Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Fimmtudagur 04. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hley...
Miðvikudagur 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir...
Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma...
Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun
Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið form...
Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22
Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.
Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið
Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá...
Rauða borðið 27. maí - Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi
Miðvikudagur 27. maí Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka Pálsdóttir vill auka heilsulæsi og fjölga heilbrigðum æviárum. Í viðtali við Ásdísi Olsen veltir hún fyrir sér hvers vegna heilsubyltingin mæti þöggun og andstö...
Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja
Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers v...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars
Laugardagur 23. maí Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með Ásdísi Olsen.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21
Föstudagur 22. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi.
Rauða borðið 21. maí - Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar
Fimmtudagur 21. maí Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kristins voru allar ofarlega á listum framboða til sveitarstjórna í nýafstöðnum kosningum. Þær lýsa bakslagi. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar. Dýr...
Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar
Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að...
Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar
Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að...
Rauða borðið 18. maí - Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn
Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geðveiki og einkum þeim stökkbreytingum sem urðu til hins verra fyrir nokkrum og leiðir að því líkum að lyfjagjöf sé um að kenna. Guðmundur Andi Thorss...
Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga
Sunnudagurinn 17. maí Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmálaflokka, Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, Tómas Þór Þórðarson starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og fara yfir stöðu flokka og af...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Vigfús Bjarni
Laugardagur 16. maí Helgi-spjall: Vigfús Bjarni Vigfús Bjarni Albertsson prestur segir frá lífinu, þessa heims og annars, í helgispjalli við Gunnar Smára; ræðir hversu stórkostleg manneskjan er og breysk, um sorgina, dauðann og lífið sem verður sterkara af áföllum.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 20
Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 Vikuskammtur tekur mið af kjördegi á morgun. Við fáum fólk af listum þeirra þriggja flokka sem hafa mælst með mest fylgi til að ræða stöðuna í Reykjavík: Líf Magneudóttir er í öðru sæti á lista Vinstrisins, Heiða Björg Hilmisdóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar og Brynjar Níelsson er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þau ræða kosningabaráttuna við Gunnar Smára. Um hvað er kosið, hvernig standa flokkarnir, hvað tekur við?
Rauða borðið - Aukaþáttur: Vinstrið
Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?
Rauða borðið 13. maí - Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa
Miðvikudagur 13. maí Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump til Kína og áhrif þessara ferðar á heimsmálin. Heimildin reið á vaðið með fyrstu kappræður allra oddvita í Reykjavík í beinni útsendingu úr Tjarnarbíói í gærkvö...
Rauða borðið 12. maí - Viðskiptaráð, kæra Rúv, lögfræðispjall, skólakerfið, læsishrun og mjúkir menn
Þriðjudagur 12. maí Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega auglýsingasölu. Þá ræðir Árni aðgengi barna og ungmenna að áfengi netsölufyrirtækja. Ragnheiður Stephensen kennari við Garðaskóla ræðir við Gunnar Smára um umræðuna um skólakerfið sem hefur...
Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð
Mánudagur 11. maí Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson 26 ára sósíalisti og Jóhannes Óli, 22ja ára í Samfylkingunni, leggja spilin á borðið með Birni Þorláks. Úlfar Hauksson sjómaður og aðjúnkt í stjórnmálafræði, ræðir við Gunnar Smára um ESB og sjávarútveg. Það f...
Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál
Sunnudagurinn 10. maí Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þau vilja gera í Reykjavík. Síðan förum við yfir fréttir vikunnar og stöðu mála: Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri Gímaldsins, Jovana Pavlović, mannfræðingur og oddviti Borgarbyggðarlistans, og Karen Kjartansdóttir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigmundur Ernir
Laugardagur 9. maí Helgi-spjall: Sigmundur Ernir Sigmundur Ernir Rúnarsson er skáld, blaðamaður, pabbi, eiginmaður, útvistarmaður, þingmaður og er þá ekki allt upp talið. Hann ræðir líf sitt og feril í ítarlegu helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19
Föstudagur 8. maí Vikuskammtur: Vika 19 Eins og venja er á föstudögum kemur saman gott fólk að ræða fréttir vikunnar í Vikuskammti við Rauða borðið. Að þessu sinni mæta þau Guðmundur Auðunsson, María Hjálmtýsdóttir, Margrét Lísa Gunnarsdóttir og Unnar Þór Sæmundsson til að ræða sveitarstjórnarkosningar, mótmæli, gömul og ný þrætuepli og ýmsar furðufréttir með Laufeyju Líndal. Þátturinn er tekinn upp í beinni útsendingu.
Rauða borðið 7. maí - Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur
Fimmtudagur 7. maí Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur hjá Eflingu ræðir niðursveiflu í efnahagskerfinu, skaðlega peningamálastefnu og skort á virkri hagsstjórn við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir Stefán Pálsson sagnfræðingur, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða rógsherferðir, harðnandi slag um borgina, ESB og minkabana. Björn Þorláks stýrir þættinum. Yngvi Ómar Sigrúnarson og Guðmundur Hrafn Arngrímsson, núverandi og fyrrverandi formenn Leigjendasamtakanna, ræða við Gunnar Smára um stöðuna á húsnæðismarkaði og stöðu leigjenda. Ein...
Rauða borðið 6. maí - Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn
Miðvikudagur 6. maí Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn Gunnar Smári ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um kjarasamningana, verðlagsákvæði þeirra og hvað ríkisstjórnin getur gert svo samningunum verði ekki sagt upp í haust. Katrín Oddsdóttir lögmaður og náttúrusinni mætti til Sigurjóns. Saman töluðu um skuggahliðar laxeldis í sjó. Bæði hér heima sem og í Noregi. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir við Gunnar Smára um það samfélagslega stórhrun sem Inga Sæland mennta- o...
Rauða borðið 5. maí - Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló
Þriðjudagur 5. maí Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um stöðu heimsmála. Guðný Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ásdís Arnalds, lektor í félagsráðgjöf ræða fjölskyldustefnur á Íslandi og hverju er ábótavant í framfylgd hennar og framkvæmd við Laufeyju Líndal. Jón Óðinn Waage sem flutti til Svíþjóðar eftir hrun segir að saga Íslendinga sé saga þjóðar sem elskar eigin mistök. Hann flytur drápu við Rauða borðið í símtali við Björn Þorláks. Gervigreind sem...
Rauða borðið 4. maí - Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði
Mánudagur 4. maí Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, bregst við gagnrýni Vals Gunnarssonar sagnfræðings og rithöfundar á úthlutun ritlauna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur er heiðursborgari Reykjavíkur. Gunnar Smári ræðir við hann. Ásdís Ólsen ræðir við Pál Jakob Líndal um umhverfissálfræði. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson tónlistarmaður er handinn veiðiástríðu. Hann ræðir við Björn Þorláks um Laxá í Aðaldal, einkum urriðasvæðið og sögu veiðanna
Synir Egils 3. maí - Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra
Sunnudagurinn 3. maí Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það kom fram í nýjustu skoðanakönnunum. Annars er farið vítt yfir sviðið. Núna þegar pólitíkin er að ná athygli nánast allra. Enda er kosið eftir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Baldvin Snær
Laugardagur 2. maí Helgi-spjall: Baldvin Snær Baldvin Snær Hlynsson tónlistarmaður býr til stjörnur úr góðum efnivið. Hann er það sem kallað er Artist Developer og leitar nú að íslenskum vonarstjörnum sem vilja slá í gegn! Hann er kallaður til Hollywood eða London til að semja tónlist fyrir kvikmyndir eða pródúsera nýja tónlistarmenn. Ferilskráin er stjörnum prídd en núna er hann heima á Íslandi að hljómsveitarstýra Ormstungu í þjóðleikhúsinu.
Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir
Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna...
Rauða borðið 29. apríl - Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra og rauða hverfið
Miðvikudagur 29. apríl Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra, rauða hverfið. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna ræðir húsnæðispakka tvö við Maríu Lilju og möguleg áhrif aðgerðanna á kjör leigjenda. Hvaða áhrif skyldi sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafa á fasteignamarkaðinn að byggja 1400 íbúðir á ríkislóðum? Páll A. Pálsson fasteignasali svarar því. Björn Þorláks ræðir við hann. Margrét Tryggvadóttir, formaður rithöfundasambandsins vakti athygli á pistli stjórnmálamanns í vikunnu sem margt bendir til að hafi verið ritaður af gervigreind. Hún fer yfir málið og fleira því...
Rauða borðið 28. apríl - Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir
Þriðjudagur 28. apríl Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir Rótin hefur sent kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Sjúkratrygginga á aðgangi að upplýsingum í samningi stofnunarinnar við SÁÁ. Kristín I Pálsdóttir ræðir við Maríu Ragnheiður Þorgrímsdóttir, íbúi í Hvalfirði, segir að mengun frá stóriðjusvæðinu á Grundartanga sé orðin að dragbít sem hamli framþróun hjá sveitarfélaginu. Björn Þorláks ræðir við hana. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir spillingu og lagaleg álitamál sem tengjast fréttum líðandi stunda...
Rauða borðið 27. apríl - Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins
Mánudagur 27. apríl Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins Regína Ásvaldsdóttir, Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir af lista Samfylkingarinnar í RVK ræða við Maríu Lilju um áherslumálin. Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur leggur spilin á borðið og segir frá því hvernig það er að fá sjaldnast ritlaun, sem byggi á geðþóttaákvörðun. Björn Þorláks ræðir við Val. Matilda Gregorsdóttir kennir landsmönnum að virkja kynorkuna og opna fyrir möguleikavíddina. Ásdís ræðir við Matildi um kynorkuna og orkufullnægingu. Halldóra Ósk Helgadóttir...
Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB
Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Árangur þessa þingvetrar, komandi byggðakosningar, og hvernig þau meta afgreiðslu mála þessa þingvetrar. Eins verður snertilending á ESB. Í seinni hlutanum mæta þau Haraldur Ólafsson og Helga Vala Helgadóttir sem eru fjarri sammála um Ísland og ESB. Við höldu
Rauða borðið - Helgi-spjall: Karl Ágúst
Laugardagur 25. apríl Helgi-spjall: Karl Ágúst Ásdís Olsen ræðir við fyrrum eiginmann sinn, Spaugstofumanninn, leikskáldið og leikarann Karl Ágúst í persónulegu og einlægu viðtali.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 17
Föstudagur 24. apríl Vikuskammtur: Vika 17 María Lilja tekur á móti gestum Vikuskammtsins á öðrum degi sumars, en að þessu sinni mæta að borðinu þau Katla Ásgeirsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Freyr Rögnvaldsson.
Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur
Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella við Maríu Lilju. Ásta Magnúsdóttir og Lára Ruth Clausen ræðir við Björn Þorláks um kórastarf og listina að syngja sig í gegnum lífið, ekki síst meðal ungs fólks.
Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar
Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta.Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess hvernig hluti samfélagsins okkar virkar - eða virkar ekki. Of mörg orð eru sögð en aðgerðir eru engar. Þau Arna Magnea Danks, Guðmundur Ingi...
Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur
Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla, bregðast við umræðu Snorra Mássonar Miðflokksmanns um regnbogamenningu í skólum. Björn Þorláks ræðir við þau Þingmaðurinn Sigurjón Þórðarson og varaþingmaðurinn Grétar Mar J...