Hlaðvarp Myntkaupa

40 Episodes
Subscribe

By: Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Stýrivextir lækkaðir um 25 punkta í USA - Powell varar þó við bjartsýni um frekari lækkanir
#81
Yesterday at 8:16 PM

Í þessum þætti er fjallað um ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, niður í 3,75-4,00% og af hverju markaðurinn brást skömmu síðar við með talsverðum lækkunum. Þá er vikið að samskiptum Bandaríkjaforseta og forseta Kína sem markaðurinn fylgist grannt með og farið yfir það hvort vænta megi samkomulags milli ríkjanna þar sem Bandaríkin slaka á tollum gagnvart Kína og Kína veitir sömuleiðis greiðara aðgengi að sjaldgæfum jarðmálmum. Stóra rafmyntafrétt vikunnar var hins án efa sú að nú hefur bandaríska ve...


Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að taka rafmyntum opnum örmum?
#81
10/25/2025

Bitcoin hefur haldið velli sæmilega vel, 100k múrinn hefur haldið samfleytt frá verðfallinu 10. október síðastliðinn. Einn stjórnarmeðlimur í stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna flutti ræðu í byrjun vikunnar þar sem hann fjallaði mjög jákvætt um crypto markaðinn og bálkakeðjutæknina og hefur markaðurinn brugðist vel við. Þá náðaði Donald Trump CZ, fyrrverandi forstjóra Binance í vikunni og hafa verið skiptar skoðanir á ágæti þeirrar ákvörðunar. Ljóst er að þangað til hið opinbera í Bandaríkjunum hefur störf að nýju verður nokkur bið eftir því að kauphallarsjóðir...


Mesta hrun í sögu rafmyntamarkaðarins - Er bjarnarmarkaður skollinn á?
#80
10/18/2025

Á föstudagskvöldið 10. október síðastliðinn, í kjölfar þess að Donald Trump tilkynnti á Truth Social að vænta mætti 100% tolla á Kína, átti sér stað einhver svakalegasti atburður í sögu rafmyntamarkaðarins. Bitcoin stóð af sér storminn ágætlega og hélt velli yfir 100.000$ genginu og að einhverju leyti má segja það sama um Ethereum og Solana, þótt gengi þeirra mynta hafi lækkað talsvert meira. Aftur á móti lækkuðu aðrar rafmyntir en framangreindar með svo svakalegum hætti að eina orðið sem nær utan um það er algjört hrun, a.m.k. tímabundið, en þær lækkuðu flest...


Var 126.000$ BTC toppurinn?
#77
10/11/2025

Þessi þáttur var tekinn upp í hádeginu, föstudaginn 10. október 2025. Fyrr í vikunni hafði Bitcoin náð nýjum hæðum í rétt rúmlega 126.000$. Kvöldið eftir að þátturinn var tekinn fékk rafmyntamarkaðurinn, og þá sér í lagi aðrar rafmyntir en Bitcoin, að kynnast allra hrottalegustu dýfu síðari tíma eftir tilkynningu Trumps um 100% tolla á Kína. Þegar þetta er ritað hefur markaðurinn jafnað sig talsvert, en þó ekki nærri því að fullu. Þessi þáttur fjallar eins og gefur að skilja ekki um það, þar sem þeir atburðir voru þá enn óorðnir, en það verður viðfangsefni næsta þáttar. Í þessum þætti velt...


Bergþór Másson - Bitcoin: Sannleikur, sameiningarkraftur og sanngirni
#74
10/04/2025

Í þessum þætti tók athafnamaðurinn, Bergþór Másson, hús á okkur og við áttum gott samtal. Bergþór hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið fyrir hugrakka ákvörðun um að selja fasteign sína og kaupa Bitcoin í staðinn, en hann fjallaði meðal annars um þá ákvörðun í þættinum Ísland í dag. Í þættinum rekur Bergþór bakgrunn sinn og sögu og fer yfir hvað varð til þess að hann komst að þeirri niðurstöðu að fjárfesta í Bitcoin. Einnig er fjallað um ýmsa strauma og stefnur í samfélaginu og reynt að setja Bitcoin í samhengi við samfélagið í víðara samhengi en b


Víkingur Hauksson snýr aftur - Hvenær nær Bitcoin 1.000.000$?
#74
09/27/2025

Í þessum þætti kíkti stórvinur okkar og Bitcoin sérfræðingurinn Víkingur Hauksson í stúdíóið og fjallaði listilega um viðfangsefni sem hefur verið honum mjög hugleikið undanfarin 3 ár: Vöxtur Bitcoin samkvæmt veldislögmáli. Sjón er sögu ríkari og mælum við eindregið með áhorfi, ekki eingöngu hlustun. Víkingur sýnir gröf sem benda til þess að Bitcoin vaxi samkvæmt veldislögmáli, ekki aðeins með tilliti til verðs heldur einnig annarra þátta. Með hefðbundnum fyrirvörum má styðjast við þessi gröf til að álykta um verðþróun framtíðarinnar og...


Stýrivaxtalækkun í USA - Solana fer yfir 250$ - Hverju má búast við á fjórða ársfjórðungi?
#73
09/20/2025

Í þessum þætti er fjallað um lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum, en markaðir hafa brugðist vel. S&P500 vísitalan er í hæstu hæðum, og helstu rafmyntir nálgast sömuleiðis hæstu hæðir. Solana heldur áfram að gera gott mót og má rekja það talsvert til skráðra fyrirtækja á markaði sem eru að kaupa SOL, svokallaðra SOL Treasury Companies. Þá er að sjálfsögðu fjallað um helstu fréttir og farið yfir stöðuna almennt á rafmyntamarkaði.


Solana leiðir hækkanir í september - Vaxtalækkun framundan
#72
09/13/2025

Septembermánuður hefur tvímælalaust farið betur af stað en margir þorðu að vona. Aðrar rafmyntir en Bitcoin hafa staðið sig vel og ber þar helst að nefna Solana, þótt segja megi að flestar af helstu myntunum hafi hækkað talsvert frá byrjun mánaðar. Í þessum þætti er sjónum einkum beint að jákvæðri atburðarás fyrir Solana og Björn fjallar um af hverju hann reiknar með auknu fjármagnsflæði inn í Solana kerfið.


Ágústmánuður gerður upp á rafmyntamörkuðum - Hvað er World Liberty Financial?
#73
09/06/2025

Í þessum þætti er ágústmánuður gerður upp og gerð grein fyrir forsendum septembermánaðar eins og þær blasa við Birni og Kjartani, en í sögulega samhengi hafa þessir tveir mánuðir verið þeir slökustu á rafmyntamörkuðum. Einnig er fjallað ítarlega um nýjasta framtak Trump fjölskyldunnar í heimi rafmynta; World Liberty Financial (WLFI) og Björn gefur óhlutdrægt álit á því verkefni og hvort WLFI tókenið sé fjárfesting sem vert er að athuga nánar.


ETH nær hæstu hæðum frá upphafi, rétt tæplega 5.000$ - Er Solana næst?
#71
08/30/2025

Eftir erindi Jerome Powell í Jackson Hole 22. ágúst síðastliðinn eru greiningaraðilar sannfærðir um að vænta megi 25 punkta vaxtalækkun um miðjan september. Markaðurinn brást við með miklum hækkunum og náði Ethereum hæstu hæðum, eða rétt tæplega 5000$ og Solana hefur haldið sér yfir 200$. Bitcoin hefur hins vegar sigið niður frá því að það náði hæstu hæðum í um 124.000$ og vilja margir meina að það sé að miklu leyti rakið til þess að gömul veski hafi verið að selja talsvert magn af Bitcoin. Í þessum þætti ræða þeir félagar Bjö...


Guðlaugur Steinarr Gíslason - Hver er staða og hlutverk rafmynta í fjármálum heimsins í dag?
#71
08/23/2025

Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjármálahagfræðingur og fjárfestingastjóri hjá Visku Digital Assets, fjallar um þróun Bitcoin og bálkakeðjutækninnar síðustu ár og hvernig staða og hlutverk rafmynta er óðum að vaxa og styrkjast í fjármálalífi heimsins í dag. Guðlaugur fjallar um hvernig Bitcoin hefur þroskast og færir rök fyrir því af hverju hann telur ólíklegt að við sjáum bjarnarmarkaði endurtaka sig með jafn ýktum hætti og við höfum hingað til kynnst í sögu. Einnig er fjallað um hlutverk og tækifærin í bálkakeðjutækninni umfram Bitcoin og m


Ævintýralegar hækkanir ETH halda áfram - Ríkir meiri spenna á Wall Street gagnvart ETH en BTC?
#70
08/16/2025

Verðbólgutölur í Bandaríkjunum (CPI) komu betur út en spár gerðu ráð fyrir og brugðust markaðir vel við og greiningaaðilar reikna nú með stýrivaxtalækkun í september. Rafmyntir hafa staðið sig vel það sem af er ágúst, en óhætt er að segja að engin eign hefur haft tærnar þar sem ETH hefur hælana síðustu vikur og nálgast myntin nú óðfluga hæstu hæðir frá nóvember 2021. Í þessum þætti ræða þeir félagar sérstaklega velgengni Ethereum og spá í spilin um markaðinn í heild sinni.


Trump veitir 401k lífeyrissjóðum heimild til að fjárfesta í rafmyntum
#69
08/10/2025

Í vikunni gaf Donald Trump út forsetatilskipun sem veitir 401k lífeyrissjóðum í Bandaríkjunum heimild til þess að fjárfesta í rafmyntum. Fjárfestar eru mjög bjartsýnir yfir fregnunum, enda sitja sjóðirnir á gríðarlegum fjármunum. Ethereum heldur ótrautt áfram með miklum látum og er gengi ETH myntarinnar yfir 4.000$ í þessum skrifuðu orðum. SEC hefur nú formlega lokið öllum málaferlum gagnvart Ripple og margt fleira sem tekið er fyrir í þessum þætti.


SEC tilkynnir "Project Crypto" - Hvað felst í því og hvað þýðir það fyrir altcoins?
08/02/2025

Markaðir hafa brugðist illa við blaðamannafundi Jerome Powell, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem haldinn var á miðvikudaginn eftir að hann hafði tilkynnt að stýrivextir yrðu óbreyttir í 4,25-4,5%. Powell treysti sér ekki til að vera bjartsýnn um vaxtalækkun í september og um leið tóku markaðir að lækka. Þrátt fyrir það eru þeir félagar, Björn og Kjartan, sammála um að mikið tilefni sé til bjartsýni vegna tilkynningar frá bandaríska verðbréfaeftirlitinu, SEC, um "Project Crypto". Í þessum þætti ræða þeir þessa hluti fram og til baka og greina frá því hverju þeir rei


Bitcoin hægir á sér og fjárfestar spyrja: Er Ethereum besta fjárfestingin á markaðnum í dag?
#65
07/26/2025

Rafmyntamarkaðir hafa haldið vel í hækkanir undanfarinna vikna, en Bitcoin virðist ætla að þurfa nokkrar tilraunir til að keyra yfir 120k. Ethereum hefur hins vegar hækkað um meira en 50% síðustu 30 daga og gífurlegt fjárstreymi hefur verið í ETH kauphallarsjóðina á Wall Street. Þetta og fjölmargt annað var rætt í þessum þætti, meðal annars að Trump Media félagið keypti BTC fyrir 2 milljarða Bandaríkjadollara og margt fleira. Einnig er hið mánaðarlega bókahorn tekið fyrir í lok þáttarins.


Rafmyntamarkaðir áfram á fleygiferð - Þrjú crypto frumvörp samþykkt í Washington - Hvar stoppar XRP?
#64
07/20/2025

Í þessum þætti er fjallað ítarlega um atburðarás liðinnar viku í Washington þar sem þrjú lagafrumvörp voru samþykkt með afgerandi og þverpólitískum meirihluta. Litlu munaði að ekkert yrði úr crypto vikunni en forseti Bandaríkjanna beitti sér fyrir, og náði því í gegn, að crypto vikan næði fram að ganga. Ýmis teikn eru á lofti um að aðrar rafmyntir láti nú loks ljós sitt skína eftir marga mánuði í skugga velgengi Bitcoin. XRP heldur áfram ævintýralegum hækkunum og þeir félagar, Björn og Kjartan, reyna að ná utan um þetta allt saman.


Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - nálgast 120k
#64
07/12/2025

Í þessum þætti er fjallað um miklar hækkanir undanfarna daga á rafmyntum, en Bitcoin fór í um 118.800$ á föstudaginn, ETH fór yfir 3000$ og XRP fór nálægt 3$. Athygli vekur að ekki er hægt að benda á neinar sérstakar fréttir sem valda þessum hækkunum. Þeir félagar Björn og Kjartan fara þó yfir nokkur áhugaverð atriði sem styðja bjartsýn viðhorf gagnvart komandi vikum og mánuðum.


Hefur Blackrock meiri tekjur af Bitcoin heldur en bandarískum hlutabréfum?
#63
07/06/2025

Í þessum þætti ræða þeir félagar Björn og Kjartan um fjölda stórra frétti úr heimi rafmynta í Bandaríkjunum. Má þar nefna að nú hefur verið starfræktur Solana kauphallarsjóður í Chicago. Einnig er rætt um þá áhugaverðu staðreynd, að miðað við núverandi gengi Bitcoin og SP500 hlutabréfavísitölunnar er útlit fyrir að Blackrock hafi meiri tekjur af Bitcoin kauphallarsjóð sínum (IBIT) heldur en S&P500 kauphallarsjóð sínum. Þá er nýsamþykkt frumvarp "Big Beautiful Bill" rætt og margt fleira í þessum þætti.


Vopnahlé í Miðausturlöndum - S&P500 nær hæstu hæðum - Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við?
#62
06/29/2025

Í þessum þætti er rætt um hvaða áhrif nýlega umsamið vopnahlé í Miðausturlöndum kann að hafa á rafmyntamarkaði, en nú þegar hefur leiðandi hlutabréfavísitalan í Bandaríkjunum náð hæstu hæðum. Áfram berast góðar fréttir úr heimi rafmynta frá Bandaríkjunum, en nú virðist sem lánastofnunum þar í landi verði gert skylt að taka mið af rafmyntaeign þegar kemur að lánveitingum við fasteignakaup. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.


Lagafrumvarp um stöðugleikamyntir samþykkt í Washington - hvaða þýðingu mun það hafa fyrir rafmyntamarkaðinn?
#61
06/21/2025

Í síðustu viku samþykkti Öldungadeildin í Bandaríkjunum GENIUS Act eða lagafrumvarp sem fól í sér heildstæða löggjöf um stöðugleikamyntir. Frumvarpið fékk sterkt fylgi en 68 öldungardeildarþingmenn sögðu já gegn 30 sem sögðu nei. Eru flestir greinendur á því að þetta muni skapa góðan jarðveg fyrir markað stöðugleikamynta til að vaxa gríðarlega hratt á næstu árum sem að sama skapi ætti að hafa mjög jákvæð áhrif á rafmyntamarkaðinn í stærra samhengi. Þetta og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.


Bitcoin heldur velli yfir 100k þrátt fyrir óróa heimsmálanna
#60
06/15/2025

Bitcoin náði nýjum methæðum í lok síðasta mánaðar í 112K USD og hefur síðan þá aldrei farið undir 100K þrátt fyrir að meira og minna allir markaðir hafi tekið dýfu í kjölfar árásar Ísraela á Íran. Allt stefnir í að Texas verði þriðja fylkið í Bandaríkjunum sem samþykki Bitcoin kaup hins opinbera. Þetta og margt fleira ræða þeir félagar Björn og Kjartan í þessum þætti.


Chainlink "deep dive"
#60
06/07/2025

Þessi þáttur er hinn síðari af tveimur þar sem fjallað er um ONDO og LINK, að beiðni hlustenda og fjallar þessi um Chainlink eða LINK. Farið er yfir sögu Chainlink, grundvallaratriði keðjunnar og narratífið í dag. Af hverju heldur gengi LINK áfram að valda vonbrigðum þrátt fyrir að tæknin sé ein sú mest notaða í heimi bálkakeðjutækninnar? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.


Hvað er ONDO Finance?
#60
05/31/2025

Í þessum þætti er fjallað um hvernig eignir í raunheimum (Real World Assets) verða mögulega færðar yfir á bálkakeðjur. Til að mynda er Larry Fink, framkvæmdastjóri Blackrock, mjög sannfærður um þessa framtíðarsýn. Ein af mest spennandi bálkakeðjum í þessum efnum er ONDO og fara þeir félagar Björn og Kjartan á dýptina um hvað það er sem gerir ONDO spennandi og markar þeim jafnframt ákveðna sérstöðu.


Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - Af hverju vekur það ekki meiri athygli?
#59
05/24/2025

Í vikunni sem var að líða náði gengi Bitcoin 112.000 USD. Mörgum Bitcoin eigendum þykir þó sérkennilegt að fæstir gefa því mikinn gaum enn sem komið er. Í þessum þætti fara Björn og Kjartan að sjálfsögðu einnig yfir fréttir liðinnar viku, meðal annars hvernig hin ýmsu fylki Bandaríkjanna virðast í auknum mæli sjá hag sinn í því að tileinka sér Bitcoin. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Stóri Solana þátturinn
#58
05/16/2025

Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl 2025, ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um Solana. Farið er yfir grundvallaratriði keðjunnar, söguna, stofnandann og markmið hans og margt fleira. Björn svarar spurningum um fjárfestingu sína í SOL myntinni, til dæmis hvar hann væri spenntur fyrir að selja.


Stóri Ethereum þátturinn
#57
05/09/2025

Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl síðastliðinn, fjalla þeir félagar Björn og Kjartan ítarlega um grundvallaratriði Ethereum. Útskýra hvaða áskoranir bíða þeirra, hverjir eru helstu styrkleikar og reyna að svara þeirri spurningu hvort ástæða sé til að vanmeta ekki þá möguleika sem Ethereum býður upp á. Saga Ethereum er rakin og farið er yfir samanburð Ethereum bálkakeðjunnar við aðrar sambærilegar bálkakeðjur og margt fleira.


Innflæði kauphallarsjóða nálgast sömu hæðir og í nóvember á síðasta ári - Er tilefni til bjartsýni gagnvart sumrinu?
#56
05/03/2025

Landið heldur áfram að rísa á rafmyntamörkuðum eftir því sem Bitcoin færist nær 100k verðmiðanum. Frumvarp um Bitcoin kaup Arizona-fylkis fékk samþykki bæði í fulltrúa- og öldungardeild fylkisins, en allt bendir þó til þess að ríkisstjórinn muni ekki skrifa undir frumvarpið sökum pólitískrar pattstöðu. Kauphallarsjóðir hafa verið að kaupa talsvert BTC undanfarið og er BTC eign Blackrock komin yfir 600.000 BTC. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Bitcoin nálgast 100k - Eru nautin aftur við völd?
#55
04/26/2025

Í þessum þætti er fjallað um hvað veldur hækkunum á gengi Bitcoin undanfarna daga. Meðal annars er fjallað um hvernig Trump virðist hafa hætt við áform sín um að reyna að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra. Einnig er fjallað um nýjar myntir í vöruúrvali Myntkaupa, en á dögunum bættust við SUI, HBAR og DOT.


Páskaþátturinn - Trump lýsir yfir óánægju með Jerome Powell - Hvaða heimildir hefur forseti Bandaríkjanna gagnvart seðlabankastjóra?
#54
04/19/2025

Í þessum þætti var farið yfir fréttir síðustu viku. Landið virðist aðeins vera að rísa á rafmyntamörkuðum, þótt enn sé hræðsla ráðandi samkvæmt mælikvörðum. Donald Trump ýjaði að því í vikunni að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra, en óljóst virðist vera hvort hann hafi heimildir til þess. Frumvarp um Bitcoin varaforða Oklahoma fylkis var naumlega hafnað og athygli vekur að það voru þingmenn Repúblikana sem voru í meiri hluta þeirra sem sögðu nei. Til viðbótar ræða Kjartan og Björn um þeirra fjárfestingaráætlanir og hvor...


Trump tekur U-beygju í tollamálum - Hvað vakir fyrir manninum?
#54
04/12/2025

Í þessum þætti er sjónum fyrst og fremst beint að tollaákvörðunum Trump. Segja má að markaðir hafi byrjað vikuna á því að vera lamaðir af hræðslu vegna tollaákvarðana Bandaríkjanna en réttu heldur betur við sér eftir að forsetinn tilkynnti að Bandaríkin munu fresta gildistöku nýsettra tolla í 90 daga, að undanskildum nokkrum ríkjum, þar með talið gagnvart Kína. Kjartan og Björn ræða atburðarásina og draga rökstuddar ályktanir um hvað mögulega vakir fyrir manninum með þessu öllu saman.


Tollar Trumps valda titringi á mörkuðum - Hlutabréf í Bandaríkjunum í frjálsu falli - Hvernig bregst Bitcoin við?
#51
04/04/2025

Frétt vikunnar að þessu sinni eru umdeildar ákvarðanir forseta Bandaríkjanna um að setja tolla á öll ríki heimsins, frá 10% og upp í tæplega 50%. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa verið í frjálsu falli frá ákvörðuninni en hingað til hefur Bitcoin haldið sæmilega velli. Kjartan og Björn ræða um hvernig landslagið horfir við þeim og hverju þeir búast við þegar fram líða stundir.


Markaðir missa flugið eftir nýlegar hækkanir - Hvað veldur?
#50
03/29/2025

Segja má að lítið hafi dregið til tíðinda á rafmyntamörkuðum í síðustu viku. Markaðurinn leit út fyrir að vera að undirbúa sig fyrir frekari hækkanir eftir góða byrjun, en virðist aðeins vera að missa flugið. Í þessum þætti kryfja þeir félagar, Björn og Kjartan, helstu orsakavalda, þar með talið áframhaldandi áhyggjur af tollum Bandaríkjanna, ásamt því að fara yfir helstu fréttir.


SEC fellir loksins niður dómsmálið gegn Ripple - Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að spýta fjármagni í markaðinn?
03/21/2025

Í þessum þætti er farið yfir fréttir liðinnar viku. Þar má helst nefna að bandararíska verðbréfaeftirlitið felldi loks niður málsókn á hendur Ripple sem hefur staðið yfir um árabil. Þá gaf Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna út að stýrivextir yrðu ekki lækkaði strax. Á hinn bóginn tók hann fram að seðlabankinn ætlaði að draga úr aðhaldi gagnvart markaðnum (Quantitative tightening) og tók markaðurinn vel í það fyrst um sinn, en síðan þá hafa hækkanir að mestu gengið til baka. Þá vaknar spurningin: Styttist í að Seðlabankinn snúi stefnunni við...


Hvað gerðist á hinum umtalaða "Crypto Summit" fundi í Hvíta húsinu? Eru Kína og Rússland farin að gera upp olíuviðskipti í Bitcoin?
#48
03/14/2025

Í þessum þætti fjalla Björn og Kjartan um fréttir liðinnar viku, einkum umtalaðan fund í Hvíta húsinu, svokallaðan "White House Crypto Summit". Einnig fjalla þeir um hvort sjá megi aukningu á peningamagni í umferð í heiminum og hvaða áhrif það kunni að hafa á rafmyntamarkaði. Loks er drepið á nýlegum fréttum um uppgjör olíuviðskipta milli Kína, Rússlands og Indlands í Bitcoin og öðrum rafmyntum.


Fundur í Hvíta húsinu með helstu leiðtogum rafmyntageirans - Ætla Bandaríkin að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin?
03/08/2025

Miklar verðsveiflur einkenndu rafmyntamarkaðinn vikuna sem er að líða. Donald Trump ýjaði að því á Truth Social að Bandaríkin ætli sér að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin, mögulega XRP, SOL og ADA. Þá er mikil spenna á markaðnum vegna fundar í Hvíta húsinu þar sem Donald Trump og áhrifamenn ríkisstjórnar Bandaríkjanna funda með áhrifafólki rafmyntaiðnaðarins. Kjartan og Björn ræða sín á milli hvaða ályktanir megi draga af þessu.


Hræðsla grípur um sig á mörkuðum vegna látlausra lækkana - Er ástæða til að hafa áhyggjur?
#46
02/28/2025

Bitcoin féll í nótt undir 80k USD samhliða gríðarlegu verðfalli annarra rafmynta og "Fear and Greed Index" er kominn í 20, eða "extreme fear". Í þessum þætti fer Björn Harðarson yfir ástæður sínar fyrir því að hafa ekki áhyggjur af ástandinu heldur líta frekar á það sem tækifæri. Einnig er fjallað um stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar, en í síðustu viku náðu tölvuþrjótar að stela tæplega einum og hálfum milljarði dollara af ETH. Þetta og margt fleira í þessum þætti!


Björn Harðarson - Fréttir liðinnar viku - Forseti Argentínu flæktur í jarmmyntarhneyksli. Abu Dhabi kaupir BTC fyrir meira en 400m USD. Hafa altcoins náð botninum?
#45
02/22/2025

Í þessum þætti fara Kjartan og Björn yfir helstu fréttir liðinnar viku. Javier Milei, forseti Argentínu, sætir nú gagnrýni fyrir aðild í rafmyntinni LIBRA sem féll gífurlega í verði eftir skammvinnar hækkanir. Abu Dhabi tilkynnti um stór Bitcoin-kaup. Farið er vel yfir stöðuna á markaðnum og hvort tilefni sé til bjartsýni fyrir aðrar rafmyntir en Bitcoin fyrir komandi vikur. Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Fréttir liðinnar viku. Slæmar verðbólgutölur í Bandaríkjunum - hvaða áhrif mun það hafa á stýrivexti í Bandaríkjunum? Með Birni Harðarsyni
#44
02/14/2025

Í þessum þætti fara Björn og Kjartan yfir fréttir liðinnar viku. Færst hefur ákveðin ró yfir markaðinn og eru sumir byrjaðir að tala um "boring zone". Verðbólgutölur ullu vonbrigðum í Bandaríkjunum á miðvikudaginn, en verðbólga mældist 3% þar í landi, töluvert verr en spár höfðu gert ráð fyrir. Áhrif þessa og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.


Mesta hreinsun crypto sögunnar | Voru 8-10 milljarðar USD þurrkaðir út aðfararnótt mánudags? Með Birni Harðarsyni
#42
02/09/2025

Í þessum þætti ræða Björn og Kjartan um þær lækkanir sem hafa einkennt rafmyntamarkaði undanfarnar vikur, sérstaklega aðrar rafmyntir en Bitcoin. Met var slegið aðfararnótt mánudags þar sem talað er um að allt að 8-10 milljarðar Bandaríkjadollara voru þurrkaðir út (e. liquidated). Eru hin umtöluðu Trump áhrif að snúast í andhverfu sína? Þetta og margt fleira í þessum þætti.


Kristján Ingi Mikaelsson, meðstofnandi Visku Digital Assets og stjórnarformaður Rafmyntaráðs.
#42
02/01/2025

Kristján Ingi mætti í fyrsta skipti í hlaðvarpið. Fáir, ef einhverjir, hafa haft jafnmarga snertifleti við rafmyntir á íslenskum markaði og Kristján. Hann hefur jafnframt talað fyrir Bitcoin á opinberum vettvangi í hartnær áratug. Í þessum þætti er farið yfir vegferð hans í heimi rafmynta og hann deilir með hlustendum sínum viðhorfum um Bitcoin og markaðinn. Mælum eindregið með hlustun!