Morðskúrinn

40 Episodes
Subscribe

By: mordskurinn

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

✂️ Clip this podcast
Missy Grubaugh
Missy Grubaugh episode artwork
#346
Yesterday at 5:43 PM

Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar í lífi hennar og áfallið því gríðarlegt þegar Missy fannst látin inn í herberginu sínu eftir bruna inn á heimilinu hennar. 

 

Þátturinn er í boði 

Define the Line Sport www.definetheline.is

Heimaskipulag www.heimaskipulag.is

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn

 


Suzanne Adams
Suzanne Adams episode artwork
#345
10/14/2026

Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til fagaðila þá fór hann að spjalla við ChatGPT. Hann og forritið, sem hann kallaði Bobby, urðu nánir vinir með tímanum og að lokum kom Stein-Erik til með að taka mjög slæma ákvörðun. 

Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag


Theresa Fusco
Theresa Fusco episode artwork
#344
10/07/2026

Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir vinnu. 
Við tók leit sem skilaði litlum árangri í margar vikur en að lokum fannst Theresa látin. Við tók heilmikil rannsókn sem átti eftir að fara í bókstaflega allar áttir áður en morðingi Theresu var að lokum handtekinn. 

 

Þátturinn er í boði 
Define the Line Sport 
Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.


Colleen Slemmer
Colleen Slemmer episode artwork
#343
09/30/2026

Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike...


Russel og Shirley Dermond
Russel og Shirley Dermond episode artwork
#342
09/23/2026

Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee. 
Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna félagslífinu og voru dugleg að mæta á viðburði. Það kom því virkilega á óvart þegar þau mættu ekki á einn slíkan þann 3 maí árið 2014. 
Þremur dögum síðar fannst Russel látinn inn á heimili þeirra en Shirley var hvergi að finna.

Þátturinn er í boði 

Heimaskipulag - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt i...


Robert Brashers
Robert Brashers episode artwork
#341
09/15/2026

Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með eiginkonu sinni og börnum á meðan hann átti að vera í felum. Einn daginn bankaði lögreglan svo upp á hjá þeim, sem varð til þess að Robert sá ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Það sem átti eftir að koma í ljós var að hann var viðriðinn miklu meira heldur en grunur var um í fyrstu. 


Stacey Colbert
Stacey Colbert episode artwork
#340
09/09/2026

Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio.
Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún hvarf eitt kvöld árið 1998 og það algjörlega sporlaust. 

Þátturinn er í boði

Define the Line Sport

Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn 


Dustin Wehde
Dustin Wehde episode artwork
#339
09/02/2026

Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey með vini sínum og ætlaði að ráðast á börnin hennar, svo Tracey tók til sinna ráða að verja fjölskylduna sína. Enginn skildi hvers vegna, en rannsókn átti eftir að leiða það í ljós. 

Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag


LaNelle Barsock
LaNelle Barsock episode artwork
#338
08/26/2026

LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir. 
Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því gríðarlegt áfall þegar LaNelle var myrt inn á heimili sínu.

Þátturinn er í boði

Define the Line

Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn

 


Staudte fjölskyldan
Staudte fjölskyldan episode artwork
#337
08/19/2026

Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar fjölskyldumeðlimur byrjuðu að veikjast og að lokum deyja. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hvað raunverulega var að gerast fyrir fjölskyldumeðlimina. 

Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag


Taylor Behl
Taylor Behl episode artwork
#336
08/12/2026

Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust. 
Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei eftir að skila sér heima aftur. 
Það var ekki fyrr en 10 dögum eftir hvarf hennar sem að málið rataði í hendur lögreglu - fram að því hafði háskólalögreglan haldið því fram að hún hafi bara látið sig hverfa sjálf.


Þátturinn er í boði 
Define...


Dan Markel
Dan Markel episode artwork
#335
08/05/2026

Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu einn daginn, og tókst rannsóknarlögreglumönnum að rekja ferðir þeirra sem höfðu orðið honum að bana. 

Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Define The Line

Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Heimaskipulag


Sherri Jo Elliot
Sherri Jo Elliot episode artwork
#334
07/29/2026

Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér. 
Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í uppreisn. Svo var aldeilis ekki því lík hennar átti eftir að finnast fjórum dögum síðar og við tók ansi löng lögreglurannsókn.

Þátturinn er í boði
Define the Line 
Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn 


Sade Robinson
Sade Robinson episode artwork
#333
07/23/2026

Sade var aðeins 19 ára gömul þegar hún hvarf en hún hafði aldrei skilað sér heim eftir vinnu og kom bíllinn hennar til með að finnast brenndur til kaldra kola. 

Þátturinn er í boði

- Define the Line 

- Heimaskipulag


Tiffany Campbell og Melissa Chilton
Tiffany Campbell og Melissa Chilton episode artwork
#332
07/15/2026

Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. 
En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana. 
Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað.

 

Þátturinn er í boði 
Define the Line Sport 
Heimaskipulag

 ...


Orrin og Orson West
Orrin og Orson West episode artwork
#331
07/08/2026

Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að lát...


Sherita Williams
#330
07/01/2026

Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit.

 

Þátturinn er í boði 
Heimaskipulag
Define the Line Sport

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn 

 


Krim börnin
Krim börnin episode artwork
#329
06/24/2026

Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt. 

Þátturinn er í boði

- Define The Line

- Heimaskipulag


Helen McCourt
Helen McCourt episode artwork
#328
06/17/2026

Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum. 
Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa matinn tilbúinn þegar hún kæmi heim og var því afar óvenjulegt þegar Helen seinkaði. Fljótt var þó ljóst að Helen var ekki sein, hún var horfin.

 

Þátturinn er í boði 
Define the Line 
Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn<


Rey Rivera
Rey Rivera episode artwork
#327
06/10/2026

Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir stóð henni ekki lengur á sama og ákvað að aka heim og þar með tilkynna hvarf hans. Sex dögum síðar fannst bíllinn hans lagður nálægt Belvedere hótelinu í Baltimore og ekki leið á löngu þar til lík hans kom til með að finnast innan þess svæðis. 

HEIMASKIPULAG: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslá...


Keeshae Jacobs
Keeshae Jacobs episode artwork
#326
06/03/2026

Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin. 
Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. 
Það lág fyrir að hún ætlaði að gista en þegar næsti dagur rann upp og ekkert bólaði á Keeshae þá fóru áhyggjur að vakna. 
Við tók langt og flókið ferli sem skilaði fáum svörum.

 

Þátturinn er í boði 

Defi


Elyse Pahler
Elyse Pahler episode artwork
#325
05/27/2026

Elyse var 15 ára þegar hún var aðeins farin að óhlýðnast reglum foreldra sinna. Eitt kvöld, eins og svo mörg önnur, setti hún kodda undir sængina og læddist út en kvöldið 22. júlí 1995 var frábrugðið öðrum kvöldum þar sem hún kom ekki til með að skila sér heim. 

Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 200 aðgengilega þætti -> www.pardus.is/mordskurinn 

Þátturinn er í boði: 

- Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definethel...


Gillian "Jill" Meagher
Gillian "Jill" Meagher episode artwork
#324
05/20/2026

Jill Meagher hafði ákveðið að skella sér út á lífið með vinnufélögum í tilefni afmælis eins þeirra. Barinn sem hún kom til með að eyða kvöldinu á var í minna en km fjarlægð frá heimili hennar sem hentaði vel, endaði gat hún bara gengið heim. Jill átti þó aldrei eftir að skila sér heim.

 

Þátturinn er í boði 

Define the Line Sport 

Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn

 


Joleen Cummings
Joleen Cummings episode artwork
#323
05/13/2026

Joleen Cummings var farsæl hárgreiðslukona í Fernandina Beach, Flórída, allt til maí 2018 þegar hún hvarf sporlaust. Bíllinn hennar kom til með að finnast yfirgefinn ekki langt frá stofunni og beindist rannsókn fljótt að aðila sem var ekki sá sem hann sagðist vera. 

- Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.definetheline.is

- Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.heimaskipulag.is 


Lawrence "Larry" Scully
Lawrence "Larry" Scully episode artwork
#322
05/06/2026

Larry Scully var fullorðinn maður í litlum bæ í Minnesota og það má með sönnu segja að hann hafi verið með umdeildari mönnum. 
Larry átti sögu og fortíð sem olli því að fæstir voru hrifnir afþví að umgangast hann mikið - en Levi nokkur var þó með algjöra óbeit á Larry. 

Þátturinn er í boði 

Define the Line Sport
Heimaskipulag
Prepp-barinn 

 

Komdu í áskrift!

www.pardus.is/mordskurinn 


Kadie Major
Kadie Major episode artwork
#321
04/29/2026

Kadie Major var 26 ára þegar hún fannst látin ásamt 10 mánaða gömlu dóttur sinni árið 2008. Kadie var barnshafandi á þessum tíma, en þær mægður urðu fyrir lest á Moncks Corner svæðinu í Suður-Karólínu. River dóttir hennar hafði þá kastast áfram og drukknað í læk við lestarteinana, og innan nokkurra daga var dánarorsök þeirra úrskurðað sem sjálfsvíg. 

Þátturinn er í boði: 

Define the Line en með kóðanum morðskúrinn farið þið 15% afslátt inni á www.definetheline.is 

Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afsl


Clare Bernal
Clare Bernal episode artwork
#320
04/22/2026

Clare Bernal hafði gert allt hvað hún gat til að láta drauma sína um að starfa sem snyrtifræðingur rætast.
Markmiði hennar var náð þegar hún var 21 árs gömul og mátti hún vera stolt af því hvert hún var komin í lífinu þrátt fyrir ungan aldur. 
Lífið svoleiðis lék við hana, alveg þar til að hún mætti til vinnu eitt september kvöld árið 2005. 

 

Þátturinn er í boði

Define the Line Sport

Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift


Alyssa Burkett
Alyssa Burkett episode artwork
#319
04/15/2026

Þátturinn er í boði: 

- Define the Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt inni á www.definetheline.is

- Heimaskipulag en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is 


Hannah Pettey
Hannah Pettey episode artwork
#318
04/08/2026

Hin 22 ára gamla Hannah Pettey hafði í nokkra mánuði átt við nokkuð óeðlileg og erfið veikindi áður en hún veiktist alvarlega og endaði á að fá flogakast. 
Við tók heljarinnar rannsókn en í ljós kom að veikindinn væru engin tilviljun heldur eitrun til lengri tíma.

 

Þátturinn er í boði

Heimaskipulag

Define the Line Sport

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn


Jennifer Jackson
Jennifer Jackson episode artwork
#317
04/01/2026

Hin 18 ára Noura Jackson hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum, og þegar hún kom heim einn morgun kom hún auga á móður sína Jennifer látna. Undarleg hegðun hennar átti eftir að gera það að verkum að hún varð varð grunuð um að hafa myrt móður sína, en gerði hún það? 

Samstarfsaðilar þáttarins eru: 

- Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line

- Kóðinn Morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Hei


Charles Whitman - Texas Tower Shooting
Charles Whitman - Texas Tower Shooting episode artwork
#316
03/25/2026

Þann 1. ágúst árið 1966 tók Charles Whitman afdrifaríka ákvörðun um að ganga upp í turn við Háskólann í Texas í Austin þungvopnaður. Á 20 mínútum var hann búinn að framkvæma einhverja alræmdustu fjöldaskotárás Bandaríkjanna á þessum tíma.

 

Þátturinn er í boði

Define the Line Sport

Heimaskipulag

Steinunn hjá Kosmetik

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn


Patricia Jeschke
Patricia Jeschke episode artwork
#315
03/18/2026

Þann 13. nóvember árið 1980 fannst lík Patricia í svefnherberginu á heimili hennar í St. Joseph, Missouri. Tveimur vikum síðar hringdi hjúkrunarfræðingur í lögreglu þar sem skjólstæðingur hennar á geðsjúkrahúsinu var inni á heimilinu hennar með hníf meðferðis, og tengdi lögreglan þessi tvö atvik strax saman. Hinsvegar voru sönnunargögn sem fundust á vettvangi í máli Pat sem bentu til þess að gerandinn gæti ekki verið kona. 

Þátturinn er í boði: 

Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum Heimaskipulag en með kóðanum Morðskúrinn fáið þið 1


Reagan Tokes
Reagan Tokes episode artwork
#314
03/11/2026

Reagan Tokes var einhver harðduglegasta unga kona sem sögur fara af. Með skýr markmið og stóra drauma vann hún hörðum höndum að framtíð sínni. Meðfram háskólanámi vann hún í hlutastarfi á veitingarstað en þar hafði hún eytt síðasta kvöldi sínu á lífi. Eftir vaktina hafði hún gengið út í bílinn sinn og síðan ekki sést meir.

 

Þátturinn er í boði 

Define the Line Sport

Heimaskipulag

Steinunn hjá Kosmetik

 

Komdu í áskrift! 

www.par


Vincent Viafore
Vincent Viafore episode artwork
#313
03/04/2026

Vincent og Angelika ákváðu þrátt fyrir óveður að fara út á kajak en þau ætluðu að gera rómantíska ferð úr þessu á stað sem þau höfðu oft farið á áður. Hinsvegar kom annað þeirra aðeins til með að skila sér úr ferðinni og eftir rannsókn var ekki um neitt slys að ræða. 

Þátturinn er í boði

DEFINE THE LINE - Kóðinn morðskúrinn gefur 15% afslátt hjá Define The Line HEIMASKIPULAG - Kóðinn Morðskúrinn gefur 15% afslátt hjá Heimaskipulag STEINUNN HJÁ KOSMETIK PREPPBARINN LAMB STREET FOOD

 


Fiona Pender
#312
02/25/2026

Hin 25 ára gamla Fiona Pender var langt gengin með sitt fyrsta barn þegar hún hvarf að virtist, algjörlega sporlaust. 

Það er enn í dag öllum algjörlega óskiljanlegt hvað gerðist en þó eru flestir með ákveðna hugmynd um hvað gerðist við Fionu. 

Þátturinn er í boði

Define the Line

Steinunn hjá Kosmetik

Eldabuskan

Heimaskipulag

 

Komdu í áskrift

www.pardus.is/mordskurinn

 


Steven Clark
Steven Clark episode artwork
#311
02/18/2026

Einn dag fór hinn 23 ára Steven með móður sinni út að ganga, og stoppuðu þau á almenningssalerni sem þau bæði nýttu sér. Hinsvegar kom móðir hans ekki til með að sjá Steven koma aftur út af klósettinu, og hefur það verið ráðgáta síðan hvað varð um hann. 

 

- DEFINE THE LINE - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt

- ELDABUSKAN - kóðinn Morðskúrinn10 veitir 10% afslátt

- HEIMASKIPULAG - kóðinn Morðskúrinn veitir 15% afslátt

 


Lisa Hession
Lisa Hession episode artwork
#310
02/11/2026

Árið er 1984 og hin 14 ára gamla Lisa fékk leyfi frá móður sinni til að vera lengur úti til að mæta í partý með vinum sínum og kærasta. Lisa var ofboðslega samviskusöm stelpa og því fór um móður hennar ónotatilfinning þegar hún hafði ekki skilað sér heim á tilsettum tíma. 

Þátturinn er í boði

Define the Line Sport

Eldabuskan

Heimaskipulag

Steinunn hjá Kosmetik snyrtistofu

 

Komdu í áskrift! 

www.pardus.is/mordskurinn

 


Terrance Williams og Felipe Santos
Terrance Williams og Felipe Santos episode artwork
#309
02/05/2026

Þátturinn er í boði: 

DEFINE THE LINE - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt HEIMASKIPULAG - kóðinn Morðskúrinn veitir 15% afslátt ELDABUSKAN - kóðinn Morðskúrinn10 veitir 10% afslátt Preppbarinn Lamb Street Food Steinunn hjá Kosmetik snyrtistofunni


Prisma Reyes
Prisma Reyes episode artwork
#308
01/28/2026

Þegar foreldrar Prismu Reyes fréttu að dóttir þeirra hafi ekki sótt son sinn úr pössun á tilsettum tíma urðu þau verulega áhyggjufull.

Kom á daginn að það var full ástæða til því þegar lögreglan blandaðist inn í málið kom í ljós að Prisma hafði átt fremur óvenjulegan dag og var nú í kjölfarið týnd.

 

Þátturinn er í boði 

Define the Line Sport 

Steinunnar hjá Kosmetik

Eldabuskan 


Teresa Halbach
Teresa Halbach episode artwork
#307
01/21/2026

Teresa hafði starfað sem ljósmyndari um skeið, og þegar hún fékk boð um gigg þá tók hún því enda fannst henni ekkert skemmtilegra en að taka myndir. Hún hinsvegar kom ekki til með að skila sér heim eftir það, og ekki leið á löngu þar til hún fannst að lokum, brennd. 

Þátturinn er í boði: 

- Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt

- Eldabuskan en kóðinn Morðskúrinn10 veitir 10% afslátt

- Steinunn hjá Kosmetik