Þvottahúsið og Geimsýran
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran
Sambíóin bætast í hópinn
Send us Fan Mail
Í þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér sameiningu á kvikmyndum, UFO, NHI, vísindum, tilfinningum og hughrifum. Geimsýran mun verða með gagnrýnisþætti á þær kvikmyndir sem passa inn í þessa ofangreindu þætti og þykir þetta ekki bara gríðarlega mikill heiður heldur alveg stórkostlega skemmtileg viðbót í jöfnuna. Geimsýran flæðir stjórnlaust og ekkert fær stöðvað hana. Mér þykir vænt um ykkur, namaste.
Svo kemur bara mánudagur á eftir Ayahuasca
Send us Fan Mail
Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
Þegar skömminni er ælt í Ayahuasca
Send us Fan Mail
Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge"
Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar.
Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni.
ht
"Þetta er ekki hægt"
Send us Fan Mail
„Þetta er ekki hægt!“
Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann.
Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun.
Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið.
Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum?<...
UFO málaflokkurinn tekin fyrir
Send us Fan Mail
Ævingarennsli fyrir fyrirlestur var tekið í þessari Geimsýru fyrir nokkru. Heildaryfirferð á sögunni og málaflokknum.
Möguleg aðkoma íslenskra vísindamanna í UFO heiminn
Send us Fan Mail
Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið?
Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel.
En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland?
Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitæ...
Hvernig forðast ég streitu í öllu amstrinu?
Send us Fan Mail
Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar.
Yogashala.is
fargufa.is
betridagar.is
heilsuhornid.is
Dularfullu græn-geisla UFO myndböndin
Send us Fan Mail
Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslag...
Þegar fólkið safnast saman gerast ótrúlegir hlutir
Send us Fan Mail
Hér er farið yfir frábært kvöld í Eden þar sem fjöldinn allur af frábæru fólki mætti og deildi rýminu. Hugleiðsla og langur fyrirlestur um leyndardóma UFO.
Létt yfirferð á stöðu mála á þessum fallega föstudagsmorgni
Send us Fan Mail
Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran
og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavik
Hið pólitíska afstöðuleysi
Send us Fan Mail
Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþeg...
Hvenar leyfum við okkur að vera vanmáttug og takmörkuð?
Send us Fan Mail
Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur...
UFO update á föstudagskvöldi.
Send us Fan Mail
Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á
Project Blue Beam, false Alien Invasion
Send us Fan Mail
Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.
Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.
En svo förum við lengra.
Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo ten...
Svo fallegar Tall Whites og ógeðslegar reptilian Gorillaz!!
Send us Fan Mail
Ok kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri djúpríkispési og ætlaði að framkalla sviðsetta innrás geimvera, þá myndi é gera það nákvæmlega svona, dropa þessu í war . gov og svo henda Grusch í Rogan viðtal og leyfa honum að tala um fallegar Tall Whites og ógeðslega hættulega reptilian gorillaz!! You cant make this shit up!!!
Geimsýran flæðir stjórnlaust á Patreon
Send us Fan Mail
Smá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran
Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum, trúarlegum og heimspekilegum vinklum. Fyrir 10 dollara á mánuði færðu aðgang að mér og efni tengt UFO og frá öllum vinklum.
AsthangaYoga, Vipassana, Sauna, Sveppir og kósíheit
Send us Fan Mail
Í þessu mannlega horni Geimsýrunar fór ég yfir söguna tengt YOGA, Vipassana og svo framvegis og þá í tengslum við nýjan samstarfsaðila Geimsýrunar, Yogashala. Yogashala hefur síðustu 25 árin eða svo verið leiðandi í Yoga iðkun og kennslu á Íslandi. Ingibjörg Stefánsdóttir, stofnandi Yogashala er án efa ein einn af stærstu áhrifavöldum á Íslandi þegar kemur að YOGA. Geimsýran er þakklát fyrir þetta samstarf, eins og með samstarfið við Heilsuhornið og Betri Daga, sem og Fargufuna sem einnig á stóran hluta í andlegri velferð stjórnanda Geimsýrunar. Beint frá hja...
Mannlega hornið tekið einn laugardagsmorgun
Send us Fan Mail
Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?´
Þegar hlaðvarp fjallar um hlaðvarpsviðtal er eitthvað mikið í gangi
Send us Fan Mail
ÞETTA VAR EKKI VENJULEGT JOE ROGAN VIÐTAL.
David Grusch fór mun lengra en áður.
Hann segist hafa séð upptökur af látnum, mannlegum verum úr UFO retrieval-aðgerð. Hann ræðir Grays, sjö feta reptilian-verur, lifandi verur úr hrapaðri farkostum og möguleg átök milli ólíkra NHI-hópa.
Svo koma risastórar neðansjávarstöðvar, cloaking, telepathy, remote viewing, meðvitundartengd tækni, fornar siðmenningar — og möguleikinn á að saga mannsins sé allt önnur en við höldum.
O...
Þegar maður þarf að ná áttum innan UFO
Send us Fan Mail
Ok, ég er búin að jafna mig á brjálæðiskast gærkvöldsins. Lendingin er alltaf sú sama. Uppljóstrunin verður að vera in the end vitundarleg pólskipti og er af andlegum toga. Það þýðir ekki að maður eigi ekki að fylgjast með hvað varðar uppljóstrun inn Goverment. Við Geimsýruhausar skoðum allt en trúum engu. Öllu ber að taka með fyrirvara.
Díatryptamín og Ayahuasca
Send us Fan Mail
Í þessum þætti fer ég ítarlega yfir eiginleika og einkenni Díatryptamín og Ayahuasca. Tengsl þessara efna við mögulegan skammtaheim UFO og NHI. Einnig í þættinum fer ég yfir tilraun sem gerð var í stúdíói Geimsýrunar með notkun DMT og lazer sem Danny Goler hefur rannsakað mikið síðustu ár. Hann vill meina að með því að stara í endurkast rauða lazers af möttu fleti og undir áhrifum DMT sértu komin í stöðu þar sem þú sérð striga efnisveruleikans og kóðana sem halda öllu saman. Þetta var reynt og viti menn, það er ekki öll vitleysan eins.
Húsið á sléttunni og endajaxlar
Send us Fan Mail
Þetta mannlega horn er svo mannlegt að það nær eiginlega engri átt. Hversdagsleikinn umlykur okkur og því mikilvægt að horfast í augu við að glasið er alltaf hálffullt eða einfaldlega bara fullt. Vandamálin eru bara eitthvað ogguponsu en hvað þýðir það? Þýðir það að maður eigi bara að skammast sín fyrir að líða ekki nógu illa? Nei, svo aldeilis ekki. Ég owna þetta yndislega líf sem mætti halda að tilheyrði húsinu á sléttunni. Mér þykir vænt um ykkur Geimsýruhausar.
UFO brottnámið við Miklubraut 1995
Send us Fan Mail
Í þessum þætti fjalla ég um brottnámstilfellið við Miklubraut 1995. Þá varð par fyrir því að missa hálftíma um miðja nótt úr lífi sínu eftir að bíll þeirra var lýstur upp. Ég fór einnig yfir brottnámið við Lake Shasta, Álafoss og brjálað dæmi í Vesturbænum er kona var rifin tvisvar í svaka UFO ferðalag sömu nóttina.
Hvað gerðist fyrir Jake Barber?
Send us Fan Mail
Hvað gerðist fyrir Jake Barber og Skywatcherteymið hans? Möguleikarnir eru tveir. Annaðhvort voru þeir gleyptir af djúpríkinu eða að þeir voru double agentar allan tímann. Hver eru tengsl við Skywatchers við skyndilega lokun á flugvellinum í El Paso í febrúar? Djúsi spurningar sem erfitt er að svara, en við reynum, getum okkur til allavega. Skoðum allt, trúum engu.
Þegar UFO101 fæst staðfest
Send us Fan Mail
BATTELLE, ROSWELL OG „MEMORY METAL“
Í þessum þætti förum við ofan í ný gögn úr sjötta gagnadropi Department of War og sérstaklega 1952 hljóðupptöku þar sem Edward J. Ruppelt, þá yfirmaður Project Blue Book, talar um samband bandaríska flughersins við Battelle Memorial Institute.
Battelle kom að Project GRUDGE og Project BEAR og rannsakaði meðal annars UFO-tilkynningar, en stofnunin hafði jafnframt á þessum árum umfangsmiklar rannsóknir á títan- og nikkelblöndum hjá Wright-Patterson.
Þetta verður sérstaklega áhugavert í ljósi þess að ég skrifaði um „Memory Me...
Útgáfuhóf og ráðstefnan Heimsljós
Send us Fan Mail
Minni á að á fimmtudaginn 17 sept verður útgáfuhóf á UFO202 í Eymundsson í Smáralind. Léttar veitingar í boði, upplestur og bækurnar UFO101 og UFO202 á sérstöku útgáfuverði. Einnig minni ég á að Geimsýran verður alla helgina 19-20 sept á ráðstefnunni heimljós.is í Mosfellsbæ með bókasölu, fræðslu og fyrirlestur á sunnudeginum 20 sept kl 11. Mig hlakkar til að sjá ykkur.
Lífsstíls-þátturinn tekin í mannlega horninu
Send us Fan Mail
Í þessum þætti ætla ég aðeins að breyta um gír og fara yfir eitthvað sem ég hef fengið töluvert af spurningum um upp á síðkastið – þau bætiefni sem ég er sjálfur að nota daglega.
Ég er með tvo stuðningsaðila sem tengjast þessum þætti, Heilsuhornið og Betri dagar, og mér fannst því upplagt að segja aðeins frá því hvað ég er sjálfur að taka og hvers vegna.
Frá Heilsuhorninu hef ég í um tvö ár verið að nota vörur frá Upakarma, sérsta...
PURSUE opnar dyrnar fyrir uppljóstrara
Send us Fan Mail
PURSUE – nýjar dyr opnaðar fyrir UAP-uppljóstrara?
Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út sérstaka lagalega undanþágu sem gerir fólki með aðgang að trúnaðarupplýsingum um UAP kleift að koma þeim upplýsingum til PURSUE.
Hvað þýðir þetta í raun? Hverjir geta nú komið fram og hvað gætu þessar upplýsingar innihaldið? Og gæti þetta orðið ný leið til að koma áður lokuðum UAP-gögnum í átt að afklassíferingu?
Við skoðum hvað gerðist, hvað heimildin segir – og fyrst og fremst hv
Mannlega hornið, COVID og fjöldageðrofið
Send us Fan Mail
Í mannlega horninu mætti ég kröfum hlustanda Geimsýrunar og talaði örlítið um viðbrögð mín að aðgerðir hvað varðar COVID, fyrir öllum þessum árum síðan. Super merkilegt að fara til baka og skoða hvernig maður brást við, hvernig maður hegðaði sér og þá kannski í samræmi við hvernig maður hefði mögulega í dag hegðað sér eða brugðist við á anna hátt.
patreon.com/geimsyran
Mannlega hornið er kallinn stendur á brúninni
Send us Fan Mail
Þetta er svo týpískt og þið tengið kannski við það. Þetta eirðarleysi sem fær mann til að hlaupa um eins og apaköttur. Þegar lífið er svo skemmtilegt að maður tímir varla að sofa. Í kvöld fór ég í gusu eins og ég geri vikulega og enn og aftur fékk ég hugljómun um að slaka á. Skilaboð sem ég er að fá til mín reglulega þessa dagana og hvað getur maður gert? Hvernig getur maður tamið þetta dýr sem gefur og gefur en svo auðveldlega snýst upp í andhver...
Mannlega hornið var tekið í morgun
Send us Fan Mail
Geimsýran er komin á Patreon. patreon.com/geimsyran
Í morgun henti ég í mannlega hornið. Ég fór á per´sonulegar nótur. Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?
Project Blue Beam. Sýndar-áras úr geimnum
Send us Fan Mail
Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.
Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.
En svo förum við lengra.
Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo ten...
Project Blue Beam. Fake Alien Invasion
Inn á patreon.com/geimsyran fáið þið nýjasta efnið tengt UFO. Var að klára brjálaðasta þátt Geimsýrunar fram að þessu. Kemur út í næstu viku. False Flag Alien Invation þemi, Project Blue Beam, Dr Steven Greer, Verner Von Braun, Chris Bledsoe og Jeremy Corbell. Stay Tuned og haldið Geimsýrunni á floti
Patreon þættirnir eru byrjaði að rúlla inn
Send us Fan Mail
Einn brjálaður þáttur komin á Patreon og tveir á leiðinni inn á næstu dögum. Jake Barber og Skywatchers, DMT og Ayahuascha og síðasti þáttur sem kemur út næstu helgi, Grænu geislarnir yfir Michigan... Full Blown langir topic þættir sem þið viljið ekki missa af. 1.500,- á mánuði fyrir 4-8 langa topic þætti um UFO, allskonar andlegt og heimspekilegt og svo má ekki gleyma mannlega horninu. Lets go, lock in!! Lock in á http://patreon.com/geimsyran
Það er rosaleg stemning á kallinum og Geimsýran að hluta á leið í áskrift
Send us Fan Mail
Það er rosaleg stemmning á kallinum. Já sem meinti nei tapaði fyrir þeim sem sögðu nei en meintu já. Geimsýran á leið í Patreon áskrift sem þýðir 4-8 topicþættir á mánuði á meðan probono verða stuttir teaserþættir og fleirra skemmtilegt. Lock in á http://patreon.com/geimsyran
ALIEN fundur í Mosvku!!
Send us Fan Mail
Talið er öruggt að John Ratcliffe, forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hafi verið um borð í bandarísku herflutningavélinni sem óvænt lenti á Vnukovo-flugvelli í Moskvu í morgun.
Heimildir CBS herma að hann sé í borginni til að eiga fundi við ráðamenn.
Hvað er í gangi? Eru geimverurnar að taka stjórnina og er ætlunarverk þeirra að sameina mannkyn í frið og ást á kostnað ofbeldis og sundrungar?
Edrúkallinn á leið annað hugvíkkandi ferðalag
Send us Fan Mail
Ég held áfram á persónulegum nótum. Hvernig hefur edrúmennska mín samræmst aðferðum sem þykja jaðarkenndar? Hvernig hef ég náð að brjóta mér leið úr ánauð alkóhólisma og stjórnleysi? Stórar spurningar sem hafa fengið að marinerast í mér í langan tíma. Hér er þessu deilt með ykkur, vonandi geta einhverjir tekið þetta til sín.
Mannlegi þátturinn, þar sem segl eru dregin niður
Send us Fan Mail
Í Geimsýrunni í kvöld fer ég í mannlega þáttinn og dreg niður segl. Ég fer ekki frá borði en ákveðið hefur verið að setja vissa hluti í samhengi. Þykir vænt um ykkur og er þakklátur fyrir þau ykkar sem hafið hlustað og horft á Geimsýruna
Er Cern búið að f%$#/a tímalínunni okkar upp??
Send us Fan Mail
Hvað gerist þegar við tökum örsmáar agnir, hraðum þeim upp í næstum ljóshraða og látum þær skella saman? Í þessum þætti förum við inn í hinn risastóra Stóra hraðalinn í CERN, 27 kílómetra langan hring djúpt undir jörðu á landamærum Sviss og Frakklands.
Við skoðum hvernig vísindamenn nota þessa mögnuðu vél til að rannsaka grundvallarefni alheimsins – allt frá Higgs-bósóninu og andefni til aðstæðna sem líkjast þeim sem voru til skömmu eftir Miklahvell. Við skoðum líka hvað gæti gerst þe...
Hvar liggja gildin þín??
Send us Fan Mail
Í þessum þætti fer ég troðnar slóðir og jaðra við að verða pólitískur. Ég er að tala um gildin okkar. Hver eru þau og hvernig erum við að taka ákvarðanir í lífi okkar? Erum við mögulega búin að missa marks og erum fyrir vikið týnd í ánauð sektarkenndar og skömm? Það er leið til baka úr þessu skítafeni en það er iðrun og eftirgjöf. Það er aldrei of seint að vakna til vitundar og laga til það sem farið hefur úrskeiðis.