Besta sætið

40 Episodes
Subscribe

By: bestasaetid

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

✂️ Turn this podcast into clips
24. júlí - Allt á uppleið hjá Val
#163
Today at 10:56 AM

Valsmenn unnu loksins leik, og það gegn sterku liði í Sambandsdeildinni, Stjarnan vann líka í Evrópu en Vestri ekki.

Undanúrslit eru fram undan í Mjólkurbikar kvenna og spennandi leikir í Bestu deild karla.


23. júlí - Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar
#162
Yesterday at 10:55 AM

Vestramenn eru mættir til Lettlands, Valsmenn taka á móti Blikabönum frá Bosníu og Stjarnan tekur nýflengd á móti liði frá Finnlandi í Evrópueinvígum dagsins.

 

Þetta og fátt fleira var rætt í Besta sætinu.

Fjölþjóðlegur og fjörugur leikur í Lettlandi endar líklega með tapi Vestra gegn RFS.

Valur er með ellefu leikmenn á meiðslalistanum og einn sem ætti enn þá að vera þar en ætlar að spila gegn Zrinjski Mostar.

Stjarnan fékk stærsta skell sumarsins um helgina en gæti átt fínasta séns í Garðabænum ge...


22. júlí - EuroVikes, vonlaus Valur og Arnar í stuði
#161
Last Wednesday at 11:30 AM

Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði Afturelding sögulegum árangri. Besta sætið fór yfir sviðið.

Ágúst Orri Arnarson og Valur Páll Eiríksson ræddu málefni dagsins í Besta sætinu. Nikolaj Hansen var blár og marinn en var samt hetjan, annan Evrópuleikinn í röð í Víkinni.

18 mörk voru skoruð í tveimur leikjum í Bestu deild kvenna þar sem titilbaráttan harðnar, sem og botnbaráttan.

Afturelding er þá komið í úrslit Mjólkurb...


21. júlí - Besta uppgjörið
#160
Last Tuesday at 2:18 PM

Henry Birgir og Valur Páll gera upp síðustu umferðina í Bestu deild karla.


20. júlí - HM uppgjör
#159
Last Monday at 2:26 PM

Frábæru HM lauk í gær með sigri Spánverja á slökum og grófum Argentínumönnum. Henry Birgir og Valur Páll gera upp mótið í þætti dagsins.


17. júlí - Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi
#158
07/17/2026

Nóg var að ræða í Besta sætinu þennan föstudaginn. Evrópuleikir, Bestu deildirnar, Opna breska, Formúla 1 og fleira til.

Stjarnan og Vestri eiga bæði annað Evrópuverkefni framundan þrátt fyrir að hafa mistekist að sigra í leikjum sínum í gær og Íslendingaliðið í Færeyjum fór áfram eftir ótrúlega atburðarrás.

FH-ingar eru skemmtikraftar Bestu deildar kvenna og halda áfram að raða inn mörkum. Gott yngri flokka starf er þá að skila sér vel í Hafnarfirði.

Úrslitaleikur HM er fram undan á risastórri íþróttahelgi þar sem fjórir leikir fara fr...


16. júlí - Tuchel á skilið launalækkun og gleðilegan gluggadag
#157
07/16/2026

Áhuginn á Opna breska meistaramótinu í golfi stóreykst eftir tap Englands gegn Argentínu á HM. Nóg er að gera í pappírsvinnu við að ganga frá öllum félagaskiptunum sem hafa verið tilkynnt en hvaða framherja munu Víkingar sækja og hvenær kemur Aron Einar Gunnarsson til Þórs?


15. júlí - Yamal sá svalasti og lausnin við Messi fundin
#156
07/15/2026

Lamine Yamal er líklega svalasti fótboltamaður sögunnar og einfalda lausn má finna við vandræðunum sem Lionel Messi veldur. Daníel Hafsteinsson er samt helsta hetja gærkvöldsins.

 

Undanúrslit HM og Evrópuleikur Víkings voru í aðalhlutverki en margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.

Þar komu einnig við sögu trúlofun í takkaskóm, snemmbúin ævisaga Eusebio og sundferð á Blönduósi svo fáeitt sé nefnt.

Breiðablik ætlar að svara fyrir sig og endurheimta toppsætið í Bestu deild kvenna. Munu vandræði Vals hal...


13. júlí - Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti
#155
07/13/2026

Besta sætið hafði mörg mörk að ræða í dag, nánar tiltekið 21 mark í 4 leikjum Bestu deildar karla í gær. Vonandi sést eitthvað svipað á nýja Kópavogsvellinum í kvöld, annað en í síðasta leik Breiðabliks og Keflavíkur. 

Helstu álitamál helgarinnar á HM voru tekin fyrir; boltinn sem fór eða fór ekki í myndavél og rauða spjaldið sem Sviss fékk frá VAR. 

Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. 


10. júlí - Sýður á Sigga Helga
#154
07/10/2026

Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins.

Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí.

Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag í unglingalandsliðsverkefni fyrir rúmum áratug. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi þar sem er HM-fár. Rætt verður við Erik í Sport...


9. júlí - Gleðileg jól og langt hlé á enda
#153
07/09/2026

Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.


8. júlí - Hættulegur völlur í Fossvogi og afleiðingar Balogun-málsins
#152
07/08/2026

Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.


7. júlí - Megas á bar í Boston og Nablinn hress í Eyjum
#151
07/07/2026

Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.


6. júlí - Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið
#150
07/06/2026

Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fallega mánudegi.


3. júlí - Martröð markvarðar og VAR-veisla í Toronto
#149
07/03/2026

Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson.

Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar, Lofsönginn.

Einnig var snert á HM í fótbolta þar sem skrautlegur leikur fór fram milli Króatíu og Portúgals. VAR-dómgæsla og vat...


2. júlí - Þýskt þrot
#148
07/02/2026

Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.


1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps
#147
07/01/2026

HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta.

Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag.

HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðindi úr Grindavík þar sem Lárus Jónsson er tekinn við sem aðstoðarþjálfari í körfubolt...


29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu
#146
06/29/2026

Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.


26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?
#145
06/26/2026

Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands og ég veit ekki hvað og hvað. Skylduhlustun


24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?
#144
06/24/2026

Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta. 


22. júní: Besta lið sögunnar?
#143
06/22/2026

Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.


19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins?
#142
06/19/2026

Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.


18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open
#141
06/18/2026

Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.


16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins
#140
06/16/2026

Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.


15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031?
#139
06/15/2026

„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið.

 

Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin?

Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.

HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn úr Bestu deildinni er Jökull Elísabetarson en mun Sigurður Höskuldsson fylgja honum f...


12. júní - Lélegasti framherji mótsins strax fundinn
#138
06/12/2026

HM hófst í gær og við ætlum bara að hafa gaman að því, allavega meira gaman en sjónvarpsmenn Suður-Afríku. Lélegasti framherji mótsins er strax fundinn og Suður-Kóreuprinsinn kom sem kallaður.

 

HM var ekki það eina sem rætt var í þætti dagsins af Besta sætinu.

Stærsti hnefaleikaviðburður ársins er fram undan í kvöld. Um helgina er heill haugur af viðburðum, heil umferð í Bestu deild kvenna og margt, margt fleira.  

Pólitík fékk hins vegar ekkert pláss.


11. júní - Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið
#137
06/11/2026

Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.


10. júní - Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi?
#136
06/10/2026

Landsliðin okkar spiluðu bæði við heimsmeistara í gær og máttu sín lítils. Frammistaða stelpnanna okkar olli vonbrigðum. Strákarnir gerðu nákvæmlega sömu mistök og síðasta leik.


9. júní - Óttast slys í kvöld
#135
06/09/2026

Ísland gegn heimsmeisturum er þema kvöldsins en Gunnlaugur Árni Sveinsson átti sviðið í gær. Sá drengur er á leið á US Open. Magnað afrek. Svo er það úrslitaeinvígi NBA og engin Ungverjagrýla á HM í handbolta. Takk.


8. júní - Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar
#134
06/08/2026

Hjartaáfall Christian Eriksen, landsliðin okkar að mæta heimsmeisturum og stórmannlegir Víkingar framlengja við Ingvar er helst í brennidepli í þætti dagsins.


5. júní - Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja
#133
06/05/2026

Það er frábær föstudagur í Besta sætinu. Landsliðskona snýr heim, stelpurnar okkar eiga stóran leik, Knicksari rífur kjaft um fótbolta og vera má að Ögmundur Kristinsson semji við Víking í dag. Þá eru æfingaleikir um helgina þar sem Cole Palmer-laust Englandslið hitar upp fyrir HM. Palmer er andlit Nike fyrir mót sem hann tekur ekki þátt í. Svo er spurning hvort Arnar Gunnlaugsson hafi náð að lækka forgjöfina í golfi í Japan en hann er mættur með A-landsliði karla til Bandaríkjanna þar sem fram undan er leikur við heimsmeistara Argentínu.


4.júní: Sara Björk komin heim
#132
06/04/2026

Þrátt fyrir að komið sé hásumar er nóg að frétta úr heimi íþróttanna. Stór tíðindi að berast af kvennaliði Hauka sem er að fá sína bestu dóttur aftur heim, Sara Björk Gunnarsdóttir ein sú besta í sögu Íslands frá upphafi að stimpla sig inn í íslenska boltann. Ögmundur Kristinsson á leið í Víkina, Kane laus úr fangelsi og ég veit ekki hvað og hvað. Alvöru yfirferð í Besta sætinu í dag. 


3. júní - Getur Wemby bjargað NBA?
#131
06/03/2026

Misgóðar klippingar, nýr stjóri Liverpool og úrslitaeinvígi NBA eru á meðal umfjöllunarefna í Besta sætinu í dag.


2. júní - Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann?
#130
06/02/2026

Freyr Alexandersson lærði ekki af mistökum annarra íslenskra þjálfara og hefur verið látinn fara frá Brann. Hvað verður um Alfreð Finnbogason hjá Rosenborg?

 

Einhvern veginn tókst Noregi að taka yfir þátt dagsins í Besta sætinu. Stórliðin þar í landi, með Íslendinga í brennidepli, hafa tekið risaákvarðanir síðastliðinn sólarhring.

Svo sendu Norðmenn frá sér alvöru yfirlýsingu með sigrinum gegn Svíum í gær.

Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins í Besta sætinu.


1. júní - Er hægt að stöðva Víkingana?
#129
06/01/2026

Besta deild karla, stjóraskipti Liverpool, Lengjudeildin, blóðbaðið hjá Kolla box og fleira til í þætti dagsins.


29. maí - Óskar Hrafn á hælana?
#128
05/29/2026

Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan.

Þá skrifaði Óskar Hrafn Þorvaldsson undir nýjan samning í Vesturbæ og gjaldkeri liðsins hlær alla leið í bankann.


28. maí - Aron vildi ráða eftir þrjár æfingar
#127
05/28/2026

Aron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari FH og er rennt ítarlega yfir þessi merkilegu tíðindi í Besta sætinu í dag. Svo er staðan í hinni skemmtilegu Lengjudeild karla krufin aðeins.


27. maí - Körfuslúður og KR með hreðjatak á Valsmönnum
#126
05/27/2026

Besta deild karla er að spilast á áhugaverðan hátt en fátt virðist geta stöðvað Víkinga. Stjarnan veldur vonbrigðum og KR er með alvöru hreðjatak á Valsmönnum. Lengjudeildin er jöfn og spennandi og svo er mikið slúðrað í körfunni.


26. maí - Slot á skilið annað tækifæri og KR fær líklega á baukinn
#125
05/26/2026

Arsenal Englandsmeistari en hvað gerist næst? Aron Pálmarsson á leið í þjálfarabransann og hver er framtíð Steraleikanna? Lifir Jökull af annað tap og mun Valur valta yfir KR í kvöld?


22. maí - Dagur stórra tíðinda krufinn
#124
05/22/2026

Það var af nægu að taka á þessum glimrandi fína föstudegi þar sem tíðindi hrönnuðust inn. Pep Guardiola, Michael Carrick, Alfreð Gíslason og Haukur Þrastarson meðal annars til umræðu, sem og lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.