Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp
Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli. Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið á miðjum aldri af húmor, sjálfsháði og forvitni. Hver þáttur er blanda af hversdagslegum vangaveltum, persónulegum sögum og endalausum umræðum um allt það sem enginn bað um – en allir eiga skoðun á. Nýir þættir birtast á 7–10 daga fresti.
122 EINMITT: Jón Jónsson "Eitt grínmyndband fyrir sumarið"
Einar Bárðarson opnar seríu 5 af Einmitt með einlægu og fallegu samtali við Jón Jónsson, sem fagnar 41 árs afmæli sínu á upptökudegi. Þeir ræða tónlistina, fjölskyldulífið, vináttuna og IceGuys-ævintýrið — kvikmyndina sem var frumsýnd kvöldið áður og jólatónleikana í desember sem marka lok þessarar vegferðar.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is - Morgunmatur meistarans
Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn"
Stóra kombakkið! Einar og Baldur snúa aftur með sögur af Valencia, þvottavélaveseni og lífinu eftir hárígræðslu. Jólastress, raunveruleikaþættir og eilíf barátta við slátturóbótann koma líka við sögu.
Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Helstu samstarfsaðilar þáttarins
www.gefur.is
www.bpro.is
www.kolski.is
www.bkhonnun.is
MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"
Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í Mango. Allt þetta og eitthvað meira sem skiptir nákvæmlega engu máli – nema auðvitað mönnum eins og okkur.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
...MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?
Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight?
Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið.
Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur vilja...
MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"
Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall.
Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsle...
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?"
Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?"
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án á...
Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"
Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn
Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, E...
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýð...
Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?
Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
h...
Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"
Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna.
Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita...
Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund
Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri.
Létt spja...
Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum
Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt.
Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar.
Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónl...
Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu
Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir. Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa...
Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"
Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"
Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur.
Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
...
Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"
Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta.
Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc...
121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni"
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni?
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
bkhonnun.is
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
bpro.is
stereo.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is
egc.is
120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni"
Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.
119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum"
Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is -
egc.is - Hamraborg -
mammaveitbest.is -
fylgifiskar.is Nýbílavegi
kjotburid.is Selfossi
118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu"
Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is -
egc.is - Hamraborg -
mammaveitbe...
117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta"
Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig mikill áhugamaður um líkamsrækt og keppnismaður af lífi og sál, og þá hefur hann verið einn ötulasti stuðningsmaður íslenskrar tónlistar í útvarpi um áratugaskeið, kynnt nýtt efni, stutt íslenska tónlistarmenn og haft raunverule...
Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi"
Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu eins og ekkert væri eðlilegra.
Báðir áttu þeir afmæli í vikunni, lífið var krufið, ákvarðanir fortí...
Einmitt special #9 Menn eins og við "Að rækta vinahópinn"
Í nýjasta þættinum af Menn eins og við ræða strákarnir um mikilvægi þess að rækta vinahópinn – hópinn sem þú hringir í þegar allt fer í apaskít, hópinn sem hlær með manni, stappar í mann stálinu og gefur ráð þegar þeirra er þörf. Baldur kemur svo með óvænta uppgötvun og segir okkur hver klippir Kylie Jenner – og hvernig það virkar. En stærri spurning vaknar líka: má nota sömu rakvél á andlitið og pungsann? Baldur hefur líka uppgötvað flottasta leigubílinn í Reykjavík og hefur varla keyrt í vinnuna síðan. Ekki nóg með það – hann er einnig búinn að finna...
Einmitt Special #8 Menn Eins & við eru ennþá að vakna daginn eftir með tatto!
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við ætluðu Baldur og Einar að vera ábyrgir og málefnalegir – ræða vetrafrí og páskafrí út frá skyldum venjulegra pabba.
En það plan entist stutt því helgin hafði verið of ævintýraleg til að fara ekki yfir það fyrst en Baldur endaði á 101 Hótel, pantaði sér kampavínsflöskur á 9.800 krónur og flæktist þaðan inn í kvöld sem innihélt lækni með VIP-kort á leyniklúbb í Reykjavík. Morguninn eftir vaknaði hann með tvö ný tattoo og sennilega aðeins fleiri spurningar en þegar kvöldið hófst.
Einar fór í allt aðra...
Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall.
Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni kalla hann einn helsta sendiherra Ralph Lauren Polo á Íslandi.
Í þættinum fara þeir yfir ferilinn, fagurfræðina og áhrifin – en láta ekki þar við sitja. Arnar ge...
Einmitt Special #6 Menn eins og við "Kalóríur og Karlhormón"
Í þessum þætti af Einmitt Special – Menn ræða Baldur og Einar við heilsufrumkvöðulinn Inga Torfa Sverrisson. Hvað gerist með testósterón á miðjum aldri? Erum við að vanmeta kalóríur? Við ræðum einnig nýja íslenska heilsuappið LifeTrack, sem Ingi og Linda Rakel Jónsdóttir hafa þróað fyrir íslenskan markað – einfalt verkfæri með yfir 9.000 íslenskum matvörum. Þetta er þáttur fyrir karlmenn sem vilja skilja líkama sinn – ekki berjast við hann.
Einmitt Special #5 Menn eins og við "Í hverju ertu maður?"
Í þessum þætti fara Baldur og Einar yfir tíu heitar vangaveltur um klæðaburð fullorðinna karlmanna. Skinny jeans eftir fertugt, cargo buxur og hvort strikaskór gangi við jakkaföt allt út frá þeirra mati. En umræðan er miklu dýpri. Þeir ræða muninn á því að klæða sig yngri – og að klæða sig betur og hvers vegna fullorðinn stíll á að vera meðvitaður, ekki stressaður. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa einhvern tímann staðið fyrir framan fataskápinn og hugsað: „Er þetta enn að virka?"
116. framkvæmdastjóri Krísuvík "Skýr merki um árangur"
Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtökin, hefur haft afgerandi áhrif á þróun og eflingu starfsseminnar frá því hann tók við starfinu. Undir hans stjórn hefur verið lögð rík áhersla á fagmennsku, skýra framtíðarsýn og mannúðlega nálgun sem hefur styrkt innra starf samtakanna og aukið traust út á við. Elías er gestur í nýjasta þætti af Einmitt Hlaðavarp, þar sem hann ræðir sitt hlutverk sitt og vegferð Krísuvíkursamtakanna.
Að auki standa Krísuvíkursamtökin fyrir árlegri fjáröflun í þessari viku undir yfirskriftinni Edruvika, þar sem markmiðið er að...
Einmitt special #4 Menn eins og við / „Ég er kominn heim"
Egill Ploder er nýkominn heim úr hárígræðslu frá Tyrklandi. Hann naut aðstoðar Baldurs og Einars í ferlinu og nú fara þeir yfir þetta allt saman eftir aðgerð og hvernig kollurinn á Agli er að koma undan verkefninu. Er þetta nú allt þess virði?
Einmitt special #3 Menn eins og við
Í þessum þætti ræða Baldur og Einar um næturkrem fyrir karla, andlitsvax, saursýnatöku, tyrkenska klippingar og þegar Baldur sá Maradona ekki skora í Argentínu 2009. Hér er eitthvað fyrir alla sem hafa gaman tilvistarkreppu miðaldra karla í Garðabæ.
Einmitt Special #2 Menn eins og við. Egill Ploder á leið til Tyrklands
Einar Bárðar og Baldur Rafn spjalla við Egill Ploder en Egill var á leiðinni til Istanbul þegar þátturinn var tekinn upp og var að gera sig kláran í hártilfærsluaðgerð með aðstoð þeirra félaga. Spurningarnar eru margar og svörin bæði gagnleg og sprenghlægileg í sumum tilfellum því ekki má tapa gleðinni þó menn hafi tapað hárinu.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is - Morgunmatur meistarans
egc.is - Hamraborg
mammaveitbes...
Einmitt Special #1 Menn eins og við:
Einar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is - Morgunmatur meistarans
egc.is - Hamraborg
mammaveitbest.is
fylgifiskar.is Nýbílavegi
kjotburid.is Austurvegi Selfossi
pureshilajit.is
115. Guðmundur Fylkisson „Doktor í því sem virkar ekki"
Maður ársins 2025 á langflestum miðlum landsins er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður. Maðurinn sem leitar að börnunum sem vilja ekki láta finna sig. Hann er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum ferilinn frá snjóflóðunum að vestan að leitarverkefnum dagsins í dag.
114. Kjartan Már Kjartansson „í lagi í vera ekki hress ef maður verður hress aftur"
Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi.
113. Guðrún Karls Helgudóttir: "Hlutverk kirkjunnar er að þjóna öllum"
Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir er gesturinn minn í þessum þætti. Það eru jól þegar hann kemur í loftið og við ræðum kirkuna og trúna og upprisu trúarinnar.
112. Þórdís Kolbrún "Það er dýrt að vera staðfsöst"
Gestur minn í þessum þætti er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir — Ein öflugasti stjórnmálamaður landsins. Hún hefur á sínum ferli haft mikil áhrif á utanríkismál og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Við ræðum valdið og pólitískan kostnað þess að standa með þjóðunum sem standa með Íslandi.
111. Gunnar Dan "Sprenging af ljósi"
Gestur minn í þessum þætti af Einmitt er Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, sem nýverið gaf út bókina UFO101. Hann hefur í mörg ár sökkt sér ofan óútskýrð fyrirbæri og mögulega heimsóknir utanjarðarvera til jarðar — og Íslands. Við ræðum bókina og hvernig persónuleg andleg upplifun breytti sýn hans á alheiminn og mannkynið.
110. Dr. Erla Björns "Vöknum seinna, sofum betur"
Gestur minn í þessum þætti er Dr. Erla Björnsdóttir Sálfræðingur og sérfræðingur í svefnvenjum. Við ræðum áskoranirnar sem felast í því að búa hérna uppi í norðri og stilla klukkuna á móti lífræðilega tímabeltinu okkar
109. Björn Berg "Grasið er ekki grænna.."
Gestur minn í þessum þætti er Björn Berg fjármálaráðgjafi – skýrt, hressandi og ótrúlega gagnlegt spjall um hvernig við náum betra svigrúmi og sterkari fjármálum; hlustaðu hér.