Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins. Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska boltanum.
38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.
Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu. Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.
Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.
Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.
Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.
Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
38 umferðir - Wildcard og vítamín
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.
Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo. Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.
Hvað verður um Man City?
Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin
Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur líka mögulega fallið. Á hinum enda töflunnar missteig FH sig og Breiðablik er með pálmann í höndunum. Þá skoraði hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir þrennu í sigri Þróttar gegn Stjörnunni. Í lok þáttarins var aðeins snert á landsliðinu og Lengjudeildinni.
Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit á tímabilinu. Í seinni hluta þáttarins ræðir fjármálasérfræðingurinn Sævar Þór Sveinsson, ritstjóri Utan vallar, um brot Manchester City og Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, skoðar fréttir frá vikunni og Þjóðadeildina þar sem Ísland hefur leik gegn Eistlandi.
Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild
Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður Selfoss og Ólafur Darri Sigurjónsson leikmaður Hauka Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu umferð er laugardaginn 10. október kl. 12:30 en þeir félagar munu taka upp annan þátt þegar nær dregur og leggja spilin á borðið fyrir þá umferðina.
Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili?
Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Leeds er enn taplaust fyrir landsleikjahléið langa og ekki er hægt að útiloka að liðið blandi sér í baráttuna um Evrópukeppni á þessu tímabili. Einnig var farið yfir úrslitin síðustu helgi og stöðuna í ensku úrvalsdeildinni núna þriggja vikna pása er framundan.
Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir
Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni. Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin og þetta var toppurinn á henni, allavega hingað til. Nokkrar áhugaverðar fréttir voru til umræðu í þættinum og svo var rætt um bilaða Bestu deild þar sem gríðarlega spenna er á botni og toppi deildarinnar. Þá var snert á landsliðinu í lokin þar sem stórar fréttir hafa borist að undanförnu. Guðmundur Aðalsteinn og Snæbjört Pálsdóttir stýra þættinum.
Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild
Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson leikmaður KH og Nadir Simon Moukhliss leikmaður Víðis. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi
Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars.
Innkastið - Skortur á reisn
Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.
Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi fyrir Þjóðadeildina. Þróttur og Fylkir mætast í 100 milljóna króna leiknum. Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar og Kári Sigfússon leikmaður Fylkis eru í viðtölum. Á Michael Carrick framtíð sem stjóri Manchester United?
38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 365 stigum eftir 4 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 5 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á lei
Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar
Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu deildinni á næsta tímabili. Svo er það fyrsta umferð Bestu deildarinnar eftir tvískiptingu. Það stefnir í rosalega helgi þar sem Víkingur getur orðið Íslandsmeistari og KA leikur gegn Þór þar sem er að duga, eða drepast.
Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík
Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði Serrano, Ab sportvörum og Macron Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims
Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á þessu tímabili en Arsenal og Manchester City eru með fullt hús stiga. Hvenær kemur fyrsta mark Tottenham á tímabilinu? Hull heldur þá áfram að gera flotta hluti og Leedsarar fara frábærlega af stað. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir allt það helsta með Haraldi Erni og Sölva Haraldssyni. Þátturinn er í boði Nova.
Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik varð meistari. Rýnt er í umspil Lengjudeildarinnar þar sem allt er á suðupunkti og hitað upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni.
38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 280 stigum eftir 3 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 4 er á laugardaginn kemur kl. 12:30 en umferðin hefst á 5 leikjum kl 14:00 s
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn sjálfan.
Harkið - Nágrannar en ekki vinir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich. Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur ásamt Jóni Kaldal og Halldóri Marteinssyni í Coke stúdíóinu hjá Fótbolta.net. Þátturinn er í boði Nova.
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt. Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina. Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni. Í lok þáttar er sumarglugginn í ensku úrvalsdeildinni skoðaður með Kára Snorrasyni, fréttamanni Fótbolta.net.
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg. Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich o
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám. Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn Haraldsson fór einnig yfir sterka byrjun Xabi Alonso hjá Chelsea. Félagaskiptaglugginn lokaði þá í kvöld og var farið yfir allt það helsta sem gerðist í lok þáttarins. Þátturinn er í boði Nova.
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.