Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 35
Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis um að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleidd með réttum hætti í íslensk lög. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur haft á stefnuskránni að höfða mál gegn Íslandi fyrir að hafa ekki innnleitt bókun 35 með réttum hætti. Gunnar Þór telur að slíkt dómsmál þurfi ekki að fara fram þar sem Hæstiréttur Íslands hafi lagt línurnar með orðum sín...
Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti
Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019. Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til ákveðinna greiðslna í fæðingarorlofi. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þegar tekj...
Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarrisanum Samherja. Þar er eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið. Um hvað snýst þessi tímabundna lokun á fiskþurrkuninni og hversu umfangsmikil er skreiðarsala Íslendinga til Nígeríu? Rætt er við Elvar E...
Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins
Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking.
Wolt-væðingin á Íslandi
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Se...
Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu viðræðna og mögulega lagasetningu stjórnvalda við Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í samningatækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Rannsóknin á lögreglustjóranum eftir þorrablótið
Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, á þorrablótinu til Nefndar um eftirlit með lögreglu Fjallað er um mál Helga í þætti dagsins og rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur varahéraðssaksóknar um nefndina sem hefur eftirlit með störfum lögreglu. Umsjón: Gréta Sigríður Einarsdóttir
Microsoft verði eini kúnni gagnaversins á Bakka
Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn. Í umfjöllun í fréttum um þetta gagnavert hefur komið fram að alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Akur DC muni byggja gagnaverið og að búið sé að tryggja samning við ónafngreindan viðskiptavin. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þessi viðskiptavinur Microsoft en stofnandi og eigandi þess er bandaríski kaupsýslumaðurinn Bill Gates sem er einn ríkasti maður í heimi. Ef gagnaverið verður byggt verður þett...
Ótengdir og óvirkir lífeyrissjóðir
Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.? Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins. Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag...
Herör gegn hraðtísku
Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, og Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Roma-fólk í sögu Íslands
Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks hér á landi. Hann er þátttakandi í rannsóknarverkefni um þessa sögu þar sem hún er tengd við samtímann. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Svikin í Alicante
Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru. Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigu
Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru n
MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn
Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað. Að...
Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn
Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess að Heiðar hefði fengið...
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða
Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna. KPMG er að vinna fyrir nokkrar af stærstu bílaleigum landsins í málinu. Lögfræðingurinn Kristinn Jónasson, segir að bílaleigurnar hafi verið í góðri trú í málinu og að þæt hafa leitað ráðgjafar hj...
Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins
,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hins vegar verið raunin. Líklega þarf að fara aftur til ársins 2016 til að finna sambærilegt umfang af fréttum í erlendum miðlum um eitt mál sem tengist Íslandi og síðustu daga. Þetta var þegar íslenska la...
Eldsneytisverðið hækkar á ný
Eflaust hafa hlustendur tekið eftir því að bensinverðið er hærra í dag en í gær – því tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Rætt er við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing. Þá er rætt við ökumenn á bensínstöðvum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði. Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986. Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun að Sýn seldi ekki stóran hluta af fjö...
Lykilinnviðir og hættan af eldgosum
Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets og formaður neyðarsamstarfs raforkukerfisins, og Þráinn Friðriksson, se, leiðir jarðhitarannsóknir hjá Orkuveitunni, segja Þetta helst frá þeim sviðsmyndum sem gerðar hafa verið og áhrifum þess ef þær rættust.
Slorævintýrið á Nýbýlaveginum
Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur matvöru frá öllum heimshornum sem yfirleitt er ekki til í öðrum búðum. Tekjuaukningin hjá Fisku hefur verið ævintýraleg síðustu ár og hefur verslunin nú sprengt af sér húsnæðið í Kópavogi og er verið að tvöfalda það. Eigandinn, Árni Elvar Eyjólfsson, segir að veltan hafi sexfaldast frá árinu 2020 þegar Fiska opnaði á Nýbýlaveginum í miðjum Covid-faraldrinum. Saga Árna sem kaupmanns nær aftur til ársins 1994 þegar hann byrjaði að selja fisk frá vinnslu ömmur sinnar og afa í Grundarfirði...
Stórveldið sem keypti fyrirtækið af skattakóngi Íslands
Í ár var maður að nafni Daníel Sigurðsson skattakóngur Íslands. Hann greiddi 932 milljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra og var því með fjármagnstekjur upp á 4,3 milljarða króna. Ástæðan fyrir þessum himinháu fjármagnstekjum og skattgreiðslum í fyrra er sú að Daníel seldi 70 prósenta hlut í fyrirtæki sem hann stofnaði. Þetta fyrirtæki heitir DS Lausnir og sérhæfir sig í útleigu og þjónustu við byggingarkrana sem notaðir eru til að reisa fasteignir. Fyrirtækið sem keypti meirihluta í DS Lausnum heitir Fagkaup og er það í jafnri eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur. Hvaða...
Úrslitastund um líftíma kjarasamninga
Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst. Rætt er við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka, og Sigurð Pétursson, sagnfræðing, um stöðu mála. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þrefalda þyrlupallinn í Surtsey
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar? Rætt er við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, Sigurð Wiium, yfirflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, og Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, formann umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Aska látinnar konu grafin upp í skjóli nætur
Gröf Kristjöna Jónsdóttur Dinse í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði var opnuð í skjóli nætur í júní í fyrra. Duftkerfið með jarðneskum leifum Kristjönu var grafið upp og stór hluti öskunnar var tekinn úr því eftir að kerið hafði verið brotið upp. Kristjana lést í nóvember 2024, rúmlega áttræð að aldri. Ummerki sáust við leiðið daginn eftir og var málið kært til lögreglu í kjölfarið. Að raska grafarhelgi er brot á almennum hegningarlögum á Íslandi. Rætt er við barnabarn Kristjönu, Aðalbjörgu Jónsdóttur, um þennan atburð og hvaða afleiðingar hann hafði á fjölskylduna. Sa...
Fiskur dagsins - loðna
Af hverju borga Færeyingar og Norðmenn miklu hærra verð fyrir loðnu og makríl en Íslendingar? Er það vegna þess að á Íslandi kaupa sömu menn fisk og selja hann? Er verið að svindla á sjómönnum, sveitarfélögum og ríkissjóði, eða erum við bara með öðruvísi kerfi, sem skilar sömu niðurstöðu? Umsjón: Helgi Seljan
Er æskilegt að framleiða bætiefni úr hvalkjöti?
Morgunblaðið greindi frá því í upphafi viku að Hvalur hf. ætlaði að hætta að selja Japönum hvalkjöt í bili en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Í þætti dagsins beinum við sjónum að járnskorti og þeirri hugmynd að framleiða járnbætiefni úr hvalkjöti. Viðmælendur: Jóhanna Eyrún Torfadóttir, dósent í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur og lektor í líffræði Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Svona kom saga Manongs til rithöfundarins Sjóns
Í þættinum í gær var sagt frá sögu Suður-Afríkumannsins Johannes Manong hér á Íslandi á árunum 1964 og 1965. Manong lenti í kynþáttaofbeldi frá nýnasistum á Íslandi þegar hann vildi setjast hér að til að leggja stund á tannlækningar og var hrakinn frá landinu. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku Klux Klan í Bandaríkjunum. En af hverju er fjallað um þessa sögu Manongs hér og hvernig tengist hún nútímanum? Ástæðan er sú að rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson eða...
Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi
Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma. Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir að hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og bað um aðstoð á Íslandi. Úr varð að hann að hann fékk herbergi á Stúdentagörðunum í Vatnsmýri og frítt fæði um tíma á...
Opnun hringvegarins um Ísland og upphaf vegasjoppumenningar
Sagnfræðingurinn Arnþór Gunnarsson hefur skrifað bók um hringveginn um Ísland. Þar fjallar hann fjallar um það hvaða áhrif opnun hringvegar um Ísland hafði fyrir landann. Hringvegurinn varð til sem heild árið 1974 þegar þjóðvegur landsins var tengdur í hring með opnun brúar yfir Skeiðará á Suðurlandi. Bókin er gefin út í nýrri seríu frá Sögufélaginu þar sem fjallað er um söguleg mál í stuttum, aðgengilegum ritum. Þessi bók Arnþórs er tæplega 100 síður. Hvaða máli skipti opnun hringvegarins og hversu algengt er það í heiminum að fólk keyri hringinn í öðrum löndum? Umsj
Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor
Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum. Björgólfur Thor hefur síðastliðin ár yfirleitt verið nefndur sem ríkasti Íslendingurinn og hefur verið á lista tímaritsins Forbes yfir auðugsta fólk í heimi. Hann hefur um 25 ára skeið verið...
Almyrkvinn 1954
Í þætti dagsins beinum við sjónum að almyrkva á sólu sumarið 1954. Rætt er við Gunnstein Gunnarsson, lækni, sem fór með föður sínum að fylgjast með myrkvanum, þá sextán ára. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sjálfsmorð Schraders á hafi úti
Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915. Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi. Í þættinum í gær var sagt frá því hvernig Schrader birtist allt í einu á Akureyri árið 1912 og dvaldi þar í góðu yfirlæti á hóteli í þrjú ár. Nafn þessa manns er heimsþekkt vegna loftventilsins sem hann bjó til, Schrader-ventilsins. Þetta er útbreiddasti ventill í heimi og er notaður á reiðhjólum, bifreiðum, flugvélum og fleiri fara...
Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn
Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um að sjá til þess að alltaf væri til kampavín á hótelinu. Af hverju Schrader kom til Íslands til að byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kynnt sér leyndardómsfulla sögu þessa manns. Schrader lét gott af sér leiða á Íslandi. Hann gaf út bók um íslenska hestinn, aðra um viðskiptafræði og kostaði eina fyrstu matrei...
Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York
Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðunni á leigumarkaði hér á landi. Ákveðið var að frysta leiguverð í New York í lok síðustu viku. Væri æskilegt að fara svipaða leið hér? Rætt er við Kristínu Amalíu Líndal, hagfræðing hjá HMS, og Yngva Ómar Sigrúnarson, formann Samtaka leigjenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100. Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestingarfélagið Stoðir er einn stærsti hluthafi beggja þessara fyrirtækja. Stoðir eru langstærsti hluthafi Arctic Adventures með tæplega 42 prósenta hlut og fyrirtækið er þriðji stæ...
Takmörkuð áhrif lækkunar kakóverðs
Í nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, sem birt var í gær, kom fram að verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 - og að miklar verðlækkanir á kakó og sykri undanfarið hafa ekki skilað sér í smásöluverð. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Bjarka Stein Benjamínsson, verkefnastjóra verðlagseftirslits hjá sambandinu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi
Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxandi hér á landi. Rætt er við Sigrúnu Daníelsdóttur, sálfræðing og verkefnastjóra geðræktar hjá embættinu, og Kolbein Hólmar Stefánsson, dósent við
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess að b...