. 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okka...


#0118 - Allir vegir liggja til Ibiza
#140
10/14/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

Hvenær verða menn miðaldra? Er það ekki hugurinn og andinn sem tekur okkur hálfa leið og hvert þá? Nú til Ibiza. Er djúp sjöu Ibiza rétta meðalið og er Gurps kerfið gott munnskol til að hreinsa kverkarnar og hlægja mikið?

Við förum yfir persónu sköpun og sögusviðið fyrir komandi marghleypu og þetta er eitthvað sem við mælum með að gera. tala saman og búa til heiminn og tengingar.

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okk...


#0117 Mandela effect og djúp sjöa á Ibiza
#139
10/03/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

Lúlli reynir eins og hann getur að segja frá Mandela effect og því fylgir saga um gamla konu frá Grindarvík. 

Strahd er dauður! Hvað tekur við? við þráum ekkert meira en að komast til sólarlanda þar sem er engin þoka og engin vampíra sem er að kljást við eigin tilfinningar. Silfurskotturnar tala saman um hvað þeir væru helst til að spila eftir 5 ára þrautagöngu í myrkrinu. Við getum lofað því að það verður bjart, sexý og sól innifalið.

Endilega takið þátt í umræðum og segið y...


#0116 - Kapitalismi og Crack Cocaine (Týndi þátturinn)
#138
09/23/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

Eitt sinn í dimmu hlapvarpsherbergi tóku 4 tungur upp þátt. Stuttu seinna þegar búið var að ganga frá þættinum hvarf hann og enginn vissi hvað hefði orðið af honum. En svo kom í ljós að slæm nafnagift þáttarins gerði það að verkum að hann sogaðist inn í Aðra vídd. Nýji klippi drýsillinn sem er vanur Víddaflakkari fann hann svo, einmana með enga von í brjósti. Og hér er hann mættur.

Er Kapitalisminn að gera útaf við okkur? Ratar siðrofið inn í spilaheim spilaranna? hvernig kveðj...


#0115 Nútíminn og Núvitund
#137
09/15/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Við erum komnir til baka úr sumarfríi!

Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í andskotanum eru Vitkarnir (öll kyn leyfð) að spá með að draga World of warcraft og Star Wars uppá borð? Verður Dark Sun okkar dnd Opus? 

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla ok...


#0114 Sumarspil eða gervigreind
#136
07/14/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí!

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmti...


#0113 - Einhleypa í Borgó
#135
06/09/2026

#0113

Þátturinn er í boði Malbygg.

  Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis?

 

Mættir voru

Tryggvi

Hlynur

Hannes

Bjössi 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins
#134
05/26/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó.

Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af s...


#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans
#133
05/19/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary.

 

Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera?

Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli velti...


#0110 Beggi Brugg
#132
05/12/2026

 

 #0110

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl.

 

Hlustið og þér munið heyra!

 

 

Mættir voru

 

Lúlli
Beggi

Bjarni

Hilmir 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson
#131
04/28/2026

 #0109

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar.

 

Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra!

 

 

Mættir voru

 

Lúlli
Hannes

Tryggvi 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: ww


#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna
#130
04/21/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter.

Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins...


#0107 Hart og mjúkt
#129
04/14/2026

 #0107

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman. 

 

Mættir voru

 

Lúlli
Hilmir

Bjarni

Hlynur

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0106 Þroskað malbygg, ríða og deyja fyrir þema
#128
03/31/2026

 #0106

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka vel!

 

Mættir voru

 

Hilmir

Bjarni

Lúlli

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0105 Tjékkinn
#127
03/18/2026

 #0105

 

Þátturinn er í boði  Malbygg.

 

Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í Silfurskottunum að tjékka okkur inn fyrir spil. Við mælum með, hefur góð áhrif á geðheilsu og vinskap.
Njótið vel.

 

Mættir voru

 

Hilmir

Tryggvi 

Bjarni

Hlynur

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á


#2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur
#126
02/03/2026

Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg. 

 

Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg.
Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum. 

 

Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli.

Tónlist: Crown of Madness

Flytjandi: Scorching Ray Taylor

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykka...


#0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo!
#125
01/29/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum…

Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? O...


#2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir
#124
01/22/2026

Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

 

Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu.

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes

Tónlist: Gust of Wind

Flytjandi: Scorching Ray Taylor

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar sko...


#0103 Tvær Tungur: Skoplegur blær
#123
01/13/2026

Þátturinn er í boði Malbygg

  Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki.   Ok. Kannski ekki fyrst og fremst. En það var allavega hugmyndin og þeir svo sannarlega gera það þegar þeir loksins koma sér að efninu. Hvers konar tölvuleik myndu ÞEIR vilja búa til? Er þetta enn einn "open world" leikurinn á borð við Fallout 3 eða Read Dead Redemption? Eða kannski skotleikur? Eða jafnvel ævintýraleikur í ætt við Monkey Island og Day of...


#2.2 Fallistarnir - Hinir tossarnir
#122
12/23/2025

Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi eftir á vaktinni í Akademíunni. 

Þetta er seinni hluti af fyrsta þætti. 

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Mættir eru: Tryggvi, Hilmir og Lúlli.

Tónlist: Silvery Barbs

Flytjandi: Scorching Ray Taylor

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

<...


#2.1 Fallistarnir - Tossarnir í Taskíu
#121
12/16/2025

Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.

Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna.

Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á meðan varðsveitir Batterísins reyna að komast að því hvað það er, er verkefni Fallistanna einfalt: Ekki vera fyrir og ekki klúðra þessu (eins og þeir gera alltaf). 

Þetta er fyrri hluti af fyrsta þætti. 

 

Þátturinn er í boði Malbygg.

 

Mættir eru: Tryggvi, Hannes og Bjarni.

Tónlist: Wish

Flytjandi: Scor...


#0102 Prepp og pepp - partur tvö
#120
12/09/2025

Seinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar.

 

Svo köstum við uppá tölur og reiknum...

...sem er frábært podcast efni!

 

Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

Insta: www.instagram.co...


#0101 Tvær Tungur: Sagan af Kristjáni Kristjánssyni handboltaþjálfa
#119
12/02/2025

Þátturinn er í boði Malbygg

  Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða þráhyggja er þetta að vera að segja endalausar sögur af hlutunum? Spila spunaspil, leika leikrit, gera hlaðvörp, skrifa ævintýri, handrit, bækur? Er þetta ein af grunnþörfum manneskjunnar? Eða erum við bara ólæknandi kjaftatuskur?   Og hver var þessi dularfulli maður sem veittist að Birni Stefánssyni í Hagkaup í Garðabæ? Hver er hans saga?  

Endilega takið þátt í...


#0100 Tvær Tungur: Verðlagning tímans eða Hreint eldhús - betra líf
#118
11/22/2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

  Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til ykkar sem hafið lagt á hlustir!   Í þetta skiptið setjast tveir týndir synir niður og ræða málin. Bjössi og Hjörtur hafa verið fjarverandi bæði þáttum og spilum alltof alltof lengi. Afhverju í ósköpunum? Hvers vegna dettur maður úr takti við eitthvað sem maður elskar? Hvað er það sem fær mann til að vanrækja hluti sem maður veit að eru mikilvægir? Þega...


#0099 Prepp og pepp
#117
11/13/2025

 

 #0099

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í sameiningu til borgina og samfélagið sem verður sögusvið ævintýrisins.

 
Hér má sjá kortið borginni.

https://ibb.co/fz3VN64R

 

 

Mættir voru

 

Hilmir

Tryggvi 

Bjarni

 

 

Takið þátt í umræðum og s...


#0098 Ævintýri í vændum
#116
10/28/2025

 #0098

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Í þessari viku settust strákarnir niður og ræddu hvað væri framundan í hlaðvarpinu okkar.

 

 

Mættir voru

 

Hilmir

Hannes

Tryggvi 

Bjarni

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0097 Gestur | Mike Pohjola
#115
10/14/2025

 #0097

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Það var okkur heiður að fá hinn Finnska meistara Mike Pohjola í heimsókn til okkar. Mike er rithöfundur, handritshöfundur, leikjahönnuður, frumkvöðull, aktívisti og menningarfræðingur, svo eitthvað sé nefnt. En hann er líka mikill spunaspilari, LARP-ari og maðurinn á bakvið The Turku School.

 

https://mikepohjola.fi/

 

Mættir voru

 

Hlynur

Tryggvi 

Lúlli

Mike

 

 

Takið þátt í umræðum og...


#0096 Allt og ekkert
#114
10/07/2025

 #0096

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Í þessari viku mættu strákarnir algjörlega óundirbúnir í upptöku og töluðu um allt og ekkert.

 

Mættir voru

 

Hilmir

Hlynur

Tryggvi 

Bjarni

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0095 Stebbebbi lítur dagsins ljós
#113
09/30/2025

 #0095

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Það er spilakvöld í kvöld, það átti að spila Strahd en forföll gerðu það að verkum að það var ekki hægt. Þá grípum við oft í ævintýri sem við köllum Týnda borgin, nú ætlar Bibbi að vera með okkur í því, en þar sem hann hefur ekki verið með í því áður þá vantar honum nýjann karakter!
Þá er ekkert annað að gera nema búa hann til og er ekki tilvalið að gera það með ykkur. Hér er karakter sköpun með Bibba og strákunum, verði ykkur að góðu.<...


#0094 Þrjár tungur, tvær húsreglur
#112
09/20/2025

#0094

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Tungurnar ræða um húsreglur, húðflúr og fleirra í þætti vikunnar.

 

Mættir voru

 

Lúlli

Hlynur

Hilmir 

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#0093 Fáum okkur tattú
#111
09/13/2025

 #0093

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.

 

Svörtu tungurnar koma úr sumarfríi!

Hvað gerðu þær í fríinu, hvernig leggst Daggerheart í menn og hvað ætlum við að gera 15. sept?

Haust þýðir mikið af spilum og gleði!

 

 

Mættir voru

 

Lúlli

Tryggvi

Hilmir 

 

 

Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar


#RK02 Rafkindur | Some Desperate Glory eftir Emily Tesh
#104
08/16/2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

  Fyrsta bókin sem tekin verður almennilega fyrir er Some Desperate Glory eftir Emily Tesh. Bókin kemur út árið 2023 og vann Hugo verðlaunin 2024. En þau eru einmitt ein virtustu verðlaun á sviði vísindaskáldsagna og fantasíubókmennta í heiminum.    Sagan gerist í fjarlægri framtíð þar sem mannkynið hefur nánast verið þurrkað út. En þó tórir enn lítill hluti uppreisnarseggja sem gleyma ekki ósigrunum sem þau hafa mátt þola og hafa lengi undirbúið sig undir þann tíma þegar mannkynið nær fram hefndum...    

Endilega takið þátt í umr...


#0092 Age of Vikings - Lifandi upptaka 2 | Live play 2
#110
08/09/2025

 #0092

 

Þátturinn er í boði Quest Portal, Malbygg og Chaosium Inc.

 

Svörtu tungurnar spiluðu Age of Vikings, nýjasta spunaspil Chaosium Inc. fyrir áhorfendur í Malbygg Taproom þann 16. maí. Hér kemur seinni hluti þessa stórskemmtilega kvölds, njótið vel!

 

 

The episode is brought to you by Quest Portal, Malbygg, and Chaosium Inc.

 

The Black Tongues played Age of Vikings, Chaosium Inc.'s latest role-playing game, in front of an audience at Malbygg Taproom on May 16th. Here is the second part of this...


#RK01 Rafkindur | Bókaklúbbur!
#103
07/12/2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

  Fyrir langa löngu í póstnúmeri langt langt í burtu settust nokkrir nördar niður og stofnuðu bókaklúbb. Þar voru ræddar fantasíur og vísindaskáldsögur, þeim gefnar einkunnir og innihald bókanna greint í þaula. Þessi félagskapur kallaði sig "Rafkindurnar". Við höfum nú ákveðið að blása lífi í þennan klúbb að nýju og leyfum ykkur kæru hlustendur að gæjast inn hvað fer þar fram!   Í hverjum þætti tökum við fyrir eina bók sem allir í hópnum hafa lesið og greinum niður eftir þarti...


#0091 Age of Vikings - Lifandi upptaka 1 | Live play 1
#109
07/05/2025

 #0091

 

Þátturinn er í boði Quest Portal, Malbygg og Chaosium Inc.

 

Svörtu tungurnar spiluðu Age of Vikings, nýjasta spunaspil Chaosium Inc. fyrir áhorfendur í Malbygg Taproom þann 16. maí. Hér kemur fyrri hluti þessa stórskemmtilega kvölds, njótið vel!

 

 

The episode is brought to you by Quest Portal, Malbygg, and Chaosium Inc.

 

The Black Tongues played Age of Vikings, Chaosium Inc.'s latest role-playing game, in front of an audience at Malbygg Taproom on May 16th. Here is the first part of this...


#KD014 Spil | Köldudyr – Seta 12: Hilmir í Auschwitz
#108
06/14/2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

Stjórnandi – Björn

Ágúst Ólafur Stefánsson – Hilmir

Friðrik Stormur – Hannes

Gísli Berg – Hjörtur

Grettir Axelsson – Snæbjörn

Rikki Dan – Tryggvi

 


#0090 Gestur | Daði Einars
#107
06/07/2025

#0090

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

 

Það hefur verið mikill gestagangur hjá okkur undanfarið og að þessu sinni fengum við til okkar í spjall, eilífðarstjórnandann, sögumanninn, YouTube stjörnuna og tölvuleikjahönnuðinn Daða Einars.

 

– Mættir eru: Bjössi, Hlynyr  og Daði Einars

 

– Tónlist: Raulothim's Psychic Lance

 

– Flytjandi: Scorching Ray Taylor

 

 


#0089 Þrjár tungur, lifandi spil og Daggerheart
#106
05/31/2025

#0089

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

 

Við strákarnir settumst niður fyrir spil og tókum bara létt spjall um lifandi spilið okkar á Malbygg, Daggerheart og fleirra.

 

 – Mættir eru: Hilmir, Lúlli og Bjarni

 

 – Tónlist: Raulothim's Psychic Lance

 

 – Flytjandi: Scorching Ray Taylor


Aukaþáttur | Age of Vikings
#105
05/14/2025

Föstudaginn, 16. maí kl 20:00 (húsið opnar kl 19), verða Svörtu tungurnar með lifandi spil í glænýju spilakerfi Chaosium, Age of Vikings.

Af því tilefni settust Hilmir og Lúlli niður og tóku upp aukaþátt þar sem farið er yfir herlegheitin.

Í fyrsta skipti var þátturinn tekinn upp í mynd, kíkið á Svörtu tungurnar rásina á Youtube til þess að berja drengina augum

 

 

Við hlökkum til að sjá ykkur á föstudaginn!

 

 

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg

 

– Mættir eru: Hilm...