Pant vera blár!

10 Episodes
Subscribe

By: Davíð, Kristleifur, Styrmir, Þorvaldur

Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því að segja öðru hverju brandara sem falla misvel í kramið hjá öðrum meðstjórnendum.

76. 1+1+1 = 3 ára !
Last Monday at 3:00 PM

Að eiga afmæli er svo gaman,
Við spilum allir saman,
og tölum svo um það
og allir hlusta vel!

Við settum saman lista
og fórum smá að flissa
og töluðum svo um
hvað okkur fannst best! 


75. Spilaval
03/18/2024

Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.

Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur. 

Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað að stundum er gott að blanda þurrefnum í jöfnuna (Snakk og gos). 


74. Bíómyndir og borðspil
03/03/2024

Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...

Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund. 

Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum. 


73. 2023 Uppgjör
02/04/2024

Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við


72. Double Trouble
01/21/2024

Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch?

Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum sem þurfti að sigrast á ómögulegum verkefnum. Í þessum þætti kynnum til leiks  nýtt teymi  sem fær til sín góða gesti og má líkja best við 3CPO og R2D2 


71. Áramótaspil
12/28/2023

PEW PEW PEW! Það er kominn tími til að sprengja upp enn eitt árið í burtu. Tíminn líður... nýtt ár ný mark...spilamarkmið! 

Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg spil sem er gott að hafa á hliðarlínunni fyrir áramótapartíið. 

Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa verið að hlusta og vonum að þið siglið með bros á vör inn í  2024!

  


70. Jólaspilin 2023
12/03/2023

Vitiði hvað við elskum meira enn jólin?.... Það er rétt! SPIL! 
Enn það er ekkert betra enn að vera með fjölskyldu og vinum um jólinn... að spila.

Í þessum þætti aðstoðum við hlustendur að velja spil í pakkann fyrir jólin og fáum til okkar góðan aðila í létt spjall


69. Samvinna
11/19/2023

Hvað er betra enn að lifa í samfélagi þar sem allir vinna saman. Allir hjálpast að. Allir taka tillit til hvors annars og það er aldrei vesen. 

Við erum öll mismunandi forrituð í lífinu og þar af leiðandi ekki allar ákvarðanir í fullkomnu synchi... enn er það ekki bara gaman?

Í þessum þætti fjöllum við um samvinnu í lífinu og förum kannski yfir nokkur samvinnuspil 


68. Blá mjólk
11/05/2023

Hvort viltu þema á spilakvöldinu eða bara nýja tegund af bjór? Pant vera blár parar saman top10 spilin á BoardGameGeek við drykki.
Eins og oft áður með topplista nálgast vinirnir þetta á ólíkan hátt og ótrúlegt en satt, þá eru þeir ekki sammála um allt.


67. Ferðadagbók Styrmis (Essen 2023)
10/22/2023

Kæra Dagbók,

Í dag er ég mjög spenntur, alveg súper dúper ÚBER spenntur! Ég er nefnilega að fara til Þýskaland á spilaráðstefnu. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að fara enn síðan var bara svo SJÚKLEGA gaman síðast að ég ákvað að drífa mig.

Ég er að spá að vera smá flippaður og fá mér Baileys út í kaffibollan minn hérna upp á velli í tilefni dagsins og aldrei að vita nema taki eitt Encore spil við strákana í vélinni á eftir. Djöfull verður þetta skemmtilegt! Bah strákarnir eru að kom...