ILLVERK Podcast
Hlaðvarpið sem hefur svalað forvitni íslendinga um sannsöguleg sakamál síðan 2019. • www.illverk.is • #illverkpodcast • [email protected]
196 Þáttur: Hvarf Michelle Parker "Peoples Court TV"
Þann 17. nóvember 2011 hvarf hin 33 ára Michelle Parker sporlaust í Orlando í Flórída, sama dag og sjónvarpsþáttur þar sem hún og fyrrverandi unnusti hennar ræddu stormasamt samband sitt var sýndur.
Eftir hvarfið hófst umfangsmikil leit að fjögurra barna móðurinni, en þrátt fyrir áralanga rannsókn fékk fjölskylda hennar engin svör við því hvað hafði gerst.
Nú, tæpum 15 árum síðar, hafa loksins orðið tímamót í málinu. Ný þróun í rannsókninni hefur vakið upp spurningar sem hafa legið ósvaraðar frá því Michelle hvarf. Hvað gerðist í rau...
195 Þáttur: Maria Marten "The Red Barn Murder"
Þann 18. maí árið 1827 yfirgaf hin 26 ára gamla María Marten heimili sitt í litla þorpinu Polstead á Englandi. Hún var á leið til fundar við elskhuga sinn, William Corder, en þau höfðu ákveðið að hittast í gamalli hlöðu sem kölluð var Rauða hlaðan, áður en þau hæfu nýtt líf saman.
En María sneri aldrei aftur heim.
Mánuðir liðu án þess að fjölskylda hennar fengi að sjá hana. William hafði þó sínar skýringar á fjarveru hennar, þar til stjúpmóðir Maríu, Ann Marten, fór að upplifa nokkuð sem átti eftir að br...
194 Þáttur: Morðið á Pierre Émile L'Angelier - Forboðin ástarbréf 💌
Glasgow, mars 1857. Hinn 28 ára gamli Pierre Émile L’Angelier snýr óvænt aftur til borgarinnar eftir að hafa fengið bréf frá 21 árs gamalli Madeleine Hamilton Smith, konu sem hann hafði átt í leynilegu ástarsambandi við í tæp tvö ár.
Að morgni 23. mars 1857 er Pierre látinn. Það sem kemur í ljós næstu daga breytir skyndidauða hans í eitt umtalaðasta sakamál Viktoríutímans. Hundruð ástarbréfa, leynileg trúlofun, arsenik og samband sem mátti aldrei komast upp.
Í þættinum förum við aftur til Glasgow árið 1857 og skoðum ráðgátuna um Madeleine Smith og Pierre Émile L’Angel...
193 Þáttur: Brandi Worley: Mothers Who Kill "Spouse Revenge Filicide"
Árið 2016 leitaði Jason Worley ráða hjá ókunnugu fólki á Reddit. Hjónabandið hans var að hrynja og eftir margra ára svik og vantraust vissi hann ekki hvort hann ætti að vera áfram — eða fara. Jason fór að ráðum fólksins og tók ákvörðun. Aðeins nokkrum vikum síðar var líf hans gjörsamlega lagt í rúst. Í þessum síðasta þætti um flokkun Dr. Philip Resnick á foreldrum sem myrða börn sín skoðum við mál Brandi Worley — og mögulega einn óhugnanlegasta flokkinn af þeim öllum:
Spouse revenge.
Þegar barn verður að vo...
192 Þáttur: Andrea Yates: Mothers Who Kill "Altruistic Filicide"
Andrea Yates var fimm barna móðir í Texas þegar ólýsanlegur harmleikur átti sér stað á heimili fjölskyldunnar sumarið 2001. Á bak við málið var löng saga alvarlegra geðrænna veikinda, innlagna, lyfjabreytinga og viðvörunarmerkja. Í þættinum förum við ítarlega yfir sögu Andrea og skoðum málið út frá flokkun réttargeðlæknisins Dr. Phillip Resnick. Þar fellur mál Andrea undir altruistic filicide – þegar foreldri drepur barn í þeirri trú að dauðinn sé barninu fyrir bestu.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þ...
191 Þáttur: (KRR PRUFA) Clancy Réttarhöldin: Dagur 18-21 ⚖️
Þessi er þáttur er hluti af áskriftarleiðinni: Kenningar, Rannsóknir & Réttarhöld. Þeir þættir eru óritskoðaðir, óklipptir og ekki produceraðir. Ég bjó þessa leið til að geta unnið hratt, þá sérstaklega þegar eitthvað stórt er í gangi í sakamála heiminum. Eins og t.d Lindsay Clancy réttarhöldin.
Ef ykkur líkar þetta format getið þið skoðað málið inná www.illverk.is
Við höldum áfram að fara yfir Lindsay Clancy réttarhöldin, í þessum þætti koma fram:
Dagur 18 — 21. ágúst 2026
Dr. Phillip Resnick — réttargeðlæknir Dr. Avram Mack — réttargeðlæknirDagur...
190 Þáttur: Mál Chantay Blankinship "Morðinginn sem mætti í útförina"
Skelfilegt neyðarlínu-símtal sem batt enda á tæplega tveggja sólarhringa leit að hinni 25 ára gömlu „Chantay“ Blankinship. Þetta voru fréttirnar sem fjölskylda hennar hafði óttast mest. Chantay kemur aldrei aftur heim. ++
Hvað kom fyrir hana? og hvenær átti lögregla eftir að komast að því að morðingi hennar var mun nær en nokkrum grunaði…
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engi...
189 Þáttur: Lindsay Clancy: Inn í huga móður – Clancy málið í heild sinni
Lindsay Clancy var 32 ára hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir frá Massachusetts þegar hún, þann 24. janúar 2023, myrti börnin sín þrjú: Coru, Dawson og Callan Clancy.
Lindsay neitar ekki að hafa orðið börnum sínum að bana.
Spurningin sem kviðdómurinn þarf að svara er önnur: Var Lindsay Clancy sakhæf þegar hún gerði þetta?
Vörn hennar heldur því fram að svarið sé nei.
Undanfarnar vikur hefur kviðdómurinn fengið að heyra um geðheilsu Lindsay, fæðingarþunglyndi, gríðarlegt svefnleysi, sjúkrahúsinnlögn, fjöld...
188 Þáttur: Mannshvarf & Morð: Rebekah Gould - Seinni hluti
Rebekah Gould var 22 ára gamall háskólanemandi, búsetti í Fayetteville Arkansas. Hún elskaði ekkert meira en hundana sína tvo, systur sínar, vinkonur og pabba sinn. Mánudaginn 20 september átti hún að sækja systur sína Danielle, svo þær gætu farið saman frá heimabæ sínum Mountain View til Fayetteville í skólann. Þegar Rebekah kemur aldrei að sækja Danielle verður hún mjög áhyggjufull. Þessi dagur var upphafið af áralangri hrollvekju, lélegri lögreglurannsókn og leyndarmálum sem tóku alltof langan tíma að afhjúpa.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri I...
187 Þáttur: Mannshvarf & Morð: Rebekah Gould - Fyrsti hluti
Rebekah Gould var 22 ára gamall háskólanemandi, búsetti í Fayetteville Arkansas. Hún elskaði ekkert meira en hundana sína tvo, systur sínar, vinkonur og pabba sinn. Mánudaginn 20 september átti hún að sækja systur sína Danielle, svo þær gætu farið saman frá heimabæ sínum Mountain View til Fayetteville í skólann. Þegar Rebekah kemur aldrei að sækja Danielle verður hún mjög áhyggjufull. Þessi dagur var upphafið af áralangri hrollvekju, lélegri lögreglurannsókn og leyndarmálum sem tóku alltof langan tíma að afhjúpa.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri I...
186 Þáttur: Mál Spencer & Monique Tepe - Seinni Hluti
Í lok árs 2025 varð rólegt úthverfi í Bandaríkjunum vettvangur óhugsandi harmleiks. Hjónin Spencer og Monique Tepe, gift og með tvö ung börn, fundust látin á heimili sínu eftir skotárás sem skók samfélagið. Fljótlega beindist athyglin að manni úr fortíð Monique – fyrrverandi eiginmanni hennar, sem hún hafði verið skilin við í átta ár.
Í þessum þætti förum við yfir tímalínu málsins, bakgrunn aðilanna, flókið samband sem aldrei virðist hafa slitnað til fulls og atburði sem leiddu að þessum örlagaríka degi. Hvað gerðist í raun – og hvernig gat þetta endað svona?
...185 Þáttur: Mál Spencer & Monique Tepe - Fyrsti hluti

...184 Þáttur: Mál Jamie & Jennifer Faith - Seinni Hluti
Þann 9. október 2020 var 49 ára Jamie Faith Jr skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Dallas, Texas, þegar hann var á morgungöngu með eiginkonu sinni, Jennifer. Það sem virtist vera skelfilegt, tilviljanakennt morð reyndist fljótt fela í sér flókin tengsl og samskipti sem teygðu sig langt út fyrir hjónabandið. Í þessum þætti skoðum við líf Jamies og Jennifer, daginn sem allt breyttist — og þær spurningar sem komu upp í samfélaginu þegar rannsókn hófst. Þar undir leynast atburðarásir sem enginn sá fyrir, og sannleikur sem tók mánuði að afhjúpa.
Má bjóða þér að hlusta á...
183 Þáttur: Mál Jamie & Jennifer Faith - Fyrri Hluti

182 Þáttur: Brett & Janice Bonnell - Seinni Hluti
Janice og Brett Bonnell höfðu þegar gengið í gegnum helvíti á jörðu — þau misstu foreldra sína, fyrirtækið þeirra brann til kaldra kola og heimilið fór sömu leið. En þegar Brett fannst látinn við vegkant í Texas árið 2008, fór að renna upp fyrir yfirvöldum að harmleikur sem elti hjónin áttu sér rætur miklu nær en nokkurn grunaði.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, þrjá nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga & í fullri lengd.
Ásk...
181 Þáttur: Janice & Brett Bonnell - Fyrsti hluti

180 Þáttur: Bill Mussack - Seinni hluti
Þann 28. desember árið 2017 hringdi Robert Mussack í lögregluna og bað um að það yrði gerð velferðarathugun heima hjá bróður hans, Bill Mussack. Hann hafði ekkert heyrt í honum í næstum tvær vikur – sem var mjög ólíkt samskiptamynstri þeirra bræðra. Þegar lögreglan mætti á heimili Bills kom dóttir hans, Dayna Jennings, til dyra. Hún sagði þeim að pabbi hennar væri í burtu með nýrri kærustu. En dagarnir liðu, og ekkert bólaði á Bill og málið varð skrítnara með hverjum deginum sem leið… en málið er - að Bill Mussack var mun nær en nokkrum grun...
179 Þáttur: Bill Mussack - Fyrri hluti

Alice Ruggles: "Lover,Stalker,Killer"
Þegar Alice Ruggles slítur sambandi við hermanninn Trimaan Dhillon, byrjar ógnvekjandi kafli í lífi hennar. Hann fylgist með henni, sendir óteljandi skilaboð og mætir óboðinn – þar til allt endar með skelfingu. Í þessum þætti skoðum við hvernig ást breyttist í áreitni, og hvernig kerfið brást þegar það skipti mestu máli.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskr...
Mál Sade Robinson "Deadly Date"
Sade Robinson var 19 ára gömul í blóma lífsins, búsett á háskóla görðum MATC í Milwaukee þar sem hún lærði afbrotafræði. Þann 1 apríl árið 2024 þegar mál dagsins á sér stað, var aðeins vika í útskrift Sade og aðeins meira en mánuður í tvítugs afmælið hennar. Um 17:00 þann 1 apríl fer hún á stefnómót með ljóshærðum, hávöxnum manni en átti eftir það aldrei eftir að skila sér aftur heim og nokkrum klukkutímum eftir stefnómótið fannst bíllinn hennar í ljósum logum og fötin hennar í skottinu.<...
Gordon Cummins "The Blackout Ripper"
Gordon Frederick Cummins var breskur raðmorðingi þekktur sem "Blackout Killer" því hann gekk um götur London í leit af fórnarlömbum á meðan allt var dimmt. Stjórnvöld Bretlands ákváðu að hafa Black Outs eða Blitz til að forðast loftárásir frá Þýskalandi. Hann myrti fjórar konur og reyndi að myrða tvær aðrar á sex daga tímabili í London í febrúar 1942. Hann er einnig grunaður um að hafa framið tvö fyrri morð í október 1941.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 3...
Morðið á Carol Morgan "Kaupmaðurinn á horninu"
Þann 13 ágúst árið 1981 fannst hin 36 ára gamla Carol Morgan látinn inná lager í litlu búðinni sem hún rak ásamt eiginmanni sínum Allan í bænum Linslide í Leighton Buzzard, Bedfordshire á Englandi. Það var ansi augljóst að Carol hafði verið myrt á meðan eiginmaður hennar og börnin hennar tvö úr fyrra hjónabandi voru í bíó. Viðamikil rannsókn fór af stað, en átti sannleikurinn ekki eftir að koma í ljós fyrr en 40 árum síðar, þegar vitni steig loksins fram.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir...
178 Þáttur: Emilia Kaldars │ Sænskt Sakamál
Hin sænska Emilia Kaldars Sjöberg var aðeins 14 ára gömul þegar hún fór í fyrsta náttfatapartýið sitt en snéri aldrei heim. Ég fékk þann heiður að ræða við móður hennar Anna Sjöberg sem gaf mér ómetanlega innsýn inní mál dóttur sinnar.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þi...
Renae Marsden | Besta vinkona mín eða kærastinn minn?
Renae Marsden var tvítug stelpa frá Sydney, Ástralíu. Hún bjó með foreldrum sínum og gekk vel í lífinu. Hún hafði átt nokkra kærasta en þegar besta vinkona hennar kynnti hana fyrir Brayden Spiteri var ekki aftur snúið. Þau voru yfir sig ástfangin og sögðu þau ítrekað við hvort annað að þau myndu fórna lífinu fyrir hvort annað ... eitthvað sem Renae átti eftir að standa við. En ástæðan fyrir því er langt frá því að vera sú sem þau lögðu upp með í byrjun.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Joseph & Lauren DeWise "Vælandi Vídjó Morðinginn"
Lauren Walder og Jospeh Dewise kynntust þegar þau voru bæði að kenna í Bailey Middle School í Pensacola í Florida. Fyrir átti Joseph tvö börn og saman áttu þau eftir að eignast eina dóttur. Eftir að þau gifta sig setjast þau að í bænum Bozman í Montana og virtist framtíðin björt. Bakvið luktar dyr var hjónabandið þó allt annað en bjart. Jospeh var stjórnsamur, öfundsjúkur og óöruggur sem varð til þess að Lauren hætti að vera hrifinn af honum. Joseph ætlaði sér ekki að missa eiginkonu sína og gerði allt til að ná henni til baka, en þegar hann fékk ekki v...
Return To Nature | Hrollvekju Útfararstofa Jon & Carie Hallford
Hjónin Jon & Carie Hallford stofnuðu útfararstofuna "Return To Nature" árið 2019. Þeim langaði að kynna á markað vistvænni aðferðir í útfarar þjónustu og var það markmið fyrirtækisins að "Go Green" Jon var þriðji ættliður útfararþjónustu bransa fjölskyldunnar en bæði afi hans og pabbi voru í þessu frá því þeir voru ungir menn. Vegna þess virti fólk Return To Nature og fengu hjónin inn mjög marga kúnna um leið og þau opnuðu árið 2019. Staðreyndin var þó sú að þau áttu greinilega ekki fyrir tækjum og tólum sem þurfti til að reka útfararstofu... þrátt fy...
Evelyn Boswell | Loksins Réttlæti! Megan Boswell SEK
Árið 2023 fórum við yfir mál hinnar 13 mánaða gömlu Evelyn Mae Boswell. Hún sást síðast á lífi þann 26 nóvember árið 2019 & í 2 og hálfan mánuð vissi engin hvar hún var. Mamma hennar Megan Boswell kom fram í fjölmiðlum & grátbað um að Evelyn væri skilað öruggri heim. Þegar við kvöddumst í þeim þætti voru upplýsingar í lausu lofti, en í þessum uppfærslu þætti förum við yfir réttarhöld Megan Boswell, öll sönnunargögnin og LOKSINS, þann 14 febrúar 2024 fékk Evelyn litla réttlætið sem hún átti skilið.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri...
Ben & Erika Sifrit "The Thrill Killers"
Í maí árið 2002 skelltu þau Martha Cruchley og Joshua Ford sér til Ocean Beach í Maryland í smá frí. Þeim vantaði smá pásu frá skrifstofu störfunum sínum og sáu það í hillingum að komast aðeins í burtu og gera eitthvað allt annað en þau gerðu vanalega. Laugardagskvöldið 25 maí árið 2002 skella þau sér á skemmtistaðinn Seacrets, þar sem þau eyða kvöldinu með ungu hjónunum Erika og Benjamin Sifrit. Þau þáðu svo boð um að koma með þeim heim í heita pottinn. Boð sem átti eftir að verða þeirra síðasta, en ekki hafði þeim grunað að þau þau hefðu þarna komist í kynni við...
177 Þáttur: Morðið á Sherri Rasmussen "Ég veit hvað hann vill"
Fyrir næstum því fjórum áratugum, þann 24 febrúar árið 1986 átti sér stað dularfullt morð í úthverfi norður af Los Angeles borg. Morð númer 136 árið 1986 sem áttu því miður eftir að verða töluvert fleiri. Á þessum tíma gengu einnig mikið af alræmdustu rað morðingjum fyrr og síðar lausir sem átti eftir að trufla rannsókn málsins töluvert og það hjálpaði heldur ekki að DNA rannsóknartækni var á grunn stigi. Margir mismunandi þættir leiddu til þess að þetta dularfulla morðmál kólnaði ofan í skúffu lögreglunnar í Los Angeles í rúm 20 ár.
Nokkr...
176 Þáttur: The Murder Of Laken Riley (Áskrift)
Hin 22 ára gamla Laken Hope Riley var 22 ára gamall hjúkrunarfræðinemi á lokaári við háskólann í Augusta, Georgia í Bandaríkjunum. Þann 22 febrúar árið 2024 fór hún út að hlaupa, líkt og hún gerði alla aðra morgna. Laken átti aldrei eftir að koma aftur heim og átti Garmin úrið sem hún bar eftir að segja sögu þess sem kom fyrir hana í þessum örlakaríka hlaupatúr.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
175 Þáttur: Leilani Simon - The Landfill Murder
Leilani Maree Simon er bandarísk kona frá Savannah í Georgíu, sem var ákærð og fundin sek um morð á 20 mánaða syni sínum, Quinton Simon. Hún tilkynnti hann horfin 5. október 2022 og sagðist hafa séð hann kvöldið áður. Eftir umfangsmikla leit fundust líkamsleifar Quinton á ruslahaugum í nóvember.
174 Þáttur: Carly Gregg │ "The Teen Killer"
Réttarhöld hinnar 15 ára gömlu Carly Madison Gregg er í gangi í þessum töluðu orðum. Hún er sek um að hafa orðið 40 ára móður sinni að bana þann 19 mars síðastliðinn, ásamt því að reyna að myrða stjúpföður sinn með sömu byssu. Þetta mál er einstaklega áhugavert á svo marga vegu og spurningin sem maður veltir fyrir sér aftur og aftur er, afhverju gerði hún þetta?
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum má...
173 Þáttur: Mál Gisele & Dominique Pelicot
Hjónin Gisele & Dominique Pelicot voru sögð fullkomin saman. Þau voru búsett í Frakklandi, hamingjusamlega gift í 40 ár og áttu saman 3 börn. Þegar Gisele fór að veikjast stóð Dominique þétt við bakið á henni og studdi hana eins og hann hafði alltaf gert. Engum hefði grunað að það væri hann sem var að gera hana veika og hafði gert það í rúman áratug.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
Áskriftin kostar 1150,- kr á...
172 Þáttur: The Hanson Family Murders
Þann 28 september árið 2005 átti sér stað skelfileg morð sem þurrkaðu út meiri hluta Hanson fjölskyldunnar. Fyrir áttu þau allt til alls og lifðu þennan "Ameríska draum" sem svo margir óska sér. Því miður er það oft þannig að þegar vel gengur, verður til öfund og græðgi - tilfinningar sem áttu eftir að stíga meðlim fjölskyldunnar til höfuðs.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
Áskriftin kostar...
171 Þáttur: The Black Swan Murder | Ashley & Doug Benefield
Ashley var aðeins 24 ára gömul þegar hún kynntist hinum 54 ára Doug Benefield. Ashley, fyrrverandi ballerína heillaðist strax af Doug sem varð níu mánuðum áður ekkill. Doug fannst Ashley fallegasta kona sem hann hafði augum litið og hún gaf henni von um að elska á ný. Þau giftu sig þrettán dögum eftir að þau kynntust fyrst. Ótrúleg ástarsaga endaði þannig að Ashley er nýbúin að fara í gegnum réttarhöld, talin sek um að skjóta Doug til bana. Hún segir morðið framið í sjálfsvörn á meðan margir halda að hún hafi e...
170 Þáttur: Murder In Ålborg │ Mia Skadhauge Stevn
Það var loksins komið að því! Ekki nóg með það að öllum reglum var aflétt þegar kom að Covid 19, heldur var hin 22 ára gamla Mia Stevn að klára annað árið sitt í hjúkrunarfræði. Aðal partýgatan í Aalaborg í Danmörku var pökkuð af fólki á öllum aldri og var Mia ein af þeim sem hlakkaði til að skemmta sér. Engum hefði grunað að þetta ætti eftir að verða hennar síðasta djamm ... Mia sást aldrei framar á lífi eftir að hún settist uppí svartan bíl. Það leið ekki á löngu þar til hvarf hennar varð umtalað um allt lan...
169 Þáttur: The Murder Of Timothy Ferguson │ Shanda VanderArk & Paul Ferguson
Shanda VanderArk 44 ára, fimm barna móðir, var dæmd til lífstíðar í fangelsi fyrir morð og barnaníð í tengslum við dauða 15 ára sonar hennar Timothy Ferguson. Timothy fannst látinn 6. júlí 2022 á heimili Vander Ark fjölskyldunnar í Norton Shores. Shanda var ekki ein að verki, heldur aðstoðaði 20 ára sonur hennar Paul Ferguson hana við að níðast á Timothy þar til hann lést.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga.
Áskriftin kostar 1150...
168 Þáttur: The Soham Murders │ Jessica Chapman & Holly Wells
Í þætti dagsins bregðum við okkur til Soham í Cambridgeshire á Englandi. Bærinn er rólegur og fjölskylduvænn með lága glæpatíðni, flokkaður sem „smábær“ en þar búa um 12.000 manns.
Soham er frægur fyrir sögulega kirkju sína St. Andrew‘s & Soham járnbrautarslysið sem átti sér stað í seinni heimstyrjöld. Kirkjan og lestarslysið eru þó ekki einu hörmungarnar sem bærinn er þekktur fyrir og alls ekki það fyrsta sem kemur upp þegar þú skrifar nafnið „Soham“ í leitarvél internetsins.
Það fyrsta sem kemur upp er saga þeirra Holly Wells og Jessicu...
167 Þáttur: Wade Wilson "The Deadpool Killer"
Réttarhöld hins þrítuga Wade Wilson hafa vakið mikla athygli um allan heim. Hann var á dögunum dæmdur fyrir að verða þeim Kristine Melton og Diane Ruiz að bana, konur sem hann þekkti lítið sem ekkert. Það verður ákveðið á komandi vikum hvort hann verði dæmdur til dauða eða eyði restinni af sínu náttúrulega lífi í fangelsi. Í þætti dagsins förum við yfir málið í heild sinni, æsku ár hans og athugum hvort við finnum upptök skrímslisins sem hann er orðinn.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Ill...
166 Þáttur: Réttarhöld Karen Read │ Hvað Kom Fyrir John O'Keefe?
í þessum töluðu orðum bíður Karen Read örlaga sinna. Hún var dæmd fyrir morðið á kærastanum sínum John O'Keefe sem fannst látin úti í snjónum árið 2022 eftir að parið hafði verið úti að skemmta sér með vinum. Karen vill þó meina að spillt lögregla sé að klína morðinu yfir á hana. Gögn málsins eru það sláandi að dómari ákvað "mis-trial" smá Karen mun halda af stað í réttarhöld númer 2.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþát...