Þjóðmál

40 Episodes
Subscribe

By: Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

✂️ Turn this podcast into clips
#478 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Erum við til fyrir ríkið eða er ríkið til fyrir okkur?
#478 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Erum við til fyrir ríkið eða er ríkið til fyrir okkur? episode artwork
#478
Yesterday at 7:33 PM

Andrés Magnússon og Örn Arnarson mæta sprækir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum um allt það helsta í stjórnmálunum, rifjum upp þingmenn sama hafa skipt um flokka á miðju kjörtímabili, óraunhæfar væntingar ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög, skattahækkanir, verktakasamninga í utanríkisráðuneytinu, skráningu Bláa lónsins, bjagaða umfjöllum um verðlagskönnun ASÍ og margt fleira. Þá tökum við fyrir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, mál sem við þurfum að setja á dagskrá, bíómyndameðmæli og fleira.


#477 – Kaffispjall með Ingvari Þóroddssyni – Sterk bein og sterkt kaffi
#477 – Kaffispjall með Ingvari Þóroddssyni – Sterk bein og sterkt kaffi episode artwork
#477
Last Tuesday at 9:55 PM

Ingvar Þóroddsson alþingismaður ræðir um ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar fer yfir aðdraganda flokkaskiptanna, kjördæmahagsmuni í Norðausturkjördæmi – þar á meðal áhrif skattahækkana á baðlón og ferðaþjónustu – og segir frá því hvernig hann telur stefnu Viðreisnar í skattamálum vinna gegn atvinnulífinu. Þá ræðum við pólitíska hugsjón hans, umboðið frá kjósendum, viðhorf stjórnmálamanna gagnvart verðmætasköpun, þráláta baráttu á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar, hvernig


#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp
#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp episode artwork
#476
11/13/2026

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson mæta á Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin. Í upphafi er farið yfir glæsilegt Hátíðarkvöld Þjóðmála og verðlaunahafa ársins, rætt um nýtingu starfsmanna Þórkötlu á bílskúr í Grindavík og rýnt í lokasprett hlutafjárútboðs Bláa lónsins. Þá er borin saman skattastefna jafnaðarmanna í Danmörku, ákvörðun Kópavogsbæjar að lækka fasteignaskatta á fyrirtæki, stöðuna í Landsvirkjunarmálinu, nýjustu verðbólguspár fyrir komandi vaxtaákvörðun, ákvörðun ESA um að fella niður rannsókn á Lyfjaveri tveimur árum e...


#475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti
#475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti episode artwork
#475
11/09/2026

Kaffispjall vikunnar er tekið upp á Retreat hótelinu í Bláa lóninu. Þar er rætt við Grím Sæmundsen, stofnanda og stjórnarformann Bláa lónsins, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, í aðdraganda hlutafjárútboðs félagsins sem fram fer í vikunni. Við rýnum í stóru spurningarnar varðandi fyrirhugaða skráningu félagsins, ástæður þess að nú er stefnt á hlutabréfamarkað, um uppbygginguna og vöxtinn framundan, kaupin á Arctic Adventure og hvernig það fer saman við rekstur baðlóna og hótela, fjárfestingar í öðrum baðlónum, fjárhagslega stöðu félagsins og fleira. Þá...


#474 – Viðtal – Karl Wernersson
#474 – Viðtal – Karl Wernersson episode artwork
#474
11/08/2026

Við ræðum við Karl Wernesson athafnarmann í sérstökum aukaþætti. Karl hélt nýlega erindi, sem barið heitið „17 ár í súpunni“, þar sem hann rakti þau málaferli sem hafa litað líf hans í að verða tvo áratugi. Við ræðum hvernig mismundandi dómar hafa haft afdrifaríkar afleiðingar á Karl sem og aðra sem honum tengjast, ósamræmi í kerfinu, lífið á bakvið luktar dyr, fjárhagslegar afleiðingar og margt fleira sem þessu tengist.


#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda
#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda episode artwork
#473
11/06/2026

Þórður Gunnarsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta léttir og kátir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum enn á ný um vanda Viðreisnar þar sem Landsvirkjunarmálið og staða fjármálaráðherra eru meðal annars í brennidepli auk þess sem bent er á enn fleiri dæmi sem sýna hvers konar kerfisflokkur Viðreisn er orðinn. Þá er rætt um tíst framkvæmdastjóra Flokks fólksins sem vill draga fram kjarnorkusprengjurnar, ummæli utanríkisráðherra í garð fv. forseta, stöðuna í Bandaríkjunum eftir kosningar fyrr í vikunni, nýjan þjóðarpúls, ummæli forsætisráðherra um ferðaþjónustuna...


#472 – Kaffispjall með Boga Nils
#472 – Kaffispjall með Boga Nils episode artwork
#472
11/03/2026

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mætir í yfirgripsmikið viðtal þar sem farið er beint í kjarnann á rekstri og framtíð félagsins. Við ræðum afkomuna og horfur í rekstri, áhrif eldsneytisverðs, flotaendurnýjun, breytta samsetningu farþega, eldfim kjaramál, samskipti við flugstéttir og áskoranir við að tryggja samkeppnishæfni án þess að skaða orðspor félagsins. Þá er einnig rætt um raunverulegt markmið fyrirhugaðrar starfsemi á Möltu, hvenær vænta megi aukinnar arðsemi, umræðu markaðsaðila um skort á leiðtogum innan hluthafahópsins, helstu vaxtartækifærin í náinni framtíð og margt fleira.


#471 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Tómasi Þór – Þar sem er reykur er eldur
#471 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Tómasi Þór – Þar sem er reykur er eldur episode artwork
#471
10/30/2026

Sigríður Á. Andersen og Tómas Þór Þórðarson mæta á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin í stjórnmálum, efnahagslífi og samfélagsumræðunni. Af nógu er að taka, mögulegum heimsendingum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, súra stemningu innan Viðreisnar sem og skattastefnu flokksins sem segist ekki vilja hækka skatta en gerir það samt, hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar, hugmyndir um sölu á Ljósleiðaranum, komu trúaröfgamanns til landsins, svansvottaða viðburði og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og fleir


#470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður
#470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður episode artwork
#470
10/27/2026

Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta...


#469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí
#469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí episode artwork
10/23/2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunn


#468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja
#468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja episode artwork
#468
10/20/2026

Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar greinar hans þar sem kallað er eftir auknu frelsi í samfélaginu, skort á stuðningi við þau verkefni sem hann hefur lagt áherslu á, beitingu h...


#467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun
#467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun episode artwork
#467
10/16/2026

Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraða


#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma episode artwork
#466
10/13/2026

Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kun


#465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður
#465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður episode artwork
#465
10/09/2026

Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svið, hraðaspurningar og bókameðmæli.


#464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar
#464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar episode artwork
#464
10/06/2026

Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. Sjónum er einnig beint að brothættri stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Björn rifjar upp fyrri ummæli sín um að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði sem alvö...


#463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af
#463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af episode artwork
#463
10/02/2026

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ, kosningastjóra á launum hjá utanríkisráðuneytinu og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar og hraðaspurni


#462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt
#462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt episode artwork
#459
09/29/2026

Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veitingastaði, hvernig heimsendingum kann að verða háttað í framtíðinni og margt annað.


#461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja
#461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja episode artwork
#461
09/25/2026

Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll hálaunastétta, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni í íslensku atvinnulífi. Einnig er rætt um tilefni og tilgang funda sem utanríkis- og forsætisráðherrar sækja nú erlendis, úrillan fjármálaráðherra...


#460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði
#460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði episode artwork
#460
09/22/2026

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra og óverðtryggðra lána við mismunandi vaxtastig, um sparnað og fjárfestingar, raunhæf dæmi um fasteignakaup ungs fól


#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni
#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni episode artwork
#459
09/18/2026

Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bílaleigur sem eru að fá Skattinn í bakið eftir að hafa farið að ráðum Skattsins, áhrif gervigreindar á hagkerfið og margt...


#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna
#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna episode artwork
#458
09/15/2026

Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á hegðun fólks, um afskipti hins opinbera af fjölmiðlum og margt fleira. Hér er um að ræða aðgengilegt samtal fyrir alla sem vi...


#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað episode artwork
#457
09/11/2026

Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur


#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum
#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum episode artwork
#456
09/08/2026

Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landa...


#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar
#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar episode artwork
#455
09/04/2026

Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni


#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál
#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál episode artwork
#454
08/31/2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira.


#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið
#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið episode artwork
#453
08/28/2026

Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli,


#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun
#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun episode artwork
#452
08/25/2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað


#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa
#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa episode artwork
#451
08/21/2026

Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.


#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni
#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni episode artwork
#450
08/19/2026

Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Í...


#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann
#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann episode artwork
#449
08/18/2026

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í f...


#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar
#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar episode artwork
#448
08/14/2026

Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim d...


#447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns
#447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns episode artwork
#447
08/11/2026

Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir jafnframt áhrif þess þegar ríkið stýrir álagningu á meðan launakostnaður hækkar, hvers vegna ný líftæknilyf breyta framlegðinni, hvernig séríslenskar mönnunarkröfur reyna á rekstur um allt land, jafnvægislistina á milli samfélagslega mikilvægrar heilbrigðisþjónustu og sjálfbærs atvinnurekstrar og margt fleira.


#446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?
#446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður? episode artwork
#446
08/07/2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanr...


#445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir
#445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir episode artwork
#445
07/30/2026

Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra – þó það sé rætt að einhverju leyti líka. Við ræðum um það hvort að hægt sé að miðast við pylsuvísitöluna, um takmarkað fjármálalæsi þingmanns Samfylkingarinnar, sögu peninga og framtíð íslensku krónunnar, vaxandi verndarstefnu í alþj...


#444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti
#444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti episode artwork
#444
07/28/2026

Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.


#443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki
#443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki episode artwork
#443
07/24/2026

Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegup


#442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða
#442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða episode artwork
#442
07/21/2026

Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferl...


#441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)
#441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr) episode artwork
#441
07/17/2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar


#440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni
#440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni episode artwork
#440
07/14/2026

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að samb...


#439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna
#439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna episode artwork
#439
07/10/2026

Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að fors...